Fréttablaðið - 07.11.2016, Side 37
Það myndi æra óstöð-ugan að velta vöngum yfir hinu stórbrotna fylgishruni Samfylk-ingarinnar á umliðnum misserum, sem endaði
í eftirminnilegu afhroði flokksins
í síðustu kosningum. Látum hér
duga að sinni þá greiningu að
ástæðu lítils fylgis flokksins megi
sennilega að miklu leyti rekja til
þess hversu fáir greiddu honum
atkvæði …
Margt gott og þarflegt hefur
verið um þetta skrifað og verður
eflaust gert því að sjaldan hefur
jafnmargt fólk komið sér saman
um að greiða flokki jafnfá atkvæði.
Eflaust heimsmet í fylgisleysi án
atrennu. Stillta vinstrið – hið stóra
kjörlendi Samfylkingarinnar –
ákvað að fara annað. Þetta var eins
og hjónaskilnaður – Samfó var
ekki mamma eins og Hallgrímur
Helga sagði: Samfylkingin var Fyrr-
verandi. Kjósandinn kominn á krá
að skima eftir nýjum förunaut og
ætlaði aldrei aftur heim.
Margar skýringar sem sé. Ég
staldraði við eina í liðinni viku, sem
höfð var eftir þeim glögga stjórn-
málafræðingi, Eiríki Bergmann. Þar
sagði hann margt gott að vanda og
svo var þetta haft eftir honum:
„Eiríkur segir þorra þjóðarinnar,
alla almenna launþega sem lifa frá
mánaðamótum til mánaðamóta,
vera hinn íslenska verkalýð. „Sam-
fylkingin hætti að tala við þetta
fólk. Það fór að tala um lýðræð-
isumbætur, femínisma, umhverfis-
vernd og svona fínni blæbrigði
stjórnmálanna. Allt fín málefni í
sjálfu sér en rótin í Samfylkingunni
er launabarátta. Barátta alþýðunn-
ar fyrir sínum réttláta skerf í þjóð-
félaginu. Í yfirstandandi kosninga-
baráttu heyrði ég ekki neitt sem
minnti á þennan uppruna.““
Að krefjast lægri launa
Eflaust er það rétt hjá Eiríki að SF
náði ekki eyrum almennings þegar
hún sat í ríkisstjórn og lét Stein-
grím stjórna fjármálunum og Ice-
save og fól Jóni Bjarnasyni að semja
(ekki) við ESB. Náði svo ekki að
segja sögu sína og stjórnar sinnar í
kjölfarið. Ekki varð maður þó var
við, í umræðum um kjaramál, að
talsmenn Samfylkingar færu að
láta móðan mása um femínisma
eða umhverfismál. Hefðu kannski
mátt gera það.
Nú er það að vísu svo, að maður
verður einungis var við verkalýðs-
foringja þegar þeir mótmæla því
skörulega að einhver fái jafnhátt
kaup og þeir sjálfir eru með; og
hvarflar stundum að manni að þeir
líti einkum á það sem hlutverk sitt
að krefjast lægri launa – milli þess
sem þeir sitja í stjórnum lífeyris-
sjóðanna sem færðu okkur Gamma
og aðra lífeyrissóða.
Það er hitt, sem vefst fyrir mér
– þetta tal um „fínni blæbrigði
stjórnmálanna“. Látum vera með
„lýðræðisumbætur“: ég reikna með
því að þar vísi Eiríkur til umræðu
í kjölfar stjórnlagaráðstillagna um
auknar þjóðaratkvæðagreiðslur.
