Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1991, Qupperneq 15

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1991, Qupperneq 15
Alþingiskosningar 1991 13 4. Atkvæði greidd utan kjörfundar Absentee votes Kjósandi, sem gerir ráð fyrir því að hann geti ekki vegna fjarveru eða af öðrum ástæðum sótt kjörfund á kjördegi á þeim stað þar sem hann er á kjörskrá, hefur heimild til að greiða atkvæði utan kjörfundar. Skilyrði þess að mega greiða atkvæði utan kjörfundar hafa verið rýmkuð á síðari árum. Við kosningarnar 1916, er slík atkvæðagreiðsla fór fyrst fram, og lengi síðan var heimildin bundin við sjómenn og aðra, sem staddir yrðu utan þess hrepps eða kaupstaðar þar sem þeir stóðu á kjörskrá þá er kosning færi fram, og neyttu ekki hins almenna réttar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað í sama kjördæmi (sbr. 5. kafla hér á eftir). Með lögum nr. 15 5. apríl 1974 var heimildin látin ná til þeirra sem samkvæmt læknisvottorði væri ráðgert að dveljast myndu á sjúkrahúsi á kjördegi, svo og bamshafandi kvenna sem ætla mætti að ekki gætu sótt kjörfund á kjördegi. Samkvæmt lögum nr. 4 15. mars 1983 máttu þeir einnig greiða atkvæði utan kjörfundar sem gátu ekki sótt kjörfund á kjördegi af trúarástæðum. Eftir breytingu á kosningalögunum 1987 er kjósanda, sem greiðir atkvæði utan kjörfundar, ekki lengur gert að tilgreina ástæðu þess að hann muni ekki geta sótt kjörfund á kjördegi. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur farið fram hjá sýslumönnum og hreppstjórum og um borð í íslensku skipi, enda hafi skipstjóri fengið afhent kjörgögn og kjósandinn skrásettur á skipinu. Erlendis má greiða atkvæði utan kjörfundarí skrifstofu sendiráðs, fastanefndareðasendiræðis- skrifstofu, svo og í skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt auglýsingu utanríkisráðuneytisins fyrir kosningar. Aðgangur til atkvæðagreiðslu utan kjörfundar var auð- veldaður með setningu laga nr. 15/1974 um breytingu á alþingiskosningalögum. Allir kjörræðismenn geta nú farið með atkvæðagreiðslu utan kjörfundar eftir þvf sem utanríkis- ráðuneytið ákveður, en þetta var áður bundið við að þeir væru af íslensku bergi brotnir og skildu íslensku. Þá var og í fyrr- nefndum lögum það nýmæli að kjörstjóra innanlands var heimilað að láta slíka atkvæðagreiðslu fara fram á sjúkrahúsi eðadvalarheimili aldraðra, enda væri kjósandi sjúklingureða vistmaður á stofnuninni. Frá 1991 fer með sama hætti um stofnanir fyrir fatlaða og fangelsi. Við þjóðaratkvæðagreiðslur um sambandslög og stjórnar- skrá 1918 og 1944 var leyft að kjósandi greiddi atkvæði heima hjá sér væri hann ekki heimanfær til kjörstaðar sökum elli eða vanheilsu. Sama heimild var sett í lög fyrir alþingis- kosningarnar 1923, en hún var síðan afnumin 1924 því að hætt þótti við misnotkun. Með lögum nr. 10/1991 varenn á ný sett ákvæði í kosningalög þess efnis að kjörstjóri innanlands geti heimilað kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða bamsburðar, að greiða atkvæði íheimahúsi. Slíkóskskal vera skrifleg, studd læknisvottorði og hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl. 12 á hádegi þann dag þegar ein vika er til kjördags. Eftir eldri kosningalögum þurftu atkvæði greidd utan kjörfundar að vera komin í kjördeild þar sem hlutaðeigandi var á kjörskrá, áður en kjörfundi lyki. Þessu var breytt með kosningalögum nr. 52/1959. Samkvæmt 5. mgr. 71. gr. þeirra laga er nægjanlegt að bréfi með utankjörfundaratkvæði sé komið í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem hlutaðeigandi kjósandi er á kjörskrá áður en kjörfundi lýkur. Skulukjörstjórnirsendaslíkbréfaðskilin til yfirkjörstjórnar. 7. yfirlit. Atkvæði greidd utan kjörfundar 1916-1991 og tala kjördeilda 1931-1991 Summary 7. Absentee votes 1916-1991 and number of polling stations 1931-1991 Utankjörfundaratkvæði af hundraði greiddra atkvæða Absentee votes as per cent ofvotes casl Kjör- deildir Alls Total Karlar Males Konur Females Polling stations 1916 1918 þjóðaratkvgr 1,9 2,2 1,0 Referendum 12,0 6,2 30,0 1919 2,2 3,0 1,8 1923 13,0 8,7 17,6 1927 6,4 8,7 3,7 1931 7,5 9,4 5,5 275 1933 9,3 10,0 7,4 266 1934 7,9 7,7 5,2 332 1937 12,2 15,3 6,4 343 1942, júlí 11,4 13,2 9,4 359 1942, október 6,5 1944 þjóðaratkvgr. 8,1 4,8 400 Referendum 18,8 17,7 19,7 383 1946 12,7 15,1 10,3 394 1949 1952 forsetakjör 7,9 10,0 5,8 393 Presidential elections 9,2 11,0 7,2 396 1953 9,1 10,3 7,8 398 Utankjörfundaratkvæði af hundraði greiddra atkvæða Absentee votes Kjör- as per cent ofvoles cast deildir AIls Karlar Konur Polling Total Males Females stations 1956 9,6 10,8 8,3 394 1959,júní 10,9 13,4 8,3 387 1959, október 7,4 9,4 5,4 384 1963 8,3 10,2 6,4 371 1967 8,7 10,3 7,0 346 1968 forsetakjör Presidential elections 11,1 12,6 9,6 333 1971 9,7 11,6 7,6 330 1974 13,4 14,8 12,0 328 1978 13,2 14,7 11,7 336 1979 9,6 11,4 7,9 336 1980 forsetakjör Presidential elections 13,8 15,0 12,5 334 1983 8,3 9,9 6,6 345 1987 10,0 11,5 8,5 353 1988 forsetakjör Presidential elections 13,4 13,2 13,8 331 1991 8,8 10,2 7,4 346
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.