Skólavarðan - 01.10.2002, Blaðsíða 25
Ráðstefna fyrir leikskólastjórnendur verður haldin á vegum
Faghóps leikskólastjóra í Súlnasal Hótel Sögu, föstudaginn
1. nóvember 2002, kl. 9.00-15.30.
Á ráðstefnunni fjallar bandaríska fræðikonan Sue Baldwin
um leiðir til að vinna gegn kulnun og streitu í starfi, undir heit-
inu Managing for Success and Sanity. Sue Baldwin er þekktur
fyrirlesari og ráðgjafi í Bandaríkjunum og hefur m.a. haldið fyr-
irlestra á ráðstefnum NAEYC samtakanna. Einnig hefur hún
skrifað nokkrar bækur og má þar nefna bókina Lifesaver.
Heimasíða hennar er www.suebaldwin.com
Ráðstefnustjórar verða leikskólastjórarnir Jónína Konráðs-
dóttir og Ólöf Helga Pálmadóttir.
Ráðstefnugjald: Félagar í Faghópi leikskólastjóra kr. 6.800,-
aðrir kr. 8.300,-. Innifalin eru ráðstefnugögn, kaffiveitingar og
léttur hádegisverður.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 150 og hafa leikskóla-
stjórar forgang að skrá sig til 10. október. Öðrum stjórnendum
er velkomið að skrá sig en fara á biðlista fram að þeim tíma.
Skráning fer fram á netfanginu fl@ki.is
Athygli er vakin á því að bækur Sue Baldwin verða til sölu á
ráðstefnunni.
Við skráningu þarf að gefa upp nafn, kennitölu, starfsheiti og
hvort viðkomandi er félagi í Faghópi leikskólastjóra. Einnig
þarf að koma fram hvort greitt er með beiðni, staðgreitt eða
hvort senda á reikning.
Faghópur leikskólastjóra
Námskeið um notkun persónubrúða til að
vinna gegn fordómum barna
Tvö námskeið um notkun persónubrúða til að vinna gegn
fordómum barna verða haldin í Kennaraháskóla Íslands 19. og
24. október nk. Þeim er ætlað að veita leiðsögn í notkun svo-
nefndra persónubrúða eða lífssögubrúða (persona dolls) sem
eru öflugt tæki til að vinna gegn fordómum og ranghugmynd-
um ungra barna. Þátttakendur vinna í hópum, velja sér brúðu
og skapa henni persónulýsingu og sögu. Brúðurnar eru síðan
notaðar til að fjalla um tilbúnar aðstæður er snerta fordóma og
mismunun og hvernig má virkja börnin til þátttöku.
Um persónubrúðurnar
Persónubrúður eru brúður sem kennarar breyta úr lífvana
hlutum í „fólk“ og börnin kynnast þeim sem einstaklingum.
Þær heimsækja börnin, venjulega í samverustundum, til að
segja þeim frá góðri og slæmri reynslu sinni. Börnin verða
fljótt vinir þeirra - taka þátt í gleði þeirra og sýna þeim samúð
þegar þær eru leiðar, hlusta á sögur þeirra og hjálpa þeim að
leysa vandamál sín. Hafa ber í huga að brúðurnar eru ekki leik-
föng barnanna.
Persónubrúður (persona dolls) hafa verið notaðar með góð-
um árangri í leikskólum og grunnskólum í ýmsum löndum
með börnum allt að tíu ára aldri. Nú er hægt að fá persónu-
brúður á Íslandi.
Kennarar: Babette Brown leikskólakennari og félagsfræðing-
ur, Carol Smith leikskólakennari og sérkennari.
Skráning: http://simennt.khi.is/
Umsjón: Hanna Ragnarsdóttir lektor hannar@khi.is veitir
nánari upplýsingar um námskeiðin og brúðurnar.
Námskeið fyrir kennara í Þjóðleikhúsinu
Leiklist á að vera fyrir alla!
Sú sannfæring að leiklist eigi brýnt erindi inn í íslenska
skólakerfið, bæði sem kennsluaðferð og ekki síst sem sjálf-
stæð listgrein, liggur til grundvallar stofnunar fræðslu-
deildar við Þjóðleikhúsið. Eitt helsta markmið deildarinnar
er því að tryggja að grunn- og framhaldsskólakennarar hafi
aðgang að upplýsingum og þjálfun í notkun leiklistar í sínu
starfi.
