Skólavarðan - 01.10.2002, Síða 15
Þessi orð eru tekin upp úr aðalnámskrá
grunnskóla, sem samþykkt var árið 1999,
og lýsa í hnotskurn þeirri breytingu sem
orðið hefur í smíðakennslu í grunnskólum
landsins.
Kennari við gamla skólann sinn
Í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði ræður
Sveinn Alfreðsson eða Svenni, eins og
krakkarnir kalla hann, ríkjum í smíðastof-
unni. Svenni gekk sjálfur í Öldutúnsskóla
og þegar hann útskrifaðist úr Kennarahá-
skólanum árið 1985 beið hans, í orðsins
fyllstu merkingu, kennsla við skólann.
„Ég er Hafnfirðingur í húð og hár, hér
er ég fæddur og uppalinn og hér gekk ég í
skóla, meira að segja í þennan skóla. Ég bý
í nágrenninu og börnin mín þrjú eru hér í
skóla. Eftir að hafa unnið við ýmis störf
sem tengjast börnum ákvað ég að fara í
Kennaraháskólann, það var árið 1982.
Mamma var hjúkrunarkona í Öldutúns-
skóla og þegar ég var að útskrifast var Jó-
hannes, sem þá var smíðakennari hérna,
búinn að nefna við hana að ég kæmi til
starfa við skólann. Þannig að þegar ég út-
skrifaðist beið mín staða við skólann og
fyrr en varði var ég farinn að kenna allt að
50 tíma á viku í smíðum. Ég lagði mikla
áherslu á að vera vel undirbúinn í kennslu
og eyddi því flestum kvöldum og helgum í
skólanum. Það má segja að ég hafi verið
hálfgerður öryggisvörður því að einu sinni
þegar ég var við vinnu gómaði ég innbrots-
þjóf. „
Svenni hefur náð góðu sambandi við
krakkana í skólanum og segir þau frjó og
skemmtileg í hugsun og upp til hópa mjög
áhugasöm um það starf sem fram fer í
smíðastofunni. Verkefnin eru óþrjótandi
og má segja að nýsköpun í smíðakennsl-
unni sé mikil. Svenni lætur nemendur sína
útbúa hluti sem reyna á marga þætti, þau
teikna, hanna, smíða og láta hlutina síðan
virka.
„Það varð mikil breyting á allri smíða-
kennslu með nýju aðalnámskránni og hún
snerist meira upp í hönnun og tækni. Þá
kom tæknivinna inn og kennslan tengist vel
atvinnulífinu. Ég held samt gamla hand-
verkinu enn inni enda rúmast það vel innan
námskrárinnar. Það sem skiptir miklu máli
núna er að smíðin er tekin inn strax í sex
ára bekk en er síðan val í níunda og tíunda
bekk. Ég er í heild mjög ánægður með
námskrána og þá nýsköpun sem hún býður
upp á. Það sem er líka skemmtilegt við
smíðina er að maður er alltaf með hugann
við verkefni sem gaman væri að leggja fyrir
krakkana. Hugmyndirnar koma alls staðar
að, hvort sem maður er í vinnunni, heima
eða á ferðalagi. Svo koma þær líka frá
krökkunum sjálfum og tengjast oftar en
ekki úrlausnum á vandamálum hjá þeim í
daglega lífinu, sérstaklega þeim sem eru að
smíða og hanna fyrir Nýsköpunarkeppni
grunnskólanna.“
Nælonsokkabátur
Svenni gengur með okkur um vel útbúna
smíðastofuna og sýnir okkur nokkur verk-
efni sem nemendur hans eru að vinna að.
Þar má meðal annars sjá flugvélar með
hreyfla sem snúast af sólarorkunni einni
saman ásamt vindmyllum og blómum með
sólarorkunema. Hann sýnir okkur jóla-
sveina sem hreyfast og er notuð sprauta til
að knýja þá. Hlutir eru endurnýttir í
smíðakennslunni, þar má sjá bíla með dósa-
dekk og eitt verkefnið er bátur úr nælon-
sokkabuxum. Svenni segist hafa beðið sam-
starfskonur sínar í skólanum að leggja til
gamlar nælonsokkabuxur og þær hafi
brugðist vel við þeirri bón.
Hann sýnir okkur bíla með mótor þar
sem teygja flytur aflið út í hjólin. Krakk-
arnir teikna bílinn, síðan er smíðað mót,
heitt plast sett yfir og þannig fenginn léttur
bíll sem hægt er að drífa áfram með litlum
mótor. Hann sýnir okkur þjófavörn sem
krakkarnir hanna og búa til og segir að þau
noti hana meðal annars í skúffur þar sem
þau geyma eitthvað sem þau vilja hafa
leynilegt.
Viðta l
18
„Verkefni, sem byggjast á hönnun og
tækni, ættu að vera nemendum ögrun
til átaka. Lausnir á vandamálum, er
tengjast daglegu lífi manna, ættu
jafnframt að veita nemendum
ánægju, sjálfstraust og hvetja til frek-
ari átaka í eigin lífi. Vinna af þessu
tagi hjálpar einstaklingnum að læra
að meta heiminn í kringum sig og
gildin í umhverfinu. Hönnunarvinna
og smíði hluta hjálpa einstaklingum
að skynja og meta fallega hönnun,
handverk, hagnýtingu tækni og að
skilja þarfir atvinnulífsins.“
„Hugur, hjarta og hönd
er meginstefið í smíðakennslunni,“
- segir Sveinn Alfreðsson smíðakennari i Öldutúnsskóla í Hafnarfirði
Það varð mikil breyting á allri smíðakennslu með nýju aðalnámskránni
og hún snerist meira upp í hönnun og tækni. Þá kom tæknivinna inn og
kennslan tengist vel atvinnulífinu. Ég held samt gamla handverkinu
enn inni enda rúmast það vel innan námskrárinnar. Það sem skiptir
miklu máli núna er að smíðin er tekin inn strax í sex ára bekk en er síð-
an val í níunda og tíunda bekk. Ég er í heild mjög ánægður með
námskrána og þá nýsköpun sem hún býður upp á.
Þessir bátar eru gerðir úr nælonsokkum og
krossvið. Sniðin er plata sem myndar þilfar
bátsins og aðrar sem mynda kjöl og bóglínu
bátsins, þá er sokkurinn strekktur yfir og málað
yfir með lími sem strekkir og stífar sokkinn. Að
því búnu eru brúnir þilfarsins raspaðar og sokk-
urinn fer ofan af, því næst er báturinn málaður
og þá er hann fullsmíðaður.