Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.10.2016, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 26.10.2016, Qupperneq 6
Beltone Legend™ Enn snjallara heyrnartæki Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.Bel to ne L eg en d ge ng ur m eð iP ho ne 6 s og e ld ri ge rð um , i Pa d A ir, iP ad (4 . k yn sl óð ), iP ad m in i m eð R et in a, iP ad m in i og iP od to uc h (5 . k yn sl óð ) m eð iO S eð a ný rr a st ýr ik er . A pp le , i Ph on e, iP ad o g iP od to uc h er u vö ru m er ki s em ti lh ey ra A pp le In c, s kr áð í Ba nd ar ík ju nu m o g öð ru m lö nd um . Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN AtvinnA Starfsmannaþjónustan Elja hefur haft milligöngu fyrir tólf dekkjaverkstæði til að manna starfsstöðvar þeirra yfir helsta álagstímann hjá fyrirtækjunum nú í vetrarbyrjun. Þegar hafa komið til landsins rúmlega 80 manns til að leysa úr vanda fyrirtækjanna í þeirri tveggja mánaða törn sem fram undan er. Hópurinn dreifist á 23 starfsstöðvar þessara tólf fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi. Helgi Eysteinsson, framkvæmda- stjóri Elju, segir að upphaflega hafi fyrirtækið Sólning haft samband á vormánuðum og vantað menn. Greiðlega gekk að leysa úr vanda þess fyrirtækis, sem spurðist fljótt út til annarra fyrirtækja sem áttu við sama vanda að etja. „Þarna sameinast í raun tvennt. Lausn á því að það er mjög erfitt að finna vinnandi hendur á Íslandi og hitt að það hentar þessum fyrirtækjum vel að geta fengið starfskrafta í skamman tíma í senn,“ segir Helgi og bætir við að raunveruleg þörf fyrirtækj- anna til að fjölga í sínum hópi sé í raun aðeins um tíu vikur. „Ég held að þetta geri þessum fyrirtækjum kleift að veita betri þjónustu en ella. Þó að aðgangur að fólki væri til staðar myndu þau ekki sjá hag sinn í því að fastráða svona marga,“ en starfsmenn á vegum Elju koma margir frá Litháen, en einnig frá Póllandi, Ungverjalandi og Rúmeníu. Þetta litla dæmi hefur víð- tækari skírskotun þar sem fyrir- tæki í fjölbreyttri starfsemi eiga í erfiðleikum með að fá fólk til starfa. Helgi játar því; Elja hóf starfsemi í janúar og hefur strax fengið hingað til starfa rúmlega 400 manns – en í augnablikinu eru 250 manns við störf á vegum fyrirtækisins hjá fjölbreyttri flóru fyrirtækja. – shá Mönnuðu 23 dekkjaverkstæði með rúmlega 80 útlendingum Dekkjaverkstæðin vantaði mannskap til að setja bifreiðar landsmanna á vetrardekk. Þá var leitað til starfsmannaþjónustu. Fréttablaðið/GVa StJÓRnMÁL Eignir ríkasta eina pró- sents landsmanna jukust um 49 milljarða milli áranna 2014 og 2015. Þetta er meðal þess sem lesa má úr svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Árna Páls Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Meðal þess sem má einnig lesa úr svarinu er að eignir ríkustu fimm prósentanna jukust um 125 milljarða á sama tímabili. Hlutfall þess sama hóps af heildareign allra landsmanna stóð í stað milli ára og er rúmt 31 prósent. Hópurinn sem samantektin mið- ast við samanstendur af einhleyp- um og hjónum en einstaklingar teljast sérstök fjölskylda frá sextán ára aldri. „Það sem vekur sérstaklega athygli mína er að við erum hægt og rólega að feta okkur í átt að misvæginu sem var hér rétt fyrir hrun,“ segir Árni Páll Árnason. Þingmaðurinn hefur lagt fram sambærilega fyrirspurn ár hvert síðastliðin þrjú ár. „Það er mikilvægt að hafa augun á þessari þróun stöðugt. Jöfnuður á ekki að vera umræðuefni í nokkra daga á ári rétt í kringum kosningar. Það er raunveruleg hætta á að þarna slitni í sundur aftur.