Grallarinn - 29.11.1924, Blaðsíða 2

Grallarinn - 29.11.1924, Blaðsíða 2
2 GRALLARINN €ri*allai*iiiii Vikublaö, kemur út um hverja helgi. Gefið út af heldri mönnum, en al- menningur fær hann fyrir sama verð, 25 aura hvert blað. Auglýsing- ar kosta l‘/» kr. hver centimeter jafnt fyrir alla. Peir sem ekki eru heldri menn, verða að borga fyrirfram. Afgreiðslan er á Laugaveg 67, opin alla virka daga frá 1—2 og 6—7 e. m. JBoffivœði þetta uildi ritstjórinn ekki taka i blað sitt, þótti of uœmið hólio um sig, í sínu eigin blaði, þetta lík- aði höfundi Iwœðisins miður, en uegna þess, hve mjög hann er hrifinn af ritstjóranum, vill hann fyrir hvern mun koma því á prent, og hefir mi beðið Grallarann fyrir það. — — Ekki þótti ástœða til að synja rúms kvœðinu, þó höf- um vér felt úr fjögur erindi sem þótti Jull strembin. Þitt upplit er djarft eins og dómkirkju- rottu, eða draugs upp úr hrognkelsi í sjó; hátiðlegt eins og hjá hundi á mottu, eða hesti sem treður snjó. Þín gáfa er að vöxtum sem vatnahests- eða vélbyssa skotin i spón; [trýni sterk eins og faldur á likklæðalíni, eða linsoðið hafragrjón. Þitt viðmót er blítt eins og blógrýtishola, eða bráðpestar rolla til sjós; liflegt og þitt eins og lognmollugola eða lífstykki af mey onúr Kjós. Þín rödd er sem marrið í riðguðum hjör- eða rottur í pjáturdós; [um frjálsleg og drýldin sem freðýsa á börum, og framliðinn Háfur til sjós. Þinn vilji er sterkur sem vel bökuð kaka, eða vindbarin krákuskel, sem hugur hjá þeim er með handfæri og hríðdraga skötusel. [skaka, Þú ert glöggur og skýr, eins og geitur í eða Grallar’ í þurrnm læk; [regni, undir hugvekjulestri, hjá hollendskum eða hrútur með brennivínskæk. [þegni, Spekingssvip berð’ eins og spikfeitur eða sprenglærður bíóþjónn; [tuddi kurteis og bliður sem nunna í nuddi eða nýskorinn hefilspónn. Svo þolinn og auðmjúkur þú ert í deilum, það eru dæmalaus býsn; sem maurild’ að berjast við mýgrút af og munkur við holdlega fýsn. [keilum Þitt hár er svo mikið sem moðhrug’ á eða marsvína fylking i sveit; [bási, kastast það til eins og kraftvindar blási, um kviðhár á norðlendskri geit. Að vallarsýn ertu sem úlpa í treyu, með ógurlegt viðáttugat; undirpilsfaldur á óléttri meyju, eða ólgandi grútarfat. Liðugur ert’ eins og lúða á dekki, eða lifsglaður boli á is, margvís og fyndinn sem múkki á hekki og mentaðar kynbótalýs. Þin rithönd er fögur sem roðhreistur- rifnar af grásleppukvið; [flisar, sem illhærutæjur í endaþarm grísar, æxli á korktappasmið. Popúler erí’ eins og pumpa í barki, eða portérahringur á stöng; framhleypinn kálfur í Fransmannaþjarki eða feilnotuð jaxlatöng. Þín stefna er soðin úr saltpétri grjónum, salmiaksglussa og krit; óskild og frásnúin hyggni, hugsjónum, sem hænsni með kverkaskít.' Þinn stjórnmálaferill er fullur af herkju, frjálslyndi kýrvisku þrótt; sem kerling i eldhús i kafi og sterkju á koldimmri sumardagsnótt. Þitt orð er sem gustur úr ofni sem reykir ormur sem smýgur í tré vindursem þurkuðum þorskhausum feykir þruma er strádrepur fé. Miss. Hótelina Jaxlapina Monl Blank von