Víkurfréttir - 28.08.1980, Blaðsíða 5

Víkurfréttir - 28.08.1980, Blaðsíða 5
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 28. ágúst 1980 5 Bæjarbókasafn Keflavíkur: Lesstofur verða á báðum hæðum Kjallarinn verður fyrir börnin ( sumar hefur veriö unnið að ýmsum framkvæmdum við bóka- safnshúsið að Mánagötu 7 í Keflavík. Húsið hefur verið málað að utan svo mikill munur er nú þangað að líta. Síðan hafa verið töluverðar framkvæmdir i kjallara hússins, en þar átti eftir að taka í notkun þrjú herbergi, og það er núna langt komiö. Búið er að setja upp hillur en eftir er að ganga frá Ijósum, mála smávegis og teppaleggja. Að sögn Hilm- ars Jónssonar bókavarðar, er gert ráð fyrir aö taka kjallarann í notkun i síðasta lagi í október og þá veröur húsið aö mestu leyti komiö allt í notkun, að undan- teknu einu herbergi sem gert er ráð fyrir að hafa fyrir hljóm- plötur. ,,Við gerum ráð fyrir að með þessu á verði lesstofa á báðum hæðum," sagði Hilmar, ,,fyrir börnin í kjallaranum en fyrir full- oröna á miðhæðinni. Við þetta rýmkast mikið á miðhæðinni, en þar eru nú mikil þrengsli. (kjall- aranum er líka geymsla fyrir tímarit og eldri bækur, og má segja aö þar sé verðmætasti hluti safnsins og er þetta ákaflega mikilvægt, vegna þjónustu okkar við skólana. Við höfum Ijósrit- unartæki og Ijósritum fyrir þá úr tímaritum, sem við lánum ekki nema við höfum tvö eintök af þeim, en allir geta komið og fengið að lesa þau á efstu hæð- inni ef þeir vilja." Mjög mikil aðsókn hefur verið að safninu í sumar og má t.d. nefna aö í maí voru lánuö út 4430 bindi, i júní 4639 og í júlí 5613. Fyrirsjáanlegt er að húsnæði safnsins að Mánagötu 7 verður gernýtt á næstu tveimur árum. Telur bókasafnsnefndin því nauðsyn á að hugað verði að nýjum stað, þar sem nýbygging yrði reist fyrirsafnið. Bygginga- fulltrúi hefur bent á lóðina á horni Aöalgötu og Túngötu, sem mu vera um 1400 ferm. Telur nefndin þennan stað mjög heppilegan bæði hvað varðar stærð og staðsetningu, og hefur óskaö eftir áliti bæjaryfirvalda á þessari hugmynd sinni. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu (slands og bókafull- trúa ríkisins er lágmarks fram- lag Keflavíkurbæjar til safnsins kr. 6.214 á hvern íbúa, en íbúa- fjöldi var 6.539 í árslok 1979. ( framhaldi af framanskráðu er lágmarksframlag bæjarins til safnsins fyrir 1980 kr. 40.633.346 Nefndin hefur þvi óskað eftir lagfæringu á framkominni fjárhagsáætlun Keflavíkurbæjar til samræmis við þessar upplýsingar. Hilmarsýnir okkur héreintakaf vikublaðinu Erninum, semgefið varút hér í Keflavík á dögum Baldurs Hólmgeirssonar. Vantar smiði Vantar 2-3 samhenta smiði, sem unnið geta sjálf- stætt. Góð aðstaða. AlexanderJóhannesson Simi 2336 Slökkvitækja- þjónusta Suðurnesja Kolsýruhleðsla - Dufthleðsla. Slökkvitæki og reykskynjarar. Viðhald og viðgerðir á flestum tegundum slökkvitækja. SLÖKKVITÆKJAÞJÓNUSTA SUÐURNESJA Háaleiti 33 - Keflavík - Sími 2322 Bensínafgreiðslumaður óskast til starfa frá og með 1. september n.k. FITJANESTI, sími 2410 Prjónakonur Nú kaupum við einungis (opapeysur, heilar og hnepptar. Móttaka að Bolafæti 11, Njarðvík, miðvikudagana 10. og 24. september kl. 13-15. ÍSLENZKUR MARKAÐUR HF. Lögtaksúr- skurður Keflavík Að beiðni bæjarsjóðs Keflavíkur úrskurðast hér með, að lögtak má fara fram til tryggingar gjaldföllnu útsvari og aðstöðugjöldum ársins 1980 í Keflavík, allt auk vaxta og kostnaðar. Lögtakið má fara fram að liðnum 8 dögum frá birt- ingu þessa úrskurðar. Bæjarfógetinn i Keflavik, 20. ágúst 1980. Sigurður Hallur Stefánsson settur.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.