Víkurfréttir - 25.09.1980, Blaðsíða 5

Víkurfréttir - 25.09.1980, Blaðsíða 5
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 25. september 1980 5 Kór Ytri-Njarövíkurkirkju: Vetrastarfið að hefjast Vetrastarf Kirkjukórs Ytri- Njarðvíkur er að hefjast og veröur að þessu sinni mjög fjöl- breytt. Nýtt messuform sem sam- þykkt var á síðustu prestastefnu opnar möguleika á meiri fjöl- breytni í messunni hvað tónlist viðvíkur. Auk þess að syngja við guðs- þjónustur hálfsmánaðarlega mun kórinn vinnaaöjólaverkefni og tónleikum sem verða í marz. Þar flytur kórinn "Messu í G-dúr" eftir Schubert, sem flutt var við vigslu kirkjunnar, auk þess eitt eða tvö önnur verkefni. Kórinn er meö afbrigðum ferðaglaðurog stendurtilað fara eina helgi í Munaðarnes í októ- ber, heimsækja Garðakirkju í nóvember og siðast en ekki sist aö fara í feröalag til Noregs í lok maí. Þá mun kórinn endurgjalda heimsókn "Collegium Cantum" frá Þrándheimi, sem kom hingað í júní, svo og heimsaekja vinabæ Njarðvíkur, "Fitjar" i nágrenni Bergen. Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju BÓNUSVINNA Viljum ráða smiði og laghent fólk til framleiðslu- starfa. Upplýsingar gefnar á staðnum hjá verkstjóra, ekki í síma. RAMMI HF. v/Bakkastíg, Y-Njarðvík Menningar- og líknarmál eru aðal stefnumál kvenfélaga í Gullbringu- og Kjósarsýslu Styrktarfélag aldraöra á Suöurnesjum Aðalfundur Kvenfélagasam- bands Gullbringu- og Kjósar- sýslu var haldinn í Gagnfræða- skólanum í Keflavík, laugardag- inn 6. september sl. Tólf kvenfé- lög eru í sambandinu sem telur um 1100 félagskonur. 60 konur sóttu fundinn, sem var að þessu sinni í boði Kvenfélags Kefla- Skríllinn í Nýja Bíói „Biógestur", sem bráséríNýja Bíó sl. föstudagskvöld, kom aö máli viö blaöiö og sagöi farir sínar ekki sléttar. Kvað hann i fyrsta lagi langt vera liðiö á myndina þegar loksins fór að heyrast hvað talað var i henni, fyrir skrílslátum unglinga sem voru argandi og veinandi, en enginn heföi komið til þess aö þagga niður i þeim. Bíóforstjór- inn heföi aö vísu litiö inn augna- blik og þá skánaöi ástandið aðeins, en allt fór í sama horf strax og hann fór aftur. Þá sagðist bíógesturinn hafa þakk- að fyrir aö hafa ekki lappirnar á næsta manni fyrir aftan sig um hálsinn, en því hefði hann ekki kynnst í biói áður. I hlénu var ill- fært niður á salernin fyrir ungl- ingunum, sem sátu reykjandi í stiganum og þurfti hann að klofast yfir þá án þess að þeir hreyfðu sig, þrátt fyrir að hann bæði þá um það. Þegarsvo niöur kom voru þar fyrir nokkrir 10-12 ára pollar, allir keöjureykjandi. Til sölu notað ullargólfteppi, rúmir40 ferm. Uppl. í síma 3428. víkur. Gestir fundarins voru for- maður Kvenfélagasambands ís- lands, frú María Pétursdóttir, og frú Sigríður Ingimarsdóttirfráfé- lagi fatlaðra, "Alfa". Fluttu báðar þessar konur fróðleg erindi. Dvöl á Löngumýri Eldri borgurum stendur til boða 2ja vikna dvöl á Löngumýri í Skagafirði. Bókband, leður, hekl o.fl. Farið verður 6. okt. Uppl. í síma 2172. Aöal stefnumál kvenfélaganna eru menningar- og líknarmál. Ferðanefndln KJÖT- OG SLÁTURMARKAÐUR Seljum kjöt og slátur í sláturhúsi voru í Grindavík. Pöntunarsími 8190. KAUPFÉLAG SUÐURNESJA NJARÐVÍKURBÆR Útsvar Aðstöðugjald Þriðji gjalddagi útsvara og aðstöðugjalda er 1. október n.k. Greiðið á gjalddögum og forðist þannig dráttarvexti og önnur óþægindi. Bæjarsjóður - Innheimta

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.