Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1990, Síða 16

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1990, Síða 16
14 Sveitarstjórnarkosningar 1990 mánuðum fyrir kjördag, þ.e. 26. mars 1990 þar sem fyrri kosningardagur var 26. maí. Kosningu utan kjörfundar skal hefja svo fljótt sem kostur er eftir að kjördagur hefur verið auglýstur, þó eigi fyrr en átta vikum fyrir kjördag. Eftir þann tíma og til kjördags á kjósandi rétt á því að greiða atkvæði utan kjörfundar. Atkvæði utankjörfundarmágreiðaískrifstofu sýslumanns, fógeta eða lögreglustjóra utan Reykjavíkur, í skrifstofu eða á heimili hreppstjóra, unt borð í íslensku skipi þar sem skipstjóri hefur fengið afhent kjörgögn, enda kjósandinn skrásettur á skipinu, og í skiifstofu sendiráðs, fastanefndar eða sendiræðisskrifstofu, svo og í skrifstofu kjörræðismanns sem er kjörstjóri samkvæmt auglýsingu utanríkisráðuneytisins fyrir kosningar. Kjörstjóra innanlands er heimilt að láta kosningu fara fram á sjúkrahúsi, dvalarheimili aldraðra og stofnun fyrir fatlaða, enda sé kjósandi til meðferðar á hlutaðeigandi stofnun eða vistmaðurþar. Með samahætti fer um fangelsi og vistmenn þar. Kjörstjóri innanlands getur enn fremur heimilað kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund vegna sjúkdóms, fötlunar eða bamsburðar, að greiða atkvæði í heimahúsi. Slíkóskskal veraskriflegogstuddlæknisvottorði og skal hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl. 12 á hádegi þann dag þegar vika er til kjördags. Heimild til þess að hafa fleiri en eina kjördeild í sveitar- félagi hefur verið notuð á ýmsum stöðum, svo sem sjá má í töflu 1. I Reykjavík voru 98 kjördeildir, en næstflestar vom þær í Hafnarfirði og Kópavogi, 10. Eftir tölu kjördeilda skiptust sveitarfélögin sem hér segir: Sveitarfélög eftir íbúatölu 1.000 og 300- 299 og fleiri 999 færri Sjálfkjörið, ekki kosið - 3 2 1 kjördeild 20 38 123 2 kjördeildir 5 1 3 3 kjördeildir 1 - - 4 kjördeildir 3 1 - 8 kjördeildir 1 - - 10 kjördeildir 2 - - 98 kjördeildir 1 - - Alls 33 43 128 Kjörstjórn má leyfa ntanni, sem ekki stendur á kjörskrá í kjördeildinni, að greiða atkvæði þar, ef hann sannar með vottorði að hann standi á kjörskrá í annarri kjördeild í sveitarfélaginu og hafi afsalað sér kosningarrétti þar. 1 126 sveitarfélögum þar sem 7,3% kjósenda vom á kjör- skrá, var óbundin kosning. í 78 sveitarfélögum með 92,7% kjósenda var bundin hlutfallskosning, og þar af var sjálfkjörið í 5 sveitarfélögum þar sem aðeins var borinn fram einn listi. Þau voru Andakílshreppur, Rípurhreppur, Hofshreppur í Skagafirði, Þórshafnarhreppur og Skaftárhreppur. 176 sveitarfélögum voru 300 íbúar eða fleiri og var bundin hlutfallskosning því aðalregla. I 10 þessara sveitarfélajga kom enginn listi fram og var kosningin því óbundin. I 3 sveitarfélögum kom aðeins einn listi fram og var sjálfkjörinn. í 63 sveitarfélögum kornu fram tveir listar eða fleiri og var kosið um þá. í 128 sveitarfélögum voru færri en 300 íbúar og var kosningin því óbundin nema annað væri ákveðið. Svo fór í 116 sveitarfélögum, en í 12 sveitarfélögum var kosningin bundin hlutfallskosning, en þar af var sjálfkjörið í