Skólavarðan - 01.10.2002, Side 23
Aðspurð um hvað væri átt við með skóla
fyrir alla sagði Sylvía að hugsunin væri sú
að skipulag skólastarfs væri það fjölbreyti-
legt og sveigjanlegt að allir nemendur
fengju tækifæri til að styrkjast og þróast í
samræmi við eigin getu og forsendur. Oft
væri líka talað um skóla án aðgreiningar.
Þessi hugmyndafræði hefði lengi verið
höfð að leiðarljósi í skólastarfi á Norður-
löndum. Megintilgangurinn með NordSpes-
vefnum væri að auðvelda mönnum að fylgj-
ast með umræðu og þróunarstarfi sem bygg-
ist á þessari sýn og jafnframt að efla norræna
samvinnu um kennslu nemenda með sér-
þarfir.
Sylvía ítrekaði að stöðugt yrði algengara
að kennsla nemenda með sérþarfir færi
fram í almennum skólum og almennum
bekkjum og útfærslan á námi væri því mis-
munandi. NordSpes-vefurinn ætti því að
geta orðið stuðningur fyrir kennara sem
sinna nemendum með sérþarfir hvar sem
þeir eru og vonandi svarað einhverjum af
þeim fjölmörgu spurningum sem óhjá-
kvæmilega vakna í tengslum við starfið.
Hvers konar efni má finna á vefnum?
Almennt má segja að sjónum sé beint að
þeim þáttum sem eru forsenda þess að
kennari geti sinnt nemendum með sér-
kennsluþarfir á árangursríkan hátt. Þar má
finna upplýsingar um framboð og aðgang
að nýju námsefni á Norðurlöndum, hvaða
aðferðum er beitt til að móta námsum-
hverfi, úttektir á ýmsum sviðum sérkennslu
svo eitthvað sé nefnt og loks eru á vefnum
fréttir af ýmsu sem er efst á baugi í löndun-
um hverju sinni. Einnig er auðvelt að
finna þar krækjur í heimasíður helstu nor-
rænna stofnana og félaga á þessum vett-
vangi.
Hvernig ber notandinn sig að?
Á NordSpes er lögð áhersla á fimm meg-
insvið sem öll ná yfir fjölmörg atriði: Skól-
inn fyrir alla, UT, Skólaþróun, Símenntun
og Námsgögn. Innan hvers sviðs er efninu
raðað í þrjá flokka, í fyrsta lagi
námsörðugleikar, í öðru lagi líkamlegir og
líffræðilegir erfiðleikar og í þriðja lagi
félagslegir og tilfinningalegir örðugleikar.
Þessi þrískipting er fengin frá OECD og
notuð til að auðvelda mönnum að finna
efni á vefnum. Allri flokkun fylgja svo viss-
ar takmarkanir og nemandi með sérþarfir
getur þurft aðstoð sem fellur undir einn,
tvo eða alla þrjá ofangreinda flokka. Not-
andinn getur því þurft að fara á milli til að
finna þær upplýsingar sem hann leitar að.
Er íslenskt efni á NordSpes?
Já, það er heilmikið af íslensku efni inni á
NordSpes-vefnum og tæpast of djúpt í ár-
inni tekið að segja að þar sé sennilega
meira af íslensku efni um sérkennslu í
vefrænu formi en á nokkrum öðrum ís-
lenskum vef enn sem komið er.
Íslendingar voru með í að þróa vefinn frá
byrjun og lögð var áhersla á að þýða allar
forsíður og efnislýsingar á íslensku ásamt
völdum greinum og nú er hægt að opna
vefinn beint á íslensku http://www.nord-
spes.org/islenska. Þótt mikið hafi verið þýtt
höfum við ekki haft bolmagn til að þýða
allt efnið á vefnum yfir á íslensku. Það má
líka velta fyrir sér hvort ástæða er til að
leggja í slíkan kostnað ástæða þar eð all-
flestir Íslendingar eru færir um að lesa
Vefanest i
26
Skólinn fyrir alla er yfirskrift norræna
sérkennsluvefjarins NordSpes. Ef litið er
inn á vefinn má finna þar fjölbreytilegt
efni um skólastarf á Norðurlöndum.
Skólavörðunni lék hugur á að fræðast
meira um tilurð vefjarins og tilgang og
leitaði í því skyni til Sylvíu Guðmunds-
dóttur ritstjóra hjá Námsgagnastofnun,
en ritstjórn á vefnum hér á landi er í
höndum Námsgagnastofnunar.
Gefðu þér tíma
til að líta inn á NordSpes!
http://nordspes.org/islenska
Á NordSpes-vefnum getur þú
meðal annars fundið eftirfarandi:
• Námsgögn - löguð að ólíkum námsþörfum (N)
Á norska skólanetinu er tiltekið svið helgað námsgögnum sem sniðin eru að ólíkum
námsþörfum.
• KVIS - í átt til betri sérkennslu (DK)
Danska menntamálaráðuneytið hefur látið gefa út bækling þar sem sagt er frá gæða-
stjórnunarverkefninu KVIS.
• Gæðaþróun í almennri kennslu og sérkennslu (FIN)
Finnska menntamálaráðuneytið hefur ýtt úr vör nýju verkefni sem hefur að markmiði
að auka gæði í almennri kennslu og sérkennslu.
• Fyrsta útskrift frá Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti (IS)
Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti útskrifaði sex nemendur í vor.
• Með sama rétt: Um námsgögn fyrir nemendur með námserfiðleika og erlendan
bakgrunn (SE)
• LURT - náms- og kennslugögnum breytt með tilliti til táknmáls (N)
LURT er gagnvirkt kennsluefni í táknmálskennslu sem er ætlað að hjálpa heyrandi fólki
til að tileinka sér þekkingu á sviði norska táknmálsins.
• ETAI: Bætt skilyrði til náms. Fjölþjóðlegt rannsóknar- og þróunarverkefni 1998 - 2001 (IS)
Hin síðari ár hefur í æ ríkara mæli verið litið á virka blöndun (inclusion) sem leið til að
efla gildi skólanáms fyrir ungt fólk.
„Á NordSpes-vefnum er sjónum beint beint að þeim þáttum sem eru forsenda þess að kennari geti
sinnt nemendum með sérkennsluþarfir á árangursríkan hátt,“ segir Sylvía Guðmundsdóttir.