Víkurfréttir - 28.08.1980, Side 6

Víkurfréttir - 28.08.1980, Side 6
6 Fimmtudagur 28. ágúst 1980 VÍKUR-fréttir Fagurt umhverfi verðlaunað Dómnefnd skrúðgarða og um- hverfis fyrir Keflavík árið 1980 hefur nýlega veitt viðurkenn- ingu fyrir fegursta blómagarö- inn, fegurstu götuna, fyrirendur- bætur og viöhald á eldra húsi, fyrir samræmda heildarmynd húss og garðs, fyrir mjög smekklega samræmingu á lóða- mörkum, og fyrirfrágang og um- hverfi á nýbyggðu húsi. Dómnefndin var sammála um að fegursti blómagarðurinn í ár sé að Hringbraut 97, eign hjón- anna Sigríðar Marelsdóttur og Sigurðar Steindórssonar. Byrj- uðu þau hjónin aö rækta upp garðinn 1973, sem aöallega er byggöur upp af fjölærum plönt- um sem komiö er fyrir af þekk- ingu og smekkvísi. í dag eru í garðinum um 300 afbrigði og er þetta lang fjölbreyttasti blóma- garðurinn í Keflavík. í ár varfarið inn á þá nýbreytni að veita viðurkenningu fyrirsam- ræmda heildarmynd götu, og varð fyrir valinu gatan Langholt, sem er fyrsta gatan hér i Kefla- vík sem íbúarnir við götuna tóku sig saman og steyptu sjálfir gangstéttir á sinn kostnað. Er þetta einstakt framtak í Keflavík og þó að víöar væri leitað. Einnig veitti dómnefndin hjón- unum Ragnheiði Lúðvíksdóttur og Halli Þórmundssyni viöur- kenningu fyrir endurbætur og viðhald á eldra húsi, að þessu sinni Túngötu 25 (Kristinarbúð), sem er byggt rétt eftir aldamótin og stendur í miðjum gamla bænum. Viðurkenningur fengu hjónin Ingibjörg Björnsdóttir og Einar Magnússon, Háholti 8, fyrir sam- ræmda heildarmynd húss og garðs sem fellur einstaklega vel saman. Enn ein nýbreytni íárerviður- kenning fyrir mjög fallega og smekklega samræmingu á lóöa- mörkum milli gatnanna Baldurs- garðs og Fagragarðs, og er garður hjónanna Magnúsínu 3uðmundsdóttur og Jóns Ey- steinssonar að Baldursgarði 2 gott dæmi um það. í ár tekur nefndin einnig upp þá nýbreytni að veita viðurkenn- ingu fyrir frágang og umhverfi nýbyggðs húss, aö þessu sinni íbúöir fyrir aldraða við Suður- götu, og var gaman aö sjá aö þegar fyrstu íbúarnir fluttu inn var jafnframt búið að snyrta og ganga frá öllu utanhúss á mjög svo smekklegan hátt. Dómnefnd skrúðgaröa og um- hverfis skipa nú: Trausti Björnsson, form. Sæmundur Benediktsson Vilhjálmur Gíslason Elínrós Eyjólfsdóttir Ragnheiður Sigurgísladóttir Fegurstl blómagarðurlnn, að Hrlngbraut 97. ÁMAN auglýsir: Erum flutt að Hafnargötu 16. Mikiö og gott úrval efna til öl- og víngerðar. Einnig ýmis tæki, mælar og ílát. Bragðefni í miklu úrvali. Lítið við og reynið viðskiptin. ÁMAN Hafnargötu 16 - Keflavik - Sími 2553 Túngata 25 (Kristínarbúö). Langholt, hlaut viðurkenningu fyrlr samræmda heildarmynd götu. Smekkleg samræming á lóðamörkum Baldursgarðs og Fagragarðs. Háholt 8, hlaut viðurkenningu fyrir samræmda heildarmynd húss og garðs.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.