Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1983, Page 14

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1983, Page 14
12 1983 Atkvæði Kosnir þingmenn Atkvæðamagn á þingmann Sjálfstæðisflokkur 50251 21 2092 19/21 Framsóknarflokkur (listar B og BB)... 24095 14 1768 2/14 Alþýðubandalag A lþýðuflokkur 22490 9 2498 8/9 15214 3 5071 1/3 Bandalag jafnaðarmanna 9489 1 9489 Samtök rm kvennalista 7125 1 7125 Hve mörg uppbótarþingsaeti hver þingflokkur skuli hljóta.finnst með þvíaðdeila í atkvæðatölu hans með tölu þingmanna flokksins kosinna f kjördaemum, fyrst að viðbættum 1, síðan 2, þá 3 o. s. frv. Uppbótarþingsætunum er síðan úthlutað til þingflokka eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta uppbótarþingsætið fellur til þess jringflokks, sem hæsta á útkomuna, annað til þess sem a hana næsthæsta, og síðan áfram eftir hæð utkomutalnanna, uns eitt uppbótarþingsæti hefur fallið á hverja þeirra. Þó er hér á gerð sú takmörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþing- sætum, hversu mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til þess að ná sem mestum jöfnuði við hlutfallstöluna fyrir alla þingflokka. Eftir stjórnarskrárbreytinguna 1959 skal ávallt út- hluta 11 uppbótarþingsætum, jafnvel þott fullur jöfnuður náist nteð færri uppbótarþingsætum. f töflu IV (bls. 30) er sýnt, hvemig uppbótarþingsætum hefur verið úthlutað til flokkanna við kosn- mgarnar 1983, og jafnframt kemur þar fram, hveming úthlutunin hefði orðið, ef haldið hefðiterið áfram að úthluta uppbótarþingsætum, þar til fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður við þann flokkinn, sem hefur lægsta hlutfallstölu. Af uppbótarþingsætum, sem úthlutað var 1983, hlaut A lþýðu flokkurinn J3 uppbótarsætií&ndalag jafnaðarmanna 3, Samtök um kvennalista 2, Siálfstæðisflokkurinn 2og Alþýðubandalagið 1. Þing- mannatala flokkanna og meðaltal atkvæða a hvem þingmann varð þá sem hér segir: Sjálfstæðisflokkur................. 23 2184 19/23 Framsóknarflokkur (listar B og BB)... 14 1768 2/14 Alþýðubandalag......................... 10 2249 Alþyðuflokkur........................... 6 2535 4/6 Bandalag jafnaðarmanna.................. 4 2372 1/4 Samtök um kvennalista .................. 3 2375 Ef halda hefði átt áfram að úthluta uppbótarþingsætum.Jiar til fenginn væri sem mestur jöfn- uður milli þingflokkanna, þá hefði orðið að úthluta 11 viðbotarsætum einsogsjá má af töflu IV A (bls. 30), og hefði Sjálfstæðisflokkurinn fengið 5, Alþýðubandalagið og Alþyðuflokkurinn 2 hvor flokkur og Bandalag jafnaðarmanna og Samtök um kvennalista hvort 1 uppbotarþingsæti. Til þess að finna, hverjir frambjóðendur þingflokks, sem hafa ekki náð kosningu í kjördæm- um, skuli fá uppbótarþingsæti, er farið eftir atkvæðatölu þeirra f kjördæmunum, ymist beinlínis eftir atkvæðatölu þeirra eða eftir atkvæðatölunni í hlutfalli við gild atkvæði í kjördæminu. Fyrsti uppbótarþingmaður þingflokks verður sá, sem hefur hæsta atkvæðatöhu annar sá, sem hefurhæsta hlutfallstölu atkvæða, þriðji sá, sem hefur næsthassta atkvæðatölu, fjórði sá, sem hefur næsthæsta hlutfallstölu, o. s. frv. - f töflu IV B (bls. 31) er sýnd röð frambjóðenda flokkanna hvað þetta snertir. f töflu IV C (bls. 32) kemur fram, hvaða frambjóðendur hlutu uppbótarþingsætioghverjir urðu varamenn.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.