Garisank. Þegar við rérum saman Stjáni Blái, Oddur yitgranni og ég. Eftir hálfs mánaðar fyllirí, á »Hólar« gamla, komum við loks til fyrirheitna landsins. Jafnskjótt og þessi gamla fljótandi brennivínstunna, slepti dregginu í botn- inn á Austfirði, réðust Qærðbúar, (sem héldu sér á floti í skéljum sínum á höfninni), til uppgöngu á farþegadrek- ann, og þótti mér sem þeir færu ekki fimlega. Stjáni stóð við uppganginn og heils- aði þeim, sem hann þekti um leið og hann vippaði þeim inn á dekkið, sem ekki þótti ugglaust að væru einfærir. Oddur sat á lúkukarminum með rungandi timburmenn, ekki var hann upplitsdjarfur, þá, veslingur, horfði á sprottna tásaumana á kúskinnsskónum sinum, og leitaði í skeggi sinn með þumalfingrunum. Ég stóð eins og Egiftsk múmía, á ristverkinu yfir fýrplássinu, sá þaðan alt sem gerðist miðskips, og leið þar svo ljómandi vel. Rúðningin. Nú byrjaði ráðingarhjalið, margir voru með skipinu sem ætluðu til róðra, og réðu sig í hvelli hjá alkyns óhrein- indasokkum. Ég þekti alla útgerðarmenn á Austfjörðum, og hló með sjálfum mér, þegar ég heyrði að Pétur voðalegi og Gvendur sem einu sinni var hjá Hákoni hinum rika, voru að ráða sig hjá brauð- lausa lávarðinum, þetta fanst mér svo gott grín, að ég hnipti alveg ósjálfrátt i síðuna á feitri kellingu sem vappaði aftur dekkið, hún misti ballansinn, og dalt með þyngsta hluta líkamans beint ofan á höfu'ðið á Oddi, nú heyrðist »hellela« »hellela« og Oddur stóð upp með þeim krafti að kellingin sentist í fangið á Stjána, sem greyp hana á lofti og setti hana raeð lipurð og kurteisi á spilkopp- inn, en af því spilið var í gangi, sent- ist hún eins og píla, niður í lest, snér- ist við í loftinu og kom niður sitjaudi á lengjuna sem var verið að hífa upp, svo upp úr lestinni kom hún með sama hraða og hún fór niður, en áður en kallarnir gátu slegið út, hljóp ég til og greyp hana í fang mér, setti hana var- lega á dekkið við hlið mér, tók vinstri hönd hennar í hægri handarkrika minn, og leiddi hana fram eftir. Hún var dösuð eftir þessa gymnastik, og leit til mín hálfgerðu glóðarauga, en ég byrjaði að afsaka mig á þessa Ieið: »Hágöfuga hefðarfrú«, — »uss«, sagði hún, »ég er ekki frú«. »Nú«, sagði ég, »jómfrú þá«. »Nei, nei, því síður«, sagði hún, svo ég varð alveg í vand- ræðum og hætti við ræðuna, kvaddi kvensuna og flýtti mér til félaganna, sem voru nú að ráða sig hjá Simba svaðilfara eftir að hafa afsagt skiprúin hjá mr. Horfellis. Ég þekti Simba vel gekk til hans, og hnipti í hann, og sagði hann þá glaður: »þarna kemur ein- mitt maðurinn sem mig vantar, viltu róa hjá mér í sumar Rrynki minn, á bát með Oddi og Stjána?« »Við sláum því föstu«, sagði ég, og þar með vornm við allir ráðnir á sama bát. Fyrsti róður. Við höfðum setið og étið, hvílt okkur og drukkið kaffi og út í það, þegar Simbi fór að tala um hver okkar ætti nú að verða formaður, ég benti á Odd,

x

Grallarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Grallarinn
https://timarit.is/publication/1190

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.