Skólavarðan - 01.03.2003, Síða 22

Skólavarðan - 01.03.2003, Síða 22
Stærðfræði 24 Í samræmdu prófi í stærðfræði sem nem- endur 10. bekkjar þreyttu vorið 2002 var eftirfarandi stærðfræðiþraut: Tvö tré, 20 m og 30 m á hæð, hafa reipi bundið úr toppi annars trésins að rótum hins, eins og sjá má á myndinni. Hversu langt frá jörðu skerast reipin? Dæmið vakti mikla athygli og mikið um- tal sem sést m.a. á því að það rataði a.m.k. tvisvar sinnum inn á síður Morgunblaðsins. Margir voru þeirrar skoðunar að þyngdar- stig dæmisins væri of hátt fyrir þetta skóla- stig. En er það svo? Í upplýstu þjóðfélagi hljótum við að gera þá kröfu að a.m.k. hluti sextán ára unglinga ráði við dæmi af þessu tagi, annars er illt í efni. Við hljótum að fara fram á að í stærðfræðiprófi séu einhver dæmi í erfiðari kantinum en hæfi samt námsefninu. Við viljum að duglegir og skarpir nemendur fái verkefni sem þeir þurfa að brjóta heilann um, annars er hætt við að stærðfræðin verði leiðigjörn og flatneskjuleg sem hún alls ekki er. Dæmið er býsna áhugavert því það býður upp á fjölmargar leiðir til lausnar og það er hæfi- lega erfitt. Víkjum nú að lausn dæmisins. Í Morgunblaðinu var bent á að einfaldast væri að leysa dæmið með því að hagnýta sér einshyrnda þríhyrninga. Lausnin gæti þá verið á eftirfarandi veg: Við skiptum 40 m línunni í x og 40 - x eins og sýnt er á næstu mynd. Nú er h 30 – = –– x 40 svo að 40h = 30x (1) Einnig er h 20 –––– = –– 40-x 40 svo að 40h = 800 - 20x (2) Leysum jöfnur (1) og (2) saman og fáum 30x = 800 - 20x þ.e.a.s. 50x = 800 svo að x = 16 Þar af leiðandi er 40h = 30 · 16 = 480 svo að h = 12 m Athugasemd: Í Morgunblaðinu var ennfremur bent á aðrar úrlausnaleiðir, m.a. þá að finna h með mælingu, þ.e.a.s. mælingu með reglu- stiku. Það getur tæpast talist ásættanleg að- ferð á stærðfræðiprófi því að skýringar- myndir eru sjaldnast í réttum hlutföllum. Hins vegar var ekki bent á leið sem að mati höfundar er bæði einföld og fljótvirk. Hún byggist á því að innleiða hnitakerfi þannig að x-ás liggi eftir 40 m línunni og y-ás eftir 30 m línunni.* Útreikningar verða þá á eft- irfarandi veg: „Ég verð því miður að viðurkenna að sú náms- grein sem mér mislíkaði mest í skóla var stærð- fræði. Ég hef oft velt þessu fyrir mér og ég held að ástæðan sé sú að stærðfræðin gefur engin færi á andmælum.“ -Malcolm X (1925-1965) * Það kann að vera að almennt sé ekki á færi nemenda 10. bekkjar að leysa dæmið með þessum hætti, en við látum aðferðina fljóta með til gamans. Söguleg þraut Í síðasta tölublaði Skólavörðunnar gerðust þau leiðu mistök að tvær villur slæddust inn í grein Jóns Þorvarðarsonar, sem er endurbirt af þeim sökum hér á opnunni. Við biðjum höfund og lesendur okkar afsökunar á þessum mistökum. Villurnar voru eftirfarandi: Á einum stað stóð skrifað h = 30/40 = 3/4 í stað h = -30/40 = -3/4. Á öðrum stað stóð skrifað y = h - 12 m í stað y = h = 12 m.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.