“ Hann segir að aðgerðir núverandi ríkisstjórnar hafi aukið á ójöfnuð- inn. „Skattbyrðin hefur lent á þeim sem minnst hafa og sértækar aðgerðir hafa sérstaklega nýst þeim sem mest eiga. Það blasir við að að öllu óbreyttu séum við að stefna í sama ástand og ríkti í aðdraganda hrunsins.“ „Þegar horft er á skatttekjur eftir tekjutíundum er grundvallar- atriði að átta sig á því hvort laun hafi hækkað. Ef þau hækka þá þyngist skattbyrðin. Hér hafa laun allra tekjutíunda hækkað gífurlega,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. „Við verðum að muna að námsmenn, sumar- starfsmenn og fólk í hlutastarfi falla í neðstu tekjutíundirnar. Það er ekki eðlilegt að bera saman fólk í hluta- starfi saman við fólk í fullu starfi.“ Ráðherrann vísar meiningum Árna Páls, um að ríkisstjórnin hafi lítið aðhafst, á bug og bendir á skattalækkanir stjórnarinnar og niðurfellingu miðþreps tekjuskatts- ins. Fyrir langflesta hafi tekjuskattur lækkað um 3,3 prósentustig. „Maður með hálfa milljón í tekjur á mánuði stendur því uppi með 160 þúsund krónum meira í árslok en áður.“ johannoli@frettabladid.is Ríkasta prósentið jók eignahlut sinn um 49 milljarða á einu ári Eignir og eigið fé ríkustu fjölskyldna landsins jukust á milli áranna 2014 og 2015. Hlutfallið af heildarfé landsmanna lækkaði hins vegar. Þingmaður segir munstrið minna á árin fyrir hrun og segir ríkisstjórnina aðhafast lítið en þá helst fyrir þá efnameiri. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vísar því á bug. Eignaaukningu landsmanna má að stærstum hluta rekja til verðhækkana á fasteignamarkaði. Fréttablaðið/aNtON briNK Við erum hægt og rólega að feta okkur í átt að misvæginu sem var hér rétt fyrir hrun. Árni Páll Árnason, þingmaður Sam- fylkingarinnar Hér hafa laun allra tekjutíunda hækkað gífurlega. Bjarni Benedikts- son, fjármála- og efnahagsráðherra SAMféLAg Skipulags-, byggingar- og umhverfisnefnd sveitarfélagsins Ölf- uss var í gær kynnt skýrsla frá Orku náttúrunnar vegna frummats á jarð- skjálftahættu vegna niðurdælingar í holur HE-23, 25 og 38 á Skarðsmýrar- fjalli. Nefndin veitti framkvæmdaleyfi fyrir tengingu borholna HE-23, HE-25 og HE-38 á borsvæði við fyrirhugaða flutningsæð fyrir skiljuvatn að niður- dælingarholum HE-37 og HE-38. Með þessari framkvæmd er ekki verið að auka við framleiðslu Hellis- heiðarvirkjunar eða magn skilju- vatns, en tenging á þessum bor- holum sem niðurrennslisholum stækkar svæðið til niðurrennslis og eykur afköst núverandi niðurrennslis- svæðis. Fyrirhugað er að setja hóflegt magn af skiljuvatni í holurnar til að byrja með til að veita þrýsti stuðning við nærliggjandi vinnsluholur, en á sama tíma að komast hjá því að skammhlaup verði milli hola og skyndilegar breytingar í eiginleikum vinnsluhola. Verklagsreglur Orku- stofnunar kveða á um að unnið sé frummat þegar nýta á borholur til niðurdælingar. Tilgangurinn er að fá faglegt mat á hvort líklegt sé að niðurdæling affallsvökva í borholur geti orsakað jarðskjálfta sem valdi hættu eða veru- legum óþægindum. Við borun á hol- unum HE-23 og HE-25 sem boraðar voru haustið 2006 varð ekki vart við jarðskjálftavirkni. Niðurstöður frum- mats benda til að einhver skjálfta- virkni gæti örvast í suðurhluta fjalls- ins, einkum frá holu HE-25. – bbh Skjálftavirkni gæti örvast Skýrsla frá ON um jarðsjálfta var kynnt fyrir Ölfus . Fréttablaðið/VilhElm 2 6 . o k t Ó b e R 2 0 1 6 M i Ð v i k U D A g U R6 f R é t t i R ∙ f R é t t A b L A Ð i Ð 2 6 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 0 -F 2 7 4 1 B 1 0 -F 1 3 8 1 B 1 0 -E F F C 1 B 1 0 -E E C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.