Víkurfréttir - 28.08.1980, Síða 11

Víkurfréttir - 28.08.1980, Síða 11
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 28. ágúst 1980 11 Jarl KE 31 á djúprækju- veiðum Sl. mánudag kom m.s. Jarl KE 31 til Njarðvikur meö 17-18 lestir af frosinni úthafsrækju. Jarl veiddi þessa rækju á Dorn- banka á um hálfum mánuði og er rækjan fryst í neytendaumbúðir um borð í skipinu. Þetta var fyrsta veiðiferð skipsins á úthafs- rækju, en ákveðið er að skipiö haldi áfram þessum veiðum fram eftir hausti. Að sögn Páls Axelssonarfram- kvæmdastjóra Jarls hf., sem á og gerir út skipiö, verður rækjan nú flutt út sjóleiöis með gámum á Japansmarkað. Aflaverðmæti úr veiðiferð sem þessari er áætlað 35-40 milljómr króna. Skipstjóri á Jarli er Jóhann Magni Jóhannsson. epj. EIGNAMIÐLUN SUÐURNESJA Hafnargötu 57 - Keflavík Simi 3868 Opiö frá kl. 10 til 18 alla daga nema sunnudaga. Þarftu að kaupa? Þarftu að selja? Úrval eigna á söluskrá. TEK AÐ MÉR ALLA ALMENNA GRÖFUVINNU Jafnt stór sem smá verk. Guömundur Sigurbergsson Mávabraut 4c - Keflavfk Sfmi 2564 TRÉSMÍÐI HF. Byggingaverktakar Brekkustíg 37 - Njarðvík Simi 3950 Skrifstofan er opin kl. 9-5 mánudagatil fimmtudaga. Föstudaga kl. 9-12. Verðlaunahafar körfuboltadeildar ÍBK 1979-1980. Talið frá vinstri: Stefán Arnarson besti leikmaöur 1. flokks, Viðar Vignisson fyrir mestu framfarir 2. flokks, Eðvald Eövaldsson besti leikmaður minni bolt- ans, Guðbrandur Stefánsson fyrir mestu framfarir 4. flokks, Björn V. Skúlason besta vftaskyttan, og Sigurður Valgeirsson form. körfuknattleiksdeildarinnar. Þá hlaut Stefán Hjálmarsson verðlaun fyrir mestu framfarir 3. flokks. Meistaraflokkur ÍBK í körfu- bolta keppir í 1. deildinni í vetur. Eins og menn muna voru liösmenn ÍBK í öðru sæti í 1. deild á síöasta keppnistímabili. Vantaöi þá aðeins herslumun- inn á að komast i úrvalsdeildina. En núna er mikill hugur í körfuknattleiksmönnum og á aö leggja allt í sölurnar til að komast alla leið. Hafa þeir efngið til liðs við sig Bandaríkjamann, Terry Read að nafni, til aö þjálfa og keppa meö þeim í vetur. Æfingar eru aö hefjast þessa dagana í iþróttahúsinu í Njarð- vík, en um leið og nýja iþrótta- húsið hér í Keflavík kemst í gagn- ið verða æfingar fluttar þangað. Er óskandi aö nýja húsiö komist sem allra fyrst í gagnið, svo hægt verði aö æfa þar og keppa í körfuknattleik á komandi keppnistímabili. Fyrsti leikur (BK í deildinni verður 18. okt. við Borgnesinga og er hann settur á í nýja húsinu. Er óskandi að því þurfi ekki að breyta. Eru allir hvattir til að mæta á leikina í vetur og styðja við bakið á strákunum. Fjármálin eru alltaf stórmál í íþróttahreyfingunni. Er áformað að fara af stað með flöskusöfnun í ár eins og gert var með góðum árangri í fyrra. Vonandi taka bæj- arbúar vel á móti körfuknatt- leiksmönnum, þegar þeirganga í húsin til að safna flöskum núna í haust. En best væri aö stuðn- ingsmenn mættu á leikina í vetur, því fleiri áhorfendur gefa fleiri krónur, og þá þarf ekki að kviða vetrinum. Axel Nikolaison hlaut verölaun fyrir mestu framfarir meistaraflokks. NJARÐVÍKURBÆR Útsvar Aðstöðugjald Annar gjalddagi útsvars og aðstöðugjalds er 1. september. Þeir gjaldendur sem ekki hafa greitt fyrsta gjalddaga er bent á að gera það fyrir 15. september til að forðast kostn- að og frekari óþægindi. Bæjarsjóður - Innheimta Körfuknattleiksvertíðin að hefjast hjá ÍBK

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.