Tvö námskeið eru fyrirhuguð nú á haustönn á vegum deild-
arinnar. Hið fyrra verður haldið helgina 28. og 29. september,
frá kl. 10.30 til 16.30 báða dagana, og er ætlað bæði grunn- og
framhaldsskólakennurum ásamt leikurum með kennslur-
eynslu. Didi Hopkins, reyndur leiklistarkennari frá breska þjóð-
leikhúsinu leiðbeinir á námskeiðinu. Hún mun taka fyrir hvern-
ig tengja má leiklist hefðbundnu skólastarfi á sem fjöl-
breyttastan hátt og miðar við að allir kennarar, óháð aldri
nemenda þeirra og kennslugrein, geti notið góðs af. Nám-
skeiðið verður túlkað og kostar kr. 10.000. Áhugasamir eru
beðnir um að hafa samband við Vigdísi Jakobsdóttur, deildar-
stjóra fræðsludeildarinnar sem veitir allar nánari upplýsingar
og tekur við skráningum. Netfangið er: vigdis@leikhusid.is , og
síminn 585 1241.
Námskeið fyrir kennara sem hafa áhuga á að leiðbeina nem-
endum sínum í leikritun verður haldið tvo fyrstu laugardagana
í nóvember og á einu mánudagskvöldi í sama mánuði undir
stjórn Karls Ágústs Úlfssonar. Námskeið þetta er haldið í sam-
vinnu við leiklistardeild Listaháskóla Íslands og verður því fylgt
eftir á tvo vegu. Annars vegar geta þeir kennarar sem ákveða
að kenna nemendum sínum leikritun (sem valáfanga eða sem
hluta af íslenskukennslu) fengið stuðning á vorönninni frá fag-
fólki stofnananna tveggja. Hins vegar er hugmyndin að halda
einþáttunga / örleikrita-samkeppni fyrir framhaldsskólanema í
vor. Nokkur bestu verkin verða verðlaunuð með því að vera
leiklesin af leikaraefnum LHÍ, á Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss-
ins fyrir opnum dyrum. Skráning kennara á námskeiðið fer
fram með því að senda tölvupóst á olga@lhi.is
Heimasíða fyrir fræðsludeild Þjóðleikhússins er í vinnslu, og
opnar síðar í haust. Þar verður hafsjór af upplýsingum um leik-
hús og leiklist, sem ætti að geta nýst kennurum á ýmsan hátt,
bæði til gagns og gamans. Síðuna verður hægt að nálgast í
gegnum heimasíðu leikhússins; www.leikhusid.is
Fræðsludeild Þjóðleikhússins þjónar sem ráðgjafarþjónusta
og upplýsingaveita leikhússins til kennara á öllum skóla-
stigum.
Frá orlofssjóði
Vetrarleiga
1) Í vetur verða í boði níu staðir fyrir félaga í Kennara-
sambandi Íslands, alls 43 leigueiningar:
Sóleyjargata 33, 4 íbúðir og 5 herbergi
Sóleyjargata 25, 6 íbúðir í nýju orlofshúsi
Ásabyggð við Flúðir, 13 orlofshús með heitum potti
Heiðarbyggð við Flúðir, 6 ný orlofshús með heitum potti
Kjarnaskógur við Akureyri, 3 orlofshús með heitum potti
Vaðnes í Grímsnesi, 2 orlofshús með heitum potti
Lyngholt í Grímsnesi, 1 orlofshús með heitum potti
Eystra Miðfell í Hvalfirði, 1 orlofshús með heitum potti
Akurgerði í Ölfusi, 2 orlofshús með heitum potti
Hægt er að panta húsin og íbúðirnar með allt að fjögurra
mánaða fyrirvara en staðgreiða þarf við bókun.
2) Afsláttarmiðar á Flugleiðahótel
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands býður félagsmönn-
um sínum afsláttarmiða á Flugleiðahótelin í vetur.
Hver afsláttarmiði gildir fyrir tveggja manna herbergi með
baði og morgunverði fyrir tvo.
Orlofssjóður niðurgreiðir þessa gistingu og býður upp á tvö
tilboð á niðurgreiddu verði:
1. Flugleiðahótelin í Reykjavík (Hótel Esja og Hótel Loftleið-
ir), Flughótelið í Keflavík, Hótel Selfoss og Hótel Rangá: Kr.
4900,- nóttin.
2. Flugleiðahótelin Hótel Kirkjubæjarklaustur, Hótel Flúðir
og Hótel Hérað á Egilsstöðum: Kr. 4300,- nóttin.
Hver miði reiknast sem tveir orlofspunktar í frádrátt.
Sala afsláttarmiðanna er á skrifstofu Kennarasambands Ís-
lands að Laufásvegi 81 í Reykjavík, sími 595 1122, netfang
orlof@ki.is
Miðarnir eru í sölu á tímabilinu 1. október til 30. apríl. Hægt
er að panta og gefa upp greiðslukortanúmer eða fá miðana
senda í ábyrgðarpósti.
Frétt i r, smáauglýs ingar og t i lkynningar
28