Skólavarðan - 01.10.2002, Side 14
an í ársbyrjun 2001. Á
vegum EPTA hef ég tek-
ið þátt í að skipuleggja
fjölmörg námskeið, tón-
leika og síðast en ekki síst
fyrstu íslensku píanó-
keppnina sem haldin var í
Salnum árið 2000 og
verður á ný haldin á sama
stað í nóvember 2003.
Auk þess hef ég tekið að
mér önnur verkefni, svo
sem ritun texta í efnisskrár
ýmissa tónlistarhópa, fyrir SÍ og Listahátíð
í Reykjavík.
Nú þegar ég hef tekið við starfi Sigríðar
Sveinsdóttur á skrifstofu FT vona ég sann-
arlega að ég geti verið ykkur innan handar,
veitt upplýsingar og greitt götu félagsmanna
eftir bestu getu þó að eflaust taki nokkurn
tíma að setja sig inn í alla hluti hér og eitt-
hvað sé í það að svarað verði af Sigríðar-
visku. Starfið leggst einkar vel í mig enda
finnst mér fátt skemmtilegra en að vinna
innan um skemmtilegt og skapandi fólk sem
er nóg af hér í Kennarahúsinu. Réttindabar-
áttu tónlistarkennara er síður en svo lokið
þó að síðasta verkfall virki órafjarri. Halda
verður vel á spöðunum og reynslan hefur
sýnt að ekki má sofna á verðinum, bið ég
ykkur endilega að hika ekki við að hringja
inn með fyrirspurnir um nýja samninginn
eða annað sem ykkur liggur á hjarta.
Hlakka til að heyra í ykkur.
Sesselja Sigurðardóttir
Ég lauk kennaraprófi frá KÍ 1970 og
íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennara-
skólanum á Laugarvatni 1971.
Ég hóf kennslu við Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði 1971 og kenndi þar íþróttir svo
til samfellt til ársins 1988. Þá söðlaði ég
um og fór í almenna bekkjarkennslu sem
ég tími ekki alveg að sleppa og er því enn
að, jafnhliða starfi mínu fyrir FG hér í
Kennarahúsinu. Skólaárið 1972-1973 var
ég bekkjarkennari í Víðistaðaskóla auk
íþróttakennslunnar í Öldutúnsskóla. Or-
lofsárið mitt 1994-95 var ég áheyrnarnem-
andi í tónmenntakennaradeild Tónlistar-
skólans í Reykjavík og reyndi fyrir mér sem
tónmenntakennari í Öldutúnsskóla ásamt
bekkjarkennslu.
Ég sat í stjórn Íþróttakennarafélags
Íslands á árunum 1976 - 1980 og þar af
formaður síðasta árið. Í stjórn Kennara-
félags Reykjaness var ég fyrst kosin 1988
og starfaði til ársins 1994. Tók við for-
mennsku þar 1996 og starfaði til ársins
2000. Var í stjórn orlofssjóðs Kennarasam-
bandsins á árunum 1991-2000.
Ég kom inn í stjórn KÍ haustið 2001 sem
fyrsti varamaður og var kjörin fulltrúi FG í
stjórn KÍ á síðasta þing. Á síðasta aðalfundi
gaf ég kost á mér í stjórn Félags grunn-
skólakennara og er nú varaformaður þess.
Ég var áheyrnarfulltrúi kennara í skóla-
nefnd Hafnarfjarðar 1998-2000. Var í hópi
kennara í Harfnarfirði sem stofnaði Félag
grunnskólakennara í Hafnarfirði (FGH)
vorið 2000 og er formaður þess.
Félagsstörf hafa alltaf verið hluti af
mínu lífi, alveg frá því að ég gerðist félagi í
Barnastúkunni Björk í Stykkishólmi á mín-
um barnaskólaárum.
Og nú sit ég hér í þessu fallega húsi og
líkar vel, hlusta á ykkur ágætu félagar, tek
við ábendingum, reyni að setja mig inn í
málin og síðast en ekki síst safna í sarpinn
fyrir næstu kjarasamninga með dyggri að-
stoð ykkar. Vinnum saman.
Kveðja, Sesselja.
KÍ
17
Guðrún Þorsteinsdóttir Sigríður Sveinsdóttir Aðalheiður Steingrímsdóttir
Berta Björgvinsdóttir Ingunn ÞorleifsdóttirAnna Dóra Þorgeirsdóttir
Hanna Dóra Þórisdóttir
Skólastjórafélag Íslands heldur námstefnu sína að þessu sinni á Hótel KEA, Ak-
ureyri, þann 8. og 9. nóvember n.k.
Á námstefnunni verða teknir fyrir þrír efnisþættir; Peter Earley frá University
of London fjallar um faglega forystu og skólaþróun, gerð verður grein fyrir nið-
urstöðu rannsóknar á yfirfærslu grunnskólans til sveitarfélaga og að lokum
verður fjallað um málefni Námsgagnastofnunar. Að námstefnunni lokinni held-
ur SÍ síðan ársfund sinn, en hann ber að halda þau ár sem aðalfundur er ekki
haldinn. Nánari upplýsingar ásamt dagskrá og þátttökublaði verða send til
félagsmanna um næstu mánaðamót.
Námstefna Skólastjórafélags
Íslands.
Frétt