Skólavarðan - 01.10.2002, Page 21

Skólavarðan - 01.10.2002, Page 21
Ég hafði ekki verið lengi inni á kennara- stofunni fyrsta starfsdaginn þegar orðið leyfisbréf barst mér til eyrna frá öðrum ný- útskrifuðum kennurum sem tóku spjall saman. Leyfisbréf? Bíðum nú við, hvað var fólkið að tala um? Jú, leyfisbréf til þess að mega kenna, hefði nú alveg getað sagt mér það sjálf. Jæja, og hvað gerist ef ég er ekki komin með þetta leyfisbréf? Það er nefni- lega það, ég verð ekki að fullu metin sem kennari og fæ þar af leiðandi ekki rétt út- borgað fyrr en pappírinn er komin í höfn. Þá er best að drífa sig og redda þessum snepli en hvað skyldi maður borga fyrir herlegheitin? Nú, ekki meira en 5000 kr., það er ágætlega sloppið og hvað hef ég svo þetta leyfi lengi? Ævilangt? Verð að kynna mér þetta betur. Það leggst vel í mig að fara að kenna, ég hlakka til að mennta þjóðhöfðingja fram- tíðarinnar og hafa þannig óbein áhrif á heimssöguna. Notalegt að hafa smá áhrif, hvað ætli hafi klikkað á námsárum Adolfs Hitlers? Skyldi fyrrum barnaskólakennari hr. Ólafs Ragnars Grímssonar hafa reddað leyfisbréfinu sínu í tæka tíð? Er ég kæru- laus? Verður það kannski einkennandi fyrir mig sem kennara að koma ekki nógu vel undirbúin, gleyma formsatriðunum, papp- írsvinnunni? Það hlýtur að vera martröð hvers kennara. Verð að kaupa mér sjálfs- hjálparbækur, má ekki láta koma aftan að mér, má ekki verða fyrir höggi, þarf að vera alvitur, upplýsinganáma, fullkomin fyrir- mynd til munns og handa... Ég verð að viðurkenna að nemendurnir leggjast misvel í mig, ég efast um að við eigum öll skap saman. Námsörðugleikar, lesblinda, athyglisbrestur, ofvirkni - þetta kennarastarf virðist ekkert sérstaklega létt, ég held ég verði að rifja upp glósurnar mínar - hefði ekki verið gáfulegt að bjóða upp á áfanga í lyfhrifafræði í Kennó? Ég má ekki láta greiningar hafa áhrif á mig, má ekki mismuna, má ekki draga í dilka, má ekki mislíka við neinn... má ekki... má ekki... Yo! kennaramenntuð! Á jörðina með þig, þér þarf ekki að líka vel við alla nemendur, muna bara að vera sanngjörn, reyna að koma á gagnkvæmri virðingu og öðlast traust þeirra. Göfug markmið en hvernig næ ég þeim? „Bannað að brosa fram að jólum“ aðferðin hljóm- ar ekkert sérstaklega vel. Skyldi ég missa tökin ef ég byrja að brosa strax í dag? Orðin skólanámskrá og kennslu- áætlun hljóma kunnuglega. Mikið ósköp er ég annars fegin því að hafa Aðalnámskrána til að styðjast við. Hvar lagði ég nú aftur þessa kennslu- biblíu frá mér? Ekki fara á taugum, nýúskrifuð, hún getur ekki verið langt undan. Ég verð að viðurkenna að ég finn til óöryggis ef ég legg námskrána frá mér langan tíma í einu og þreifa reglulega eftir henni í skólatöskunni. En hvað er í gangi, ég sem var svo sjálfstæð og fór eigin leiðir. Af hverju hengi ég nú líf mitt við skruddu sem úreldist hvort sem er á nokkurra ára fresti? Geta foreldrarnir sakað mig um vanrækslu eða jafnvel kært mig ef ég næ ekki að halda almennilega utan um einstaklingsmiðuð færnimarkmið í anda fjölgreindarkenningar? Hefur bók með lagaígildi eitthvert lagalegt gildi þegar á reynir? Gæti ég misst leyfisbréfið? Skólastjórnendur eru alveg með stefnu skólans á hreinu, kennaraliðið Þankar í upphafi kennslu 24 Umræðan um stuðning við nýja kenn- ara er loks að komast á skrið og sem innlegg í hana fékk Skólavarðan nýút- skrifaðan kennara til að setja niður þanka sína í upphafi kennslu, vænt- ingar og verkefni. Hlakka til að mennta þjóðhöfðingja! Dagbók nýútskrifaðs kennara Verð að kaupa mér sjálfshjálparbækur, má ekki láta koma aftan að mér, má ekki verða fyrir höggi, þarf að vera alvitur, upplýsinganáma, full- komin fyrirmynd til munns og handa... Skyldi ég missa tökin ef ég byrja að brosa strax í dag?

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.