Efasemdir um þær eiga vissulega
rétt á sér, og nægir að vísa þar
til Brexit – þar sem fólk dauðsér
unnvörpum eftir illa grunduðu
atkvæði sínu sem ætlað var sem
„yfirlýsing“ um óskyld málefni og
ónóg þátttaka virðist hafa leitt til
niðurstöðu sem meirihluti fólks
er ósáttur við. Og sannast þar, að
það er erfitt að vera vitur eftirá. Og
sé farið lengra aftur, má minna á
niðurstöður úr atkvæðagreiðslu
borgarstjórnar um hundahald, þar
sem sárafáir ómökuðu sig til þátt-
töku, og meirihluti greiddi atkvæði
gegn því að leyfa hundahald í
Reykjavík. Til allrar hamingju
hummaði þáverandi borgarstjórn
þá fráleitu niðurstöðu fram af sér;
enda málefni sem ekki á erindi í
slíkar atkvæðagreiðslur. Meirihluti
kjósenda á aldrei að taka bindandi
ákvörðun um réttindi minnihluta
kjósenda.
Stærstu málin
Nóg um það: hitt vafðist meira
fyrir mér, að Eiríkur skyldi tala
um femínisma og umhverfis-
vernd sem „svona fínni blæbrigði
stjórnmálanna“ og láta að því
liggja að slík mál – þó „fín mál-
efni“ séu – eigi ekki heima meðal
baráttumála Samfylkingarinnar.
Þarna virðist Eiríkur gangast
inn á forsendurnar sem lágu að
baki stofnun Vg, þar sem hópur
fólks kringum Alþýðubandalagið
leitaðist við að skilgreina sig sem
meiri femínista og umhverfissinna
en fólkið í Samfylkingunni. En
hugmyndin var sem sé sú að í Sam-
fylkingunni kæmi saman kringum
tiltekin grundvallaratriði fólk úr
öllum áttum vinstrimennskunnar
– að minnsta kosti fólk úr stillta
vinstrinu – villta vinstrið gæti svo
verið þarna úti á sínu villta svæði.
Fólk með rætur í verkalýðs-
hreyfingunni, kjarabaráttunni,
ætti þá heima með femínistum og
umhverfissinnum, baráttufólki
fyrir mannréttindum, og öllum
þeim sem líta á skatta sem hluta af
réttindum og skyldum borgaranna
og forsendu velferðar fremur
en eignaupptöku eða „ofbeldi“;
aðhyllast félagslegar lausnir
vandamála. Femínisminn er ein af
grunnstoðum SF – Kvennalistinn
einn stofnenda flokksins – þetta
er sýn eða stefna sem varðar ekki
bara réttindi helmings mannkyns,
heldur okkur öll. Og umhverfis-
mál: hvernig er hægt að tala árið
2016 um loftslagsmálin sem „fínni
blæbrigði stjórnmálanna“ eins og
eitthvert pjattmál? Sjálfa spurning-
una um framtíð lífs á jörðinni? Þar
sem hver og einn jarðarbúi verður
að horfa í eigin barm og spyrja sig
daglega: hvað get ég gert? Þetta
er stærsta úrlausnarefni mann-
kyns, og snýst um öll blæbrigði
tilverunnar, bæði þau fínni og hin
ófínni.
VW Polo Beats, verð frá:
3.290.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Upplifun af akstrinum verður allt önnur þegar þú ert með réttu músíkina og þá skipta hljómgæðin
öllu máli. Þess vegna ákvað Volkswagen að fara í samstarf við Beats by Dr. Dre™ og gera Polo sem fer
lengra en nokkru sinni áður í góðum hljómburði. Hlustaðu nú vel og fáðu þér Polo!
www.volkswagen.is
Polo hljómar betur.
5 ára ábyrgð
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag
Stillta vinstrið
En hugmyndin var sem sé sú
að í Samfylkingunni kæmi
saman kringum tiltekin
grundvallaratriði fólk úr
öllum áttum vinstrimennsk-
unnar – að minnsta kosti
fólk úr stillta vinstrinu –
villta vinstrið gæti svo verið
þarna úti á sínu villta svæði.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 7 . n ó v e M B e R 2 0 1 6
0
7
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
6
-2
8
2
0
1
B
3
6
-2
6
E
4
1
B
3
6
-2
5
A
8
1
B
3
6
-2
4
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K