Skólavarðan - 01.10.2002, Qupperneq 7
einasti Tékki, Rússi eða Ungverji! Ástæðan
er kannski fyrst og fremst sú að það er
óheyrilega dýrt að taka þátt í þessu. Bara
það að skrá sig og segja: „Ég ætla að vera
með,“ kostar ekki undir 40 þúsund krón-
um. Í upphafi voru skráningargjöldin nán-
ast ekki neitt, þegar ég fór fyrst voru þau
tíu dollarar. En nú er þetta orðið svona
hátt og öll ytri umgjörð þinganna er líka
orðin mjög glæsileg. Í Noregi var til dæmis
mikil viðhöfn, Sonja drottning kom og
ávarpaði þingið og öllu var tjaldað sem til
var. Þingið var haldið í hinni frægu Grieg-
höll sem er eitt albesta tónlistarhús á
Norðurlöndum. En ég sakna þess að starfs-
félagar okkar frá Austur-Evrópu sjást ekki
lengur á ISME-þingum og sömuleiðis hef-
ur fækkað mjög ungu fólki vegna þess hve
dýrt er að taka þátt í þessu. Þetta finnst
mér mikill skaði og tel að það sé eitt af
verkefnum stjórnar ISME að gera ungu
fólki sem er að hefja sinn feril kleift að
koma á þingin. Ef ég lít í eigin barm veit ég
hversu mikils virði það var að geta tekið
þátt í þessu starfi sem ungur maður.“
Egill Rúnar segist líka hafa saknað
yngstu kynslóðarinnar á þinginu í Bergen,
þ.e. barnanna. „Börnin voru miklu minna
áberandi en oft áður og til dæmis sló það
mig mjög að á lokaathöfninni - sem var
glæsileg - kom ekki eitt einasta barn fram.
Þetta er algjört einsdæmi. Á öllum þingum
sem ég hef tekið þátt í hafa börn verið
miklu sýnilegri.“
Góð þátttaka Íslendinga
Margt var þó líka mjög ánægjulegt við
þingið og Egill Rúnar nefnir þar sérstak-
lega góða þátttöku frá Íslandi. „Við vorum
fjórtán úr tónlistargeiranum sem tókum
þátt núna og það er einstakt því að oft hef-
ur einungis einn mætt héðan og algengt á
bilinu tveir til fjórir. Ég hef hvatt mjög til
þess að menn sæktu þessi þing, en það hef-
ur bara tekið þrjátíu ár að vekja áhuga
fólks! Ég geri þó ráð fyrir að hlutur Íslands
verði meiri hér eftir en hingað til vegna
þess að við erum aðilar að Nordisk Musik-
pedagogisk Union sem nú eru orðin félagi í
ISME. Tónmenntakennarar, sem eru ekki
sem slíkir í ISME, eru hins vegar í NMPU
og því eiga bæði þeir og tónlistarskóla-
kennarar aðild að samtökunum. Þessir eiga
því að fá allar upplýsingar um starfsemi
ISME.“
Egill Rúnar starfar um þessar mundir
sem námsstjóri hjá skólaskrifstofu Hafnar-
fjarðar í hálfu starfi og einnig í hálfu starfi
sem kórstjóri. Hann segir yfirboðara sína
hafa sýnt starfinu mikinn skilning alla tíð
og nefnir þar sérstaklega fyrrverandi skóla-
stjóra Öldutúnsskóla, Hauk Helgason. „Án
hans stuðnings hefði ég aldrei fengið að
sprikla eins og ég gerði,“ segir Egill. „Starf
tónlistarkennarans getur verið bæði mjög
erfitt og vanþakklátt en það er líka mjög
skemmtilegt og gefandi. Bæjaryfirvöld hér
sýna tónlistarstarfi - eins og öðru æskulýðs-
starfi - vaxandi skilning. Hlúð hefur verið
að tónlistarskólum og við eigum einn
glæsilegasta tónlistarskóla á landinu, mikill
áhugi er á að gera veg hans sem mestan og
auka við kennslukvóta hans. Einnig eru
uppi hugmyndir um að stofna skólalúðra-
sveit Hafnarfjarðar og hefur beiðni um það
verið vel tekið af bæjaryfirvöldum.
Langstærsti vandinn sem við stöndum
frammi fyrir er skortur á vel menntuðum
kennurum og ég sé ekki hvernig við eigum
að klóra okkur út úr þessu. Það hryggir
mig að tónmenntakennaradeild Tónlistar-
skólans í Reykjavík skuli lögð niður en við
skulum vona að úr þessu rætist á farsælan
hátt.“
Þingið í Bergen er það tíunda sem Egill
Rúnar sækir heim og í lokin er hann spurð-
ur hvort ekki standi til að fagna hálfrar ald-
ar afmæli ISME á næsta ári með einhverj-
um hætti þótt það sé ekki „þingár“.
„Rætt er um að gefa út veglegt afmælisrit
en hátíðahöld verða ekki að öðru leyti en
því að hugsa fallega og hlýlega hvert til
annars!“ segir Egill og brosir. „Það verður
samfelldur, huglægur fögnuður í tvö ár þar
til við hittumst næst á Tenerife árið 2004!“
keg
Tónl istarþ ing
9
Sigrún Grendal formaður FT var á þinginu í Bergen ásamt Agli og tólf öðrum Íslendingum.
„Þetta eru langstærstu samtök tónlistarkennara sem um getur í heiminum og kjörinn vettvangur fyrir alla sem vilja halda sér ferskum og lifandi í
starfi,“ segir Egill Rúnar Friðleifsson um ISME.