Skólavarðan - 01.10.2002, Page 3
4
Leiðar i
Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is
Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is
Hönnun: Penta ehf.
Ljósmyndun: Jón Svavarsson
Teikningar: Ingi
Auglýsingar: Öflun ehf. / Kristín Snæfells / kristin@oflun.is / sími: 533 4470
Prentun: Prentsmiðjan Grafík / Gutenberg ehf.
Forsíðumynd: Jón Svavarsson / tekin í Öldutúnsskóla.
Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi).
Fyrirsjáanlegur skortur á
fjármagni
Skólastefna Kennarasambandsins hefur verið gefin út í sérstöku riti, en
hún var samþykkt á þingi KÍ í mars sl. Í þeim hluta sem fjallar um fram-
haldsskólann segir meðal annars:
„Nauðsynlegt er að framhaldsskólar verði fjárhagslega og faglega
sjálfstæðir þannig að þeir geti sjálfir stjórnað því hvernig þeir laga sig
að breytingum í samfélaginu, þörfum og kröfum nemenda.
Fjárhagslegt sjálfstæði feli í sér m.a. að
ríkisvaldið tryggi framhaldsskólum nægi-
legt fjármagn til þess að þeir geti staðið
undir þeim kröfum sem gerðar eru til
skólahalds í nútímasamfélagi og aðal-
námskrá gerir ráð fyrir. Reiknilíkan fram-
haldsskóla þarf að mæla réttlátt fjármagn
til skólanna miðað við raunkostnað þeirra
af skólahaldinu.“
Víða í framhaldsskólum hefur fólk
áhyggjur af því að fé til skólanna verði skorið við nögl og illa muni
ganga að standa undir þeim metnaðarfullu áformum, sem koma fram í
markmiðssetningu síðustu kjarasamninga, og yfirlýsingum ráðherra
fjármála og menntamála um að styrkja stöðu framhaldsskólans sem
þeir undirrituðu í tengslum við gerð samninganna. Svo virðist sem
kostnaður vegna kjarasamnings annars vegar og nýrrar aðalnámskrár
hins vegar sé vanmetinn. Það eru því verulegar blikur á lofti um hvort
takist að halda í þann kjaralega ávinning sem fékkst í síðustu samning-
um og tryggja launasetningu til samræmis við laun annarra háskóla-
menntaðra starfsmanna ríkisins, og ekki síður hvort framhaldsskólinn
geti sinnt nemendum sínum eins og gerðar eru kröfur um samkvæmt
aðalnámskrá. Enn liggur ekki endanlega fyrir með hvaða hætti þessi
mál þróast en menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, tók þeirri
beiðni Skólavörðunnar vel að svara nokkrum spurningum um málið
og eru svör hans birt í þessu tölublaði.
Samstarf við önnur lönd
Gestaskrifari Skólavörðunnar að þessu sinni er Ágúst Hjörtur Ing-
þórsson sem hefur í áratug starfað ötullega að samstarfi Íslands og
annarra Evrópulanda í menntamálum, vísinda- og rannsóknaráætlun-
um. Ágúst segir ljóst að pólitískt vægi menntunar hafi aukist til muna á
undanförnum árum og framundan sé mikil umræða um hvert hlutverk
evrópskrar samvinnu eigi að vera í því að efla og bæta menntun í álf-
unni. Að mati Ágústs er brýnt að íslenskt menntasamfélag komi að
þeirri umræðu. Stefnt er að því að gera Evrópu að samkeppnishæfasta
þekkingarsamfélagi veraldar árið 2010 og fyrir liggur að umtalsverðu
fjármagni verði varið til að ná því markmiði, bæði til rannsókna- og
þróunarstarfa og til menntamála í víðu samhengi.
Hvað sem líður skoðunum fólks á inngöngu Íslands í Evrópusam-
bandið er samvinna af þessum toga mjög áhugaverð fyrir Íslendinga
og í raun nauðsynleg. Eða hvernig hyggjumst við viðhalda þeim
menningararfi að sækja þekkingu út fyrir landsteinana og hleypa nýj-
um hugmyndum og ferskum vindum inn í samfélagsumræðuna?
Kristín Elfa Guðnadóttir
Efni
Greinar
Tvíæringur ISME 8
í Bergen 2002. Alþjóðlegt þing tónlistaruppalenda var haldið
í ágúst sl. og íslenskir þátttakendur hafa aldrei verið fleiri.
Skólavarðan fékk þá Egil Rúnar Friðleifsson, Sigursvein
Magnússon og Þóri Þórisson til spjalls og skrifa um þingið.
Nýtt orlofshús í miðbæ Reykjavíkur 12
Kynning á hinu stórglæsilega orlofshúsi að Sóleyjargötu 25
sem tekið var í notkun í sumarbyrjun.
Farsældin felst í ábyrgðarkennd beggja 13
Tómas Ingi Olrich situr fyrir svörum um málefni
framhaldsskólans.
Iðnskólinn í Reykjavík tók við Margmiðlunarskólanum 14
Það vakti athygli í vor þegar sú frétt barst út að Margmiðlun-
arskólinn yrði hluti af Iðnskólanum. Baldur Gíslason skóla-
meistari fræðir lesendur Skólavörðunnar um málið.
Starfsmenn í Kennarahúsinu 16
Nýir starfsmenn bætast enn í hópinn og aðrir kveðja.
Hugur, hjarta og hönd 18
er meginstefið í smíðakennslunni, segir Sveinn Alfreðsson
smíðakennari í Öldutúnsskóla, sem þekktur er fyrir skapandi
starf og hönnunarvinnu.
Passaðu bara píanóputtana 20
sagði Sólmundur við Unni Maríu dóttur sína þegar hún til-
kynnti að hún ætlaði að verða smíðakennari. Öryggismálin
brenna á Unni Maríu sem telur að á því sviði þurfi smíða-
kennarar og yfirvöld virkilega að bretta upp ermarnar.
Gengið yfir brúna 22
Samstarf leik- og grunnskóla stendur með miklum blóma í
Seljahverfi en hvert verður framhaldið? Það fer eftir áhuga
einstaklinganna og fjármagni segja þær Rannveig A.
Jóhannsdóttir og Ólöf Helga Pálmadóttir.
Hlakka til að mennta þjóðhöfðingja! 24
Skólavarðan fékk nýútskrifaðan grunnskólakennara til að
segja frá væntingum til starfsins og verkefnum í
upphafi þess.
Fastir liðir
Formannspistill 3
Finnbogi Sigurðsson skrifar.
Gestaskrif 5
Ágúst Hjörtur Ingþórsson hellir upp á evrópskt kaffi.
Vefanesti 26
Gefðu þér tíma til að líta inn á NordSpes! segir Sylvía
Guðmundsdóttir.
Smiðshöggið 30
Hafsteinn Karlsson skrifar um unga karlmenn í bobba.
Auk þess smáauglýsingar, leiðari, tilkynningar og fréttir um
allt milli himins og jarðar.