Víkurfréttir - 28.08.1980, Page 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 28. ágúst 1980 7
Fegursti garðurinn í Njarð-
vfk 1980 að Klapparstíg 4
Umhverfisnefnd Njarðvíkur
hefur nú í annað sinn veitt verð-
laun fyrir fegurstu garðana í
Njarðvík. Aö þessu sinni voru
veitt þrenn verðlaun, en þau
hlutu eftirtaldir aðilar:
Guðfinna Jónsdóttir og Mar-
teinn Sigurðsson að Klappar-
stíg 4. Garður þeirra varð fyrir
valinu sem fallegasti garðurinn í
Njarðvik.
Þá var þeim Jóhanni Guð-
mundssyni og Guðmundi Brynj-
ólfssyni að Klapparstíg 16 veitt
verðlaun fyrir góða umhirðu á
lóð og húsi um áraraðir.
Hjónin Pálína Gisladóttir og
Sigurgeir Kristjánsson, Holts-
götu 6, fengu viðurkenningu fyrir
fallegt hús og snyrtilegan og vel
hirtan garð.
Að sögn Ólafs Eggertssonar
form. Umhverfisverndar Njarð-
víkur, þá stóð einnig til að veita
fyrirtæki viðurkenningu fyrir
snyrtimennsku, en þrátt fyrir
mikla leit fyrirfannst ekkert fyrir-
tæki í Njarðvíkum sem verð-
skuldaöi slíka viöurkenningu að
mati nefndarinnar. Aðspurður
sagði Ólafur að það færðist stöð-
ugt í vöxt i Njarðvík aö fólk leggði
mikla vinnu í garða sina, og á
þessu ári - ári trésins - hefði
orðið mikil aukning á því að fólk
setti niöur ýmis konar tré og
runna í garða sína.
Fallegasti garðurinn að Klapparstíg 4
Klapparstigur 16, góð umhirða á husi og lóð i áraraðir.
Fallegt hús og snyrtllegur og vel hirtur garöur að Holtsgötu 6.
AUGLÝSING
um aðalskoðun bifreiða í lögsafnarum-
dæmi Keflavíkur, Njarðvíkur,
Grindavíkur og Gullbringusýslu
Mánudaginn 1. sept. Ö-5051-5125
þriðjudaginn 2. - Ö-5126-5200
miðvikudaginn 3. - Ö-5201-5275
fimmtudaginn 4. - Ö-5276-5350
föstudaginn 5. - Ö-5351-5425
mánudaginn 8. - Ö-5426-5500
þriðjudaginn 9. - Ö-5501-5575
miðvikudaginn 10. - Ö-5576-5650
fimmtudaginn 11. - Ö-5651-5725
föstudaginn 12. - Ö-5726-5800
mánudaginn 15. - Ö-5801-5875
þriöjudaginn 16. - Ö-5876-5950
miðvikudaginn 17. - Ö-5951-6025
fimmtudaginn 18. - Ö-6026-6100
föstudaginn 19. - 0-6101-6175
mánudaginn 22. - Ö-6176-6250
þriðjudaginn 23. - Ö-6251-6325
miðvikudaginn 24. - Ö-6326-6400
fimmtudaginn 25. - Ö-6401 og yfir
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar
sínar að Iðavöllum 4 í Keflavík og verður skoöun
framkvæmd þar á fyrrgreindum dögum milli kl.
8.00-12.00 og 13.00-16.00. Á sama stað og tíma
fer fram aðalskoðun annarra skráningarskyldra
ökutækja, s.s. bifhjóla, og á eftirfarandi einnig
við um umráðamenn þeirra.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja
fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir
því að bifreiðagjöld fyrir árið 1980 séu greidd og
lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á réttum degi, verður hann látinn sæta
sektum samkvæmt umferðarlögum og bifreiðin
tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Þetta
tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn i Keflavík,
Njarðvík, Grindavik og
Gullbringusýslu
Lóöaúthlutun
í Keflavík
Bygginganefnd Keflavíkur óskar eftir umsóknum í
einbýlishúsalóðir í Heiðarhverfi, IV. áfanga.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Skilafrestur er til 15. september 1980.
Byggingafulltrúi