Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1967, Qupperneq 8

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1967, Qupperneq 8
6 Alþingiskosningar 1967 í töflu I á bls. 14 er sýnd tala kjósenda og hlutfallsleg kosningarþátttaka í liverju kjördæmi, og í liverjum kaupstað, hverri sýslu og hverjum hreppi. Enn fremur er þar sýnd tala kjósenda og lilutfallsleg kosningarþátttaka á hverjum kjör- stað í Reykjavík. — Tala kjósenda á hvern kjördæmiskosinn þingmann var sem hér segir í hverju kjördæmi í alþingiskosningunum 1967: Reykjavík .................................. 3 785 Reykjaneskjördæmi........................... 3 345 Vesturlandskjördæmi......................... 1 380 Vestfjarðakjördæmi.......................... 1 077 Norðurlandskjördæmi vestra.................. 1 128 Norðurlandskjördæmi eystra.................. 1 941 Austurlandskjördæmi ........................ 1 207 Suðurlandskjördæmi ......................... 1 559 2. Kosningarþátttaka. Participation in elections. Við kosningarnar sumarið 1967 greiddu atkvæði alls 97 855 kjósendur eða 91,4% af lieildarkjósendatölunni. Mest liefur þátttaka í alþingiskosningum orðið 1956 eða 92,1%, en við atkvæðagreiðsluna um niðurfelhng sambandslaga og stofnun lýðveldis 1944 var þátttakan 98,4%. í skýrslu Hagstofunnar um alþingiskosningar 1949, bls. 6—8, er gerð nokkur grein fyrir þátttöku í kosningum frá 1874. Vísast til þess. Síðan 1937 hefur kosningarþátttaka verið sem hér segir: 1937 87,9% 1953 89,9% 1942 B/, 80,3 „ 1956 92,1 „ 1942 le/io 82,3 „ 195 9 28/6 90,6 „ 1944 98,4 „ 1959 “/10 90,4 „ 1946 87,4 „ 1963 91,1 „ 1949 89,0 „ 1967 91,4 „ Þegar athuguð er þátttaka karla og kvenna í kosningunum, þá sést í 1. yfirliti (bls. 8), að þátttaka kvenna er minni en þátttaka karla. Við kosningarnar 1967 greiddu atkvæði 92,9% af karlkjósendum, en 89,8% af kvenkjósendum. Við kosn- ingarnar 1963 voru þessi hlutföll 93,1% og 89,2%, og við haustkosningarnar 1959 voru þau 93,0% og 87,8%. Hve mikil kosningarþátttaka var hlutfallslega í einstökum kjördæmum, sést í 1. yfirhti (bls 8). Mest var kosningarþátttakan í Suðurlandskjördæmi og Vestur- landskjördæmi (92,5%), en minnst í Vestfjarðakjördæmi (90,1%). Þátttaka karla var mest í Suðurlandskjördæmi (94,6%), en kvenna í Reykjavík og Vesturlands- kjördæmi (90,5%). Kosningarþátttaka karla var minnst í Reykjaneskjördæmi og Vestfjarðakjördæmi (92,2%), en kvenna í Vestfjarðakjördæmi (87,8%). Þátttaka kvenna var í öllum kjördæmum minni en þátttaka karla, þar sem hún var minnst. í töflu I (bls. 14) er sýnt, hve margir kjósendur greiddu atkvæði og hlutfallsleg þátttaka þeirra í hverju sveitarfélagi. Er þar liver kjósandi talinn í því sveitarfélagi, þar sem hann stóð á kjörskrá, en ekki þar, sem hann greiddi atkvæði, ef hann liefur greitt atkvæði utan sveitar. Hvernig sveitarfélögin innan hvers kjördæmis og á landinu í heild, að meðtöldum kaupstöðum, skiptust eftir kosningarþátttöku, sést í 2. yfirliti (bls. 8), 63,9% af sveitarfélögunum voru með þátttöku meiri en 90%. Eins og sjá má í töflu I var kosningarþátttaka í eftirtöldum hreppum meiri en 98%.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.