Fréttablaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 20
Tólf uppgjör þriðja ársfjórðungs eru
væntanleg á næstu dögum, fimm í
dag, sex á morgun og eitt á föstudag.
Ljóst er að í vikulok mun ákveðin
mynd verða komin á hvernig árs
fjórðungurinn var hjá helstu fyrir
tækjum landsins. Hagfræðideild
Landsbankans spáir svipaðri afkomu
hjá Icelandair, aukningu hagnaðar
hjá fjölda fyrirtækja, en minni hagn
aði hjá Vodafone og tryggingafélög
unum.
Hagfræðideild Landsbankans gerir
ráð fyrir að rekstrarafkoma Iceland
air verði svipuð og á sama fjórðungi
í fyrra og nálægt því sem spáð var í
síðasta verðmati deildarinnar. Hins
vegar er því spáð að neikvæð þróun
ytri þátta, sér í lagi styrking krón
unnar, valdi því að afkoma á fjórða
ársfjórðungi verði töluvert lakari en í
fyrra. Gangi spár eftir verður EBITDA
ársins 214 milljónir dollara.
Deildin spáir að tekjur og hagn
aður Marel muni aukast milli ára á
þriðja ársfjórðungi. Á fyrsta helmingi
ársins lækkuðu pro forma tekjur um
1,3 prósent og ekki er ólíklegt að
slíkt hið sama gerist á þessum árs
fjórðungi. Ytri vöxtur á árinu 2016
mun líklega skila 20 prósent tekju
vexti. Að mati hagfræðideildarinnar
er þessu tímabili vaxtar að öllum
líkindum lokið.
Spáð er lítilli aukningu í sölu hjá
Vodafone á þriðja ársfjórðungi og að
hagnaður tímabilsins muni dragast
saman um helming milli ára. Engum
stórum breytingum er spáð á fjórð
ungnum.
Því er spáð að hagræðingar
aðgerðir Símans hafi byrjað að skila
árangri á fjórðungnum en að fyrir
tækið muni þó ekki ná að enda árið
innan þess bils sem stjórnendur hafa
gefið upp. Sala mun aukast örlítið
milli ára og hagnaður einnig. Sala fyr
irtækja, Talenta og Staka Automation,
er meginskýring aukins hagnaðar.
Hagfræðideildin áætlar minnkandi
hagnað fyrir skatt hjá öllum trygg
ingafélögunum, samanborið við
sama ársfjórðung í fyrra.
N1 gaf út afkomuviðvörun fyrir
uppgjör fjórðungsins, þar sem kom
fram að rekstur félagsins hafi gengið
mjög vel á fjórðungnum, sérstaklega
vegna fjölgunar ferðamanna. Í ljósi
þess var EBITDA félagsins hækkuð.
Hagfræðideild Landsbankans telur
að þrátt fyrir hækkun sé spáin enn
of lág. Spáð er minni sölu en í fyrra,
hærri EBITDA á fjórðungnum og
meiri hagnaði fyrir tímabilið. – sg
Auknum hagnaði spáð
hjá mörgum félögum
Sushisamba ehf., sem rekur sam
nefndan veitingastað í miðbæ
Reykjavíkur, hagnaðist um 27,9
milljónir króna árið 2015. Hagn
aðurinn jókst töluvert milli ára, en
hann nam 16,6 milljónum króna
árið 2014.
Rekstrartekjur jukust einnig, þær
námu 337 milljónum á síðasta ári,
samanborið við 308 milljónir árið
áður.
Eigið fé í lok ársins nam 21,1
milljón króna og lækkaði það um
fjórar milljónir milli ára. Eignir
í árslok námu 65,7 milljónum,
samanborið við 54 milljónir árið
áður. Skuldir námu 44,6 milljónum
króna, samanborið við 29 milljónir
árið áður.
Í árslok 2015 áttu tveir hluthafar
yfir 10 prósenta eignarhlut í félag
inu, BBN ehf. átti 60 prósenta hlut,
en Gunnsteinn Helgi Maríusson
átti 20 prósenta hlut. Ingimundur
Valmundsson átti 10 prósenta hlut
í félaginu og Sushisamba ehf. átti
10 prósent í sjálfu sér. Sushisamba
var einn af tíu vinsælustu veitinga
stöðum landsins í byrjun árs sam
kvæmt tölum frá Meniga.
Framkvæmdastjóri í árslok var
Gunnsteinn Helgi Maríusson. Árs
verk voru samtals sautján. – sg
Sushisamba hagnast um 28 milljónir
Hagfræðideildin áætlar minnkandi hagnað fyrir skatt hjá öllum tryggingafélög-
unum, samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Fréttablaðið/GVa
Sushi er einn vinsælasti rétturinn á Íslandi.
