Skólavarðan - 01.10.2002, Blaðsíða 10
Nýtt orlofshús Kennarasambandsins var
tekið í notkun 8. júní síðastliðinn. Húsið er
við Sóleyjargötu 25. Það var byggt árið
1938 fyrir Richard Thors og fjölskyldu
hans. Húsið er teiknað af Sigurði Guð-
mundssyni arkitekt og er eitt af fáum hús-
um í Reykjavík í funkis stíl sem enn er
varðveitt. Húsið er tveggja hæða steinhús
auk kjallara með fullri lofthæð og er um
185fm að grunnfleti . Húsið stendur á
stórri hornlóð við gatnamót Sóleyjargötu
og Njarðargötu og er lóðin um 1550 fm.
Lóðin er á milli Sóleyjargötu og Fjólugötu
og er aðgengi að húsinu frá báðum þessum
götum. Bílastæði eru við Fjólugötu en þar
er aðalinngangur hússins. Einnig eru bíla-
stæði við Njarðargötu. Húsinu var nánast
ekkert breytt að utan enda voru kröfur frá
byggingaryfirvöldum þær að halda því
óbreyttu, en að innan var það allt endur-
byggt og útbúnar sex íbúðir frá 34 fermetr-
um upp í 63 fermetra. Verulegt verk var að
breyta húsinu þar sem halda þurfti upp-
runalegu formi. Skipt var um allar lagnir
og húsið endurnýjað frá kjallara upp í rjáf-
ur. Fullkomið brunavarnarkerfi er í húsinu
auk þess sem byggður var nýr inngangur til
að uppfylla skyldur um aðgengi fyrir fatl-
aða. Íbúðirnar eru mjög vel búnar hús-
gögnum og búsáhöldum sem tilheyra
venjulegu húshaldi. Stærsta íbúðin er með
tveimur svefnherbergjum, þrjár íbúðir eru
með einu svefnherbergi og tvær íbúðir eru
studíóíbúðir. Í öllum íbúðunum er einnig
svefnsófi í stofunni fyrir tvo. Ein íbúð er
sérstaklega hönnuð með þarfir fatlaðra í
huga. Fjölrása sjónvarp er í öllum íbúðun-
um. Sími er í miðrými á fyrstu hæð ásamt
nettengdri tölvu til að skoða tölvupóst og
netið. Í kjallara hússins er þvottavél og
þurrkari. Sængurföt og handklæði eru til
staðar fyrir gesti.
Húsið hefur verið fullbókað í allt sumar.
Hægt er að bóka íbúðirnar með allt að
fjögurra mánaða fyrirvara, en leiguna verð-
ur að greiða við bókun. Helgarleiga (3 næt-
ur) er nú 9-10 þúsund á íbúð, en vikuleiga
er 15-16 þúsund.
Um hönnun sá Jón Ólafsson innanhúss-
arkitekt, Rafn Kristjánsson byggingar-
tæknifræðingur sá um lagnir og burð, Jón
Otti Sigurðsson sá um rafmagn. Bygging-
arstjóri var Þorsteinn Vilhjálmsson.
Skoðið heimasíðu Orlofssjóðs
http://www.ki.is/orlof/hus/
sol25/sol25.htm
Sóley jargata 25
12
Aðkoma að Sóleyjargötu 25 Fjólugötumegin
Fallegur garður er umhverfis húsið
Stjórn Orlofssjóðs og arkitekt skoða framkvæmdir
Nýtt orlofshús
í miðbæ Reykjavíkur
Eldhúsin eru vel búin borðbúnaði og tækjum
Í stofum eru svefnsófar og fjölrása sjónvörp
Frá opnun á Sóleyjargötu 25
Stofa í íbúð á efstu hæð
Sími er í miðrými á fyrstu hæð ásamt nettengdri
tölvu til að skoða tölvupóst og netið