Skólavarðan - 01.10.2002, Blaðsíða 24
skandinavísk tungumál. Hins vegar verðum við að þýða íslenska efnið
til að það nýtist félögum okkar á hinum Norðurlöndunum. Í því sam-
bandi hefur iðulega komið á óvart hve sjaldgæft er að stofnanir hér á
landi hafi aðgengilegar upplýsingar um starfsemi sína á ensku eða
Norðurlandamálum á heimasíðu.
Þá má geta þess að allt efni er auðkennt með stöfum landanna og
því auðvelt að átta sig á hvaðan það er.
Hvernig er vefurinn uppfærður?
Miðað er við að vefurinn sé uppfærður mánaðarlega og gert ráð fyr-
ir að ritstjórar bæti við nýju efni, hver frá sínu landi. Til að fylgjast
með nýju efni er þægilegast fyrir notendur að gerast áskrifendur að
veffréttabréfi NordSpes sem er sent út mánaðarlega í tölvupósti með
upplýsingum um nýtt efni. Hnappur inn á fréttabréfið er á forsíðunni.
Hvernig er framkvæmd og ritstjórn NordSpes-vefjarins háttað?
NordSpes er þróunarverkefni sem nýtur stuðnings norrænu ráð-
herranefndarinnar og norrænu ráðuneytanna fram til ársins 2003 en
þá er gert ráð fyrir að ráðuneyti hvers lands taki við stjórnun þess.
Umsjón verkefnisins er í höndum norrænnar ritstjórnar en í henni
sitja ritstjórar útnefndir af menntamálaráðuneytum hvers lands fyrir
sig. Þeir starfa með starfshópi (ritstjórn) hver í sínu landi til að tryggja
gæði efnis hvers lands fyrir sig. Norræna verkefnisstjórnin er í hönd-
um Læringssenteret í Noregi, á Íslandi hefur Námsgagnastofnun um-
sjón með verkefninu. Þeir sem hafa áhuga á að vita meira um skipulag
og tilurð vefjarins fá allar upplýsingar á NordSpes undir hnappnum
Um NordSpes.
Sylvía sagðist að lokum vilja nota tækifærið til að hvetja alla sem
þetta lesa að hafa samband við sig ef þeir eiga efni í fórum sínum sem
þeir telja að eigi erindi á vefinn. Enn er stór hluti vefsins krækjur í
aðra vefi en stefnt er að því að birta þar greinar sem eru sérstaklega
skrifaðar fyrir NordSpes, einkum dæmi um nýbreytni í skipulagi og
kennsluháttum þar sem tekist hefur að mæta ólíkum þörfum nemenda
með góðu móti. Hún sagði einnig að ritstjórnin sæktist eftir að heyra
skoðanir manna á vefnum, hann væri í stöðugri þróun og afar mikil-
vægt að fá ábendingar um það sem betur mætti fara.
Vefanest i
27