Skólavarðan - 01.10.2002, Page 6
Auk þeirra lögðu um 300 aðilar fram sinn
skerf til tvíæringsins sem var eins og gefur
að skilja ákaflega fjölbreyttur. Markmið
hans var að sýna fram á að verklegir og bók-
legir hlutar tónlistarkennslu væru jafn mikil-
vægir og var reynt að skapa þar einstæðan
viðburð þar sem þessir þættir blönduðust
saman og bættu hver annan upp.
Hver dagur var uppfullur af spennandi
viðburðum, tónleikum, fyrirlestrum, um-
ræðuhópum, fundum og skoðunarferðum.
Skólavarðan fékk þá Egil Rúnar Frið-
leifsson kórstjóra og námsstjóra, Sigursvein
Magnússon skólastjóra og Þóri Þórisson
tónlistarkennara og fræðimann til spjalls og
skrifa um ISME.
Ánægjulegt hve marg-
ir komu frá Íslandi
Egill Rúnar Friðleifsson er löngu
landskunnur sem stofnandi kórs
Öldutúnsskóla og stjórnandi hans
alla tíð. Egill Rúnar hefur jafnframt
verið mjög virkur í alþjóðlegu
samstarfi tónlistarkennara og sótt
ráðstefnur og námskeið víða um
lönd síðustu þrjá áratugi. Hann
hefur fylgst grannt með þróun
samtakanna ISME frá upphafi átt-
unda áratugarins og lét sig að
sjálfsögðu ekki vanta á þing þeirra
í Bergen í sumar. Við spurðum
Egil Rúnar hvort hann gæti reifað
sögu ISME í stórum dráttum og
jafnframt sagt svolítið frá eigin
reynslu af þátttöku í samtökunum.
„Eins og flestum er kunnugt var Unesco
sett á laggirnar í kjölfar stofnunar Samein-
uðu þjóðanna,“ segir Egill Rúnar. „-
Skömmu síðar var stofnuð deild innan
Unesco sem heitir International Society
for Music Education, eða ISME í daglegu
tali. Þetta eru alþjóðleg samtök tónlistar-
uppalenda, vettvangur fyrir alla þá sem
starfa að tónlistaruppeldi alveg frá leikskóla
upp í háskóla. Árið 1953 héldu samtökin
sitt fyrsta stóra þing sem var í Brüssel og
ári síðar annað þing í Kaupmannahöfn. Frá
þeim tíma hafa þingin hins vegar verið
haldin annað hvort ár, í þetta sinn í
Bergen, en það er 25. þing samtakanna.“
Sovéskur tukthúslimur
Egill Rúnar fór á sitt fyrst ISME-þing til
Moskvu árið 1970. „Þetta var ógleymanleg
ferð,“ segir hann, „en byrjaði reyndar ekki
gæfulega. Ég var stöðvaður á flugvellinum
og sviptur ferðafrelsi í átta klukkustundir á
meðan pappírarnir voru grandskoðaðir.
Þannig að ég er - innan gæsalappa - fyrr-
verandi sovéskur tukthúslimur! En þingið
varð mér geysileg hvatning, þarna hittust
starfsfélagar frá öllum heimshornum. Ég sá
og upplifði margt skemmtilegt og þetta
varð líka til þess að mér var boðið að koma
með kór Öldutúnsskóla á næsta þing sem
haldið var í Túnis 1972.“ Kórinn hefur
komið fram á tveimur þingum til viðbótar
því í Túnis; í Kanada árið 1978 og í Ástral-
íu árið 1988, en þess má geta að kórinn er
nú á sínu 38. starfsári.
