Skólavarðan - 01.03.2003, Blaðsíða 16
Myndir af
sýningu
Myndirnar hér á opnunni eru frá
sýningunni Skóli á nýrri öld sem
var sett upp í Ráðhúsi Reykjavíkur
og stóð yfir dagana 15.-16. febrúar
síðastliðinn. Þetta samstarfsverk-
efni Fræðslumiðstöðvar Reykjavík-
ur, Skólastjórafélags Reykjavíkur
og Kennarafélags Reykjavíkur
tókst með eindæmum vel og vakti
verðskuldaða athygli. Í lok sýning-
ar voru sex skólum veitt hvatning-
arverðlaun en ákveðið hefur verið
að veita árlega sex til átta slík
verðlaun fyrir þróunar- og ný-
breytnistarf í skólum.
Að þessu sinni fengu þrír grunnskólar,
Laugarnesskóli, Vogaskóli og Öldusels-
skóli, verðlaunagrip og viðurkenningarskjal
fyrir þróunar- og nýbreytniverkefni. Aðrir
þrír skólar, Laugalækjarskóli, Fellaskóli og
Breiðholtsskóli, fengu viðurkenningarskjal
fyrir verkefni sem þeir hafa unnið.
Auglýst var eftir tilnefningum í desem-
ber sl. og bárust alls 53 frá skólum, kenn-
urum, foreldraráðum og foreldrafélögum.
Auk þess barst ein tilnefning frá nemenda-
ráði skóla og önnur frá forstöðumanni
borgarstofnunar.
Við afhendingu hvatningarverðlaunanna
sagði Stefán Jón Hafstein formaður
Fræðsluráðs að öll verkefnin 53 væru at-
hyglisverð og merkileg þróunarverkefni,
fælu í sér nýbreytni eða væru einfaldlega til
fyrirmyndar og merki um framúrskarandi
skólastarf. Markmið hvatningarverðlauna
Fræðsluráðs Reykjavíkur er að:
• Veita grunnskólum í Reykjavík jákvæða
hvatningu í starfi.
• Vekja athygli á því gróskumikla starfi
sem fram fer í grunnskólum Reykjavíkur.
• Stuðla að auknu nýbreytni- og þróun-
arstarfi í grunnskólum Reykjavíkur.
Breiðholtsskóli hlaut viðurkenningu
fyrir verkefnið Fjölmenningarvefur
Breiðholtsskóla sem sagt var frá í 8. tölu-
blaði Skólavörðunnar í fyrra. Vefurinn er
að sögn dómnefndar nýbreytni í nýbúa-
kennslu og einnig samþætting við kennslu í
samfélagsgreinum og upplýsingatækni.
Lesendur geta kynnt sér vefinn á slóðinni
http://breidholtsskoli.ismennt.is/
fjolmenning/
Fellaskóli hlaut viðurkenningu fyrir
verkefnið Kynslóðir saman í Breiðholti
sem dómnefnd áleit gott dæmi um tengsl
grenndarsamfélags og skóla. Markmið
verkefnisins er að gefa nemendum tækifæri
til að eiga samveru með eldri borgurum,
veita innsýn í mismunandi þekkingar- og
reynsluheima og styrkja íslenska tungu og
sagnahefð. Verkefnið hefur forvarnargildi
fyrir nemendur og styrkir gildismat þeirra
og dómgreind með því að tengja gamla
reynslu við nýja. Kynslóðaverkefnið hefur
verið í gangi í nokkur ár í samstarfi Fella-,
Selja- og Hólabrekkuskóla og félagsmið-
stöðvarinnar í Gerðubergi. Það er unnið á
þann hátt að nemendur sækja félagsmið-
stöðina heim átta sinnum yfir skólaárið og
eru með eldri borgurum í ýmsu félagsstarfi.
Þeir koma á vegum skólans en án fylgdar
kennara og þjálfast í að vera kurteisir og
prúðir og sýna virðingu og góða umgengni
í ókunnugu umhverfi.
Laugalækjarskóli hlaut viðurkenningu
fyrir verkefnið Framfaramöppur í
tungumálanámi á unglingastigi. Þar er
markvisst unnið að því að nemendur öðlist
sjálfstæði í námi, beitt er fjölþrepa kennslu-
aðferðum og nám verður einstaklingsmið-
aðra en verið hefur. Nemendur skrásetja
vinnu sína og framfarir með því að safna
verkefnum sem þeir hafa unnið
í framfaramöppu. Þeir leggja
sjálfir mat á vinnu sína og rök-
styðja fyrir kennara og foreldra.
Einnig skrá þeir í lok hverrar
kennslustundar og dags hvernig
hefur gengið og hvað þeim
finnst um verkefni dagsins.
Laugarnesskóli var verð-
launaður fyrir verkefnið
Smíðavöllur. Í rökstuðningi
dómnefndar er sagt að komið sé
til móts við athafnaþrá og sköp-
unargleði nemenda, sérstaklega drengja, og
þeir virkjaðir til verka á jákvæðan hátt með
einfaldri lausn á oft erfiðu viðfangsefni í
skólastarfi. Verkefnið fólst í að útbúnar
voru spýtur, plötur, kubbar og spírur sem
nemendur gátu raðað saman eða hnýtt eftir
kúnstarinnar reglum. Þeir bjuggu til turna,
virki, leynistaði og fleira, en markmiðið var
að auka fjölbreytni í leikjum á skólalóð.
Vogaskóli var verðlaunaður fyrir
verkefnið Ábyrgð nemenda sem felst í
markvissri vinnu stjórnenda að því að auka
Skól i f ramtíðar innar
18