Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1967, Qupperneq 15

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1967, Qupperneq 15
Alþingiskosningar 1967 13 þeirra fái þingsæti í sem fyllstu samræmi við atkvæðatölu sína við kosningarnar. Þingflokkur í þessu sambandi telst aðeins sá flokkur, sem komið hefur að þingmanni í einhverju kjördæmi. Eins og að framan getur úrskurðaði landskjörstjórn, að framhoðslisti sá í Reykja- vík, er yfirkjörstjórn þar taldi vera utan flokka og merkti bókstafnum I, væri borinn fram fyrir Alþýðubandalagið. Af þessu leiddi, að atkvæði, sem greidd voru þeim lista, voru talin með atkvæðum Alþýðubandalagsins við úthlutun uppl)ótar- þingsæta. Atkvæðatala þeirra fjögra flokka, sem fengu þingmenn kosna í kjördæmum, og tala binna kosnu þingmanna var þessi: Atkvæði Kosnir þingmenn Atkvæðamagn á þingmann Sjálfstæðisflokkur 36 036 20 1 801ls/2o Framsóknarflokkur 27 029 18 1 501“/18 Alþýðubaudalag (listar G og I) ... 16 923 6 2 8203/6 Alþýðuflokkur 15 059 5 3 011ý6 Lægsta meðaltalið telst blutfallstala kosninganna og miðast úthlutun uppbót- arþingsæta við liana. Hve mörg uppbótarþingsæti bver þingflokkur skub hljóta, finnst með því að deila í atkvæðatölu hans ineð tölu þingmanna flokksins kosinna í kjördæmum, fyrst að viðbættum 1, síðan 2, þá 3 o. s. frv. Uppbótarþingsætun- um er síðan útlilutað til þingflokka eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta uppbótarþingsætið fellur til þess þingflokks, sem hæsta á útkomuna, annað til þess sem á hana næsthæsta, og síðan áfram eftir hæð útkomutalnanna, unz eitt uppbótarþingsæti hefur falhð á hverja þeirra. Þó er hér á gerð sú tak- mörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþingsætum, hversu mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til þess að ná sem mestum jöfnuði við hlut- fallstöluna fyrir alla þingflokka. Eftir stjórnarskrárbreytinguna 1959 skal ávallt úthluta 11 uppbótarþingsætum, jafnvel þótt fullur jöfnuður náist með færri upp- bótarþingsætum. í töflu IV (bls. 31) er sýnt, hvernig uppbótarþingsætum liefur verið úthlutað til flokkanna við kosningarnar 1967, og jafnframt kemur þar fram, hvernig úthlutunin hefði orðið, ef haldið hefði verið áfram að útliluta uppbótar- þingsætum, þar til fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður við þann flokkinn, sem hefur lægsta hlutfallstölu. Af uppbótarþingsætum, sem úthlutað var 1967, hlaut Alþýðubandalagið 4, Alþýðuflokkurinn 4 og Sjálfstæðisflokkurinn 3 uppbótarþingsæti. Þingmannatala flokkanna og meðaltal atkvæða á hvern þingmann varð þá sem hér segir: Þing- Atkvœði mcnn á þingmann Sjálfstæðisflokkur....................... 23 1 56618/23 Frarasóknarflokkur ...................... 18 1 501n/18 Alþýðubandalag (listar G og I)........... 10 1 5059/lo Alþýðuflokkur............................. 9 1 4892/ö Ef halda hefði átt áfram að úthluta uppbótarþingsætum, þar til fenginn væri sem mestur jöfnuður milli þingflokkanna, þá hefði orðið að úthluta 2 viðbótar- sætum eins og sjá má af töflu IV A (bls. 31), og hefði Alþýðubandalagið og Alþýðu- flokkurinn fengið hvort sitt. Til þess að finna, liverjir frambjóðendur þingflokks, sem liafa ekki náð kosn- ingu í kjördæmum, skuli fá uppbótarþingsæti, er farið eftir atkvæðatölu þeirra í kjördæmunum, ýmist beinlínis eftir atkvæðatölu þeirra eða eftir atkvæðatölunni Framhald neðst á bls.32.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.