tveimur. Jafnframt því sem kjörskrárstofnar vom sendir út í mars fengu sveitarstjórnir send eyðublöð undir kosningarskýrslu til Hagstofunnar, en hverri sveitarstjórn ber að semja og skila henni skýrslu til birtingar um kosninguna. Mjög er misjafnt hvernig sveitarfélögin leggja sig fram unt skýrslugerðina. Flestar em skýrslurnar vel gerðar og þeim skilað þegar að loknum kosningum. Annars staðar gengur verr að koma saman gallalausum skýrslum og dregst óhóflega að skila þeim. Þarf ævinlega eftir hverjar kosningar að gera ýmsar leiðréttingar á skýrslum, áætla tölur þar sent þær vantar, og jafnvel að fmmsemja skýrslur þegar þær fást alls ekki. Er þá stuðst við tiltækar heimildir, svo sem tölur Hagstofunnarumfjöldafólksákjörskrárstofniogblaðafféttir af kosningunum. Varðandi atriði, sem ekki eru heimildirum, svo sem breytingar ákjörskrárstofni, þátttöku karla og kvenna eða tölu bréflegra atkvæða, er stuðst við hlutföll úr sam- bærilegum sveitarfélögum. I talnaefni þessarar skýrslu er því víða byggt á áætluðum tölum að hluta, án þess að þess sé getið. Þetta getur fyrst og fremst skipt máli þar sem birtar eru tölur fyrir einstök sveitarfélög. Það er miður að ekki skuli nást fullkomnar skýrslur alls staðar að, því að það verður að líta á það sem óaðskiljanlegan hluta af lýðræðislegri kosningu til sveitarstjórnar að greina frá framkvæmd hennar og niðurstöðum í opinberri skýrslu. ítöflu 1 erífremstadálki sýntfyrirhvertsveitarfélaghvort það telst til sveitarfélaga með 1.000 íbúa eða fleiri og telst þá eða gæti talist til bæja, 300-999 íbúa og kosning því eftir meginreglunni bundin hlutfallskosning, eða 299 íbúa eða færri og meginregla þá óbundin kosning. Þá er sýnt hvor kosningarhátturinn var viðhafður og hvort sjálfkjörið var. Þá er að lokum sýnt hvort kosningin fór fram 26. maí eða 9. júní. Þetta er sýnt með þremur bókstöfum og skýrist merking þeirra af línufyrirsögnum í upphafi töflunnar, þar sem fylgja heildartölur fyrir sveitarfélög sem eiga saman að þessu leyti. Kosning í Grímsneshreppi í Arnessýslu var kærð til féjagsmálaráðuneytisins og úrskurðuð ógild. Uppkosning fór fram 23. júlí. Kosning í Nauteyrarhreppi í Norður- Isafjarðarsýslu var úrskurðuð ógild og fór uppkosning fram 1. desember. Með lögum, sem sett voru árið 1929 (lög nr. 23/1929 um breyting á lögum nr. 42/1926, þau svo breytt gefin út sem lög nr. 59/1929), var ákveðið að í janúarmánuði 1930 skyldi kjósa fulla tölu bæjarfulltrúa í öllum kaupstöðum landsins, en eldri umboð falla niður. Skyldu svo kosningar fara fram í janúarmánuði fjórða hvert ár á öllum bæjarfulltrúum og vera hlutfallskosningar. Aður hafði kosningartími ekki verið sá sami í einstökum kaupstöðum og einungis kosið um hluta fulltrúasætanna hverju sinni. Eftir sem áður var kosið eftir gamla laginu í hreppunum, um helmingur fulltrúa kjörinn á þriggja ára fresti til sex ára hver fulltrúi, og kosning fór fram í heyranda hljóði nema hreppsnefnd ákvæði leynilega kosningu eða 1/6 hluti kjósenda krefðist hennar. 1 lögum frá 1936 (lög nr. 81/1936) var ákveðið, að kjósa skyldi í kaupstöðum og kauptúnahreppum síðasta sunnudag

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.