Víkurfréttir - 28.08.1980, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 28.08.1980, Qupperneq 1
2. tbl. 1. árg. Fimmtudagur 28. ágúst 1980 rCÉTTIC Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs: Nýbyggingunni seinkar Verktakinn hefur ekki staðið við gerða samninga [ apríl sl. var gert ráð fyrir að hægt yrði að tengja nýja og gamla hluta Sjúkrahúss Kefla- víkurlæknishéraðs 1. sept. nk., og taka þá i notkun efri hæð ný- byggingarinnar. Blaðið hafði samband við Eyj- ólf Eysteinsson, forstoðumanns sjúkrahússins, og spurði hann hvort sú áætlun stæöist. ,,Nei, það er Ijóst, því miður, að við verðum enn einu sinni fyrir vonbrigöum," sagði Eyjólfur, „þvi ekki veröur hægt að taka efri hæðina í notkun fyrr en 1. októ- ber i fyrsta lagi, þar sem verktaki getur ekki skilaö verkinu fyrr en 7.-10. september. Orsökin er sú að verktakinn hefur ekki staðið við gerða samninga, en sam- kvæmt útboðsgögnum og samn- ingi sem upphaflega var gerður viö hann, átti hann sð Ijúka efri hæð hússins 28. febrúar sl. Stjórnarkreppan og seinkun fjár- lagagerðar hafiö vissulega áhrif á framgang byggingarinnar, þ.e.a.s. við gátum ekki pantaö tæki, áhöld og búnað sem þarf til efri hæðarinnar, fyrr en búiðvar að afgreiða fjárlögin. Flest þessara tækja koma erlendis frá og er afgreiöslufrestur á þeim 3-4 mánuðir. Þessi tæki eru nú til staðar en koma okkur að engu gagni vegna þess aö ekki er búið að Ijúka byggingunni. Núna stendur á smíði hurða og upp- setningu þeirra," sagði Eyjólfur að lokum. Framkvæmd þessi er á vegum Innkaupastofnunar rikisins og hún hefur bein viöskipti við verk- takann, sem er Reynir hf. í Kópa- vogi. Blaðið hefur fregnað að verktakinn sé nú beittur dagsekt- um og fái ekki greiddar verð- bætur á verk sitt frá 1. ágúst. Radarmælingar lögreglunnar: Lögreglan hefur ekkert jc ^ segir Þórir Maronsson, 90 TGI9 aöstoðaryfirlögregluþjónn lögreglumaður í Keflavík verið dæmdur nýlega fyrir slikt. Þá sagöi einn þeirra sem tekinn var að er hann var að nálgast Slökkvistöðina þá hafi skyndilega maöur hlaupið út úr bifreið sem stóð þar við vegkant- inn og í veg fyrir hann. Jú, það var lögreglan, og sagði maðurinn að ef einhver hefði verið á verulegum hraða þá hefði lögregluþjónninn með þessu athæfi sínu verið að bjóða hætt- unni heim. Blaðið hafði samband við Þóri Maronsson, aðstoöaryfirlög- regluþjón í Keflavík og spurði hann fyrst hvort það væri lög- legt að framkvæma hraöamæl- ingar á þennan veg. Þórir kvað það fyllilega lög- legt, menn væru þarna brotlegir, hvort sem bifreiö lögreglunnar væri merkt eða ekki. Ástæöan fyrir því að þessi bíll var notaöur en ekki hinir, er einfaldlegasúað stærri bilarnir væru frekar bundnir í öörum verkefnum, þar Framhald á 9. aiðu Að undanförnu hefur Lögregl- an í Keflavík gert mikla rassíu íaö mæla ökuhraöa bifreiöa í Keflavík og Njarðvík, sem óhætt er að segja að hafi borið árang- ur, þvi margir bílar hafa veriö stöðvaöir. Mælingar þessar hafa óneitanlega mælst illa fyrir, og þá aöallega vegna þess að lög- reglan notaðiaöhlutatilómerkta bifreið við mælingarnar og finnst mörgum að með því hafi hún komiö aftan að mönnum. Hafa margir haft samband við blaöið og spurt hvort þetta athæfi lög- reglunnar sé löglegt, þarna hafi hún lagt gildru fyrir menn, en eins og kunnugt er þá hefur einn Á tímum jafnréttis Þeir sem litið hafa yfir þann hóp fólks er missti atvinnu sina vegna lokana frystihúsanna, hafa veitt því athygli að upp- sagnir ná aðeins til annars kyns- ins, því hvergi er karlmönnum sagt upp, heldur aðeins konum. Virðist þar ekki skipta máli hvort um er að ræða 15 ára skólastrák og hins vegar 18 ára skólastúlku, eins og við vitum dæmi um. Stúlkan missti atvinnuna en ekki strákurinn. Á þeim tíma jafn- réttis sem nú er, eru þetta ein- kennileg vinnubrögð. epj. Hraöamælingar lögreglunnar Slógu tvær flugur í einu höggi Það spaugilega atvik gerðist nú á dögunum, er lögreglan var meö hraðamælinga,,rassíu“ sína, að þeir stöövuðu konu eina sem vará51 km hraða. Þetta kom nokkuö á konuna og í fáti varð henni þaö á aö læsa lyklana inni í bíl sínum er hún fór yfir í lög- reglubifreiðina til að gefa skýrslu. Nú voru góð ráð dýr. Hún hringdi í son sinn og bað hann að koma með aukalykla til sín á vettvang. Sagt er að sonurinn hafi hlegið er hann heyrði að móðir hans heföi veriö tekinn fyrir of hraðan akstur, og eins og góðum syni sæmir þá fór hann strax af stað með lyklana. Þegar hann kom með lyklana var hann einnig tekinn fyrir of hraðan akstur, eða 56 km hraða, og þá hló móðirin. Nú er bara að bíða og sjá hvort lögreglan sýni ekki á sér góðu hliðina og veiti þeim fjölskylduafslátt af sektinni . . . Viðlegu- kantur leng- ist I Njarð- víkurhöfn Nýlega kom m.s. Rangá til Njarövíkur með efni í stálþil, en maö því mun viðlegukantur í Njarðvíkurhöfn lengjast um 70 metra. Þegar því er lokið mun batna til muna aöstaöa fyrir vöruflutningaskip og þar með talin gámaskip í Landshöfninni, en það hefur háð höfninni að skip þau er flytja vörur til Varnar- liðsins hafa ekki átt gott með aö athafna sig ef önnur skip eru í höfninni. Varöandi aðrar framkvæmdir við höfnina er það að segja, aö verið er að vinna að bættri lýs- ingu á hafnargaröinum í Kefla- vík. epj. AUGLÝSIÐ í VÍKUR-fréttum!

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.