214
milljón dollara EBITDA er
spáð hjá Icelandair Group
árið 2016.
Sushisamba var
einn af tíu vinsæl-
ustu veitingastöðum lands-
ins í byrjun árs samkvæmt
tölum Meniga
Hagfræðideild Lands-
bankans telur að þrátt fyrir
hækkun EBITDA sé EBITDA
spá N1 enn of lág
GEFÐU ÞÉR TÍMON
Færir þér nauðsynlega sýn
á mannauðinn
i l
i
Tímon.is
Bandaríska fyrirtækið Pentair
Aquatic Eco Systems Ltd. hefur fest
kaup á Vaka fiskeldiskerfum. Vaki,
sem hlotið hefur bæði Nýsköp
unarverðlaun Útflutningsráðs og
Útflutningsverðlaun forseta Íslands,
hefur verið leiðandi afl í vöruþróun
innan fiskeldis um allan heim í þrjá
áratugi.
„Við erum mjög ánægð með þessi
viðskipti og teljum þau mikla viður
kenningu fyrir stöðu og starfsemi
okkar undanfarin ár,“ segir Her
mann Kristjánsson, forstjóri Vaka.
Hann segir kaupin hafa átt sér
nokkurn aðdraganda en Pentair sé
ekki fyrsta fyrirtækið sem sýni Vaka
áhuga. „Sterk staða Vaka á helstu
mörkuðum og öflug nýsköpun,
þar sem beitt er nýjustu tækni við
myndgreiningu og tölvusjón, hefur
vakið áhuga margra aðila, og er
Pentair ekki fyrsta fyrirtækið sem
sýnir Vaka áhuga,“ segir Hermann.
Hann segist sjá mikil tækifæri til
framtíðar fyrir fyrirtækið með
nýjum eiganda.
Áætluð velta á þessu ári er 1,3
milljarðar króna, en rekstrarhagn
aður fyrir afskriftir (EBITDA) í fyrra
var 139 milljónir króna. Verð í
viðskiptunum er trúnaðarmál, en
rekstur fyrirtækisins hefur verið
nokkuð stöðugur undanfarin ár og
afkoman góð.
Hjá fyrirtækinu starfa nú 28
manns hér á Íslandi, auk 22 til
viðbótar í dótturfélögum í Chile,
Noregi og Skotlandi. Yfir 90% af
umsvifum Vaka eru á erlendum
mörkuðum og áherslan hér heima
er á vöruþróun, þjónustu og sölu.
Framleiðslan hefur að mestu leyti
verið hjá íslenskum undirverktök
um sem sinna bæði rafeindavinnu,
stálsmíði og samsetningu af ýmsum
toga. Helstu vörur Vaka eru fiskitelj
arar, búnaður til stærðarmælinga á
eldisfiski, ásamt dælum, flokkurum,
fóðurkerfi og öðrum vörum fyrir
iðnvætt fiskeldi.
Pentair er skráð í kauphöllina í
New York og hefur 30.000 starfs
menn í 60 löndum sem starfa m.a.
innan orkugeirans, matvælaiðn
aðar, vatnsmeðhöndlunar og fjar
skipta og er veltan um átta millj
arðar dollara eða yfir 900 milljarðar
króna. Fyrirtækið sérhæfir sig í bún
aði til vatnshreinsunar og auðgunar
vatnsgæða, hönnun endurnýtingar
kerfa fyrir fiskeldisstöðvar, vatns
dælum, fiskidælum og mælibúnaði
af ýmsum toga.
haflidi@frettabladid.is
Stórfyrirtæki kaupir
Vaka fiskeldiskerfi
Pentair, sem er skráð félag í kauphöllinni í New York, hefur keypt Vaka fiskeldis-
kerfi. Áætluð velta Vaka á þessu ári er 1,3 milljarðar króna. Stöðugleiki hefur
einkennt rekstur Vaka . Bandaríska fyrirtækið sérhæfir sig í vatnsgæðum og
veltir yfir 900 milljörðum króna og er með 30 þúsund starfsmenn í 60 löndum.
Ánægja er meðal forsvarsmanna Vaka fiskeldiskerfa með kaup bandaríska stórfyrirtækisins Pentair á fyrirtækinu. Forstjóri
Vaka sér mikil framtíðartækifæri með nýjum eiganda.
Við erum mjög
ánægð með þessi
viðskipti og teljum þau
mikla viðurkenningu fyrir
stöðu og starf-
semi okkar
undanfarin ár
Hermann Kristjáns-
son, forstjóri Vaka
900
milljarðar er velta Pentair
sem hefur gengið frá kaup-
um á Vaka
2 6 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r4 MArkAðurINN
2
6
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
0
-F
7
6
4
1
B
1
0
-F
6
2
8
1
B
1
0
-F
4
E
C
1
B
1
0
-F
3
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K