Egill Rúnar segir að ISME-þingin séu
ómetanleg í því skyni að kynnast nýjungum
og heyra um það besta sem er að gerast í
heiminum á þessu sviði. „Þetta eru
langstærstu samtök tónlistarkennara sem
um getur í heiminum og kjörinn vettvang-
ur fyrir alla sem vilja halda sér ferskum og
lifandi í starfi. Sú hætta er alltaf fyrir hendi,
þegar maður situr sem fastast í sínu horni,
að maður staðni. Kulnunar í starfi verður
vart hjá tónlistarkennurum ekkert síður en
öðrum kennarahópum.“
Sakna tónlistarfólksins frá Austur-
Evrópu
Að mati Egils Rúnars hafa orðið geysi-
lega miklar breytingar á starfi ISME á
þeim tíma sem liðinn er frá því hann fór að
taka þátt í starfi samtakanna. „Og ekki allar
jákvæðar,“ segir hann. „Breytingarnar end-
urspegla á vissan hátt stöðuna í heimsmál-
unum. Þegar Sovétríkin hrundu á sínum
tíma og austurblokkin opnaðist gjörbreytt-
ist auðvitað pólitískt ástand á þessum svæð-
um og sú breyting hefur sett mark sitt á
þing ISME síðan. Austurblokkin var mjög
áberandi á þingunum, enda frábærir tón-
listarmenn sem þaðan komu. En nú bregð-
ur svo að á þinginu í Bergen var ekki einn
Tónl istarþ ing
8
Dagana 11. - 16. ágúst síðastliðinn
var alþjóðlegur tvíæringur ISME hald-
inn í 25. sinn. Hann bar yfirskriftina
Samspil og þar komu fram ýmsir fyr-
irlesarar, svo sem Bergljót Jónsdóttir
stjórnandi alþjóðlegu tónlistarhátíðar-
innar í Bergen sem hélt fyrirlestur á
opnunarhátíð tvíæringsins, Joan
Armatrading söngkona og tónskáld
sem talaði á lokahátíðinni, Mícheál ‘O
Súilleabáin prófessor, tónskáld og
stjórnandi The Irish World Music
Centre sem hélt fyrirlestur um tónlist
án landamæra og mismunandi tón-
listarheima, Liora Bresler prófessor í
tónlistarkennslu við háskólann í Illino-
is og Morton Subotnick tónskáld sem
nefndi fyirlestur sinn „Um sýndar-
veruleika og veruleika“.
Tvíæringur ISME
í Bergen 2002
Hvað er ISME?
Í tilefni af alþjóðlegri ráðstefnu um hlutverk og stöðu tónlistar í menntun ung-
menna og fullorðinna, sem UNESCO samtökin og þá nýstofnað alþjóðatónlist-
arráð stóðu fyrir árið 1953, voru stofnuð alþjóðasamtök tónlistaruppalenda eða
International Society for Music Education, skammstafað ISME.
Markmið samtakanna var og er að veita tónlistarkennurum og flytjendum frá öllum
heimshornum færi á að hittast og vinna saman að tilteknum verkefnum, standa fyrir pall-
borðsumræðum, fyrirlestrum, sýningum og tónleikum. Samtökin hafa frá upphafi staðið
fyrir tvíæringi sem er í senn ráðstefna og tónlistarhátíð og hefur reynst slíkur vettvangur.
Auk tvíæringsins standa samtökin fyrir minni ráðstefnum um allan heim þar sem tónlist
og tónlistarkennsla frá ýmsum svæðum er kynnt og rædd.
Innan ISME starfa sjö nefndir sem hver um sig hefur sitt sérsvið:
• Tónlistarvirkni samfélagsins.
• Tónlistaruppeldi smábarna.
• Menntun atvinnutónlistarmanna.
• Tónlist og umhverfið.
• Tónlist í skólum og menntun kennara.
• Tónlist og sérkennsla.
• Rannsóknarstörf.
Íslandsdeild NMPU er aðili að ISME f.h. Félags tónlistarskólakennara, Tónmennta-
kennarafélag Íslands og Samtaka tónlistarskólastjóra.
Áhugasamir geta aflað sér frekari upplýsinga um samtökin á heimasíðu þeirra
www.isme.org eða haft samband við isme@iinet.net.au