Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1974, Side 36

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1974, Side 36
Hagstofa íslands gefur út eftirtalin rit: 1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferð- ar (Verslunarskýrslur, Búnaðarskýrslur, Sveitarsjóðareikningar, Mann- fjöldaskýrslur, Dómsmálaskýrslur, Alþingiskosningar o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa komið út milli 50 og 60 rit. — Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt út- koma rita jafnóðum og þau koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru rit send þeim í pósti. 2. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar skýrslur um utanríkisverslun, fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísi- tölu og aðrar vísitölur, og árlegar skýrslur um margvísleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Árlegt áskriftargjald Hagtíðinda er 250 kr. 3. Statistical Bulletin er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og með 1963, þar áður var það mánaðarrit). Statistical Bulletin svipar til Hagtíðinda að því er varðar birtingarefni, en er yfirgripsminna. Erlendir áskrifendur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskriftargjald þess 150 kr. 4. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykja- vikur næstliðinn 1. desembér samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún hefur að geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desem- ber 1973 var 1460 bls., og verð 5800 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað, enda við það miðað, að hún seljist upp. 5. Skrár yfir fyrirtæki á íslandi 1969. Hér er birtur frumstofn hinnar nýju heildarskrár Hagstofnunnar yfir fyrirtæki á íslandi (þar eru með bændur, útgerðarmenn, iðnmeistarar o. s. frv.). í þessu riti eru þríþættar uppsláttar'- skrár, þar á meðal skrár, þar sem atvinnufyrirtækjum, stofnunum og fé- lagssamtökum er skipt í 165 starfsgreinar. — Rit þetta kostar 1600 kr. í bandi. Viðaukar við rit þetta hafa verið gefnir út, síðast í apríl 1973. 6. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsing- um um dána, koma út árlega í fjölrituðu hefti. Fyrsta heftið, með dánum 1965—67, kostar 130 kr., skrár yfir dána 1969 og 1970 kosta 80 kr. hvorar um sig, skrár yfir dána 1971 100 kr., og skrár yfir dána 1972 130 kr. Afgreiðsla ofan greindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10 (3. hæð), Reykjavík. Sími 26699. — Rit eru send gegn póstkröfu, ef þess er óskað, þó ekki rit í liðum 4 og 5.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.