Fréttablaðið - 26.10.2016, Síða 34
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
1235 Bela 4. varð konungur Ungverjalands.
1406 Eiríkur af Pommern giftist Filippu af Englandi.
1562 Franskir kaþólikkar náðu Rouen á sitt vald undir stjórn
Antoine de Bourbon Navarrakonungs sem sjálfur særðist til ólífis.
1714 Karl 12. Svíakonungur fór frá Tyrklandi, þar sem hann hafði
dvalið frá því að Svíar töpuðu orrustunni við Poltava 1709, og reið
þvert yfir Evrópu, um Vínarborg og Frankfurt am Main, til Stralsund
í Pommern, sem þá var sænskt, 2.152 km á 14 dögum. Mestallan
tímann fylgdi honum aðeins einn maður.
1775 Georg 3. tilkynnti breska þinginu að nýlendurnar vestanhafs
hefðu gert uppreisn og við því yrði að bregðast á viðeigandi hátt.
1927 Gagnfræðaskólinn á Akureyri fékk heimild til að útskrifa stúd-
enta og var eftir það nefndur Menntaskólinn á Akureyri.
1936 Útvarpsþátturinn Um daginn og veginn hóf göngu sína og
hefur orðið öðrum þáttum lífseigari.
1961 Allmikið hraungos hófst í Öskju og stóð fram í desember.
1965 Reykjanesbraut, eða Keflavíkurvegurinn, fyrsti þjóðvegur á
Íslandi utan þéttbýlis sem lagður var bundnu slitlagi, var formlega
opnuð eftir fimm ára framkvæmdir. Sett var á veggjald, sem inn-
heimt var í tollskýli við Straumsvík þrátt fyrir mikla óánægju bíl-
stjóra.
1973 Bardögum lauk að mestu í Jom Kippúr-stríðinu.
1986 Hallgrímskirkja í Reykjavík var vígð eftir 41 árs byggingarsögu.
Við vígsluna gengu 2.000 kirkjugestir til altaris og var það meiri fjöldi
en áður hafði gerst í kirkjusögu Íslands.
1995 Snjóflóð féll á Flateyri með þeim afleiðingum að tuttugu fór-
ust.
2009 Tilkynnt var að McDonald’s á Íslandi yrði lokað.
Merkisatburðir
Bygging Hallgrímskirkju hófst árið 1941
og stóð yfir allt til ársins 1986 þegar hún
var vígð og er þessi 41 árs byggingarsaga
sú lengsta nokkurrar byggingar hér-
lendis. Guðjón Samúelsson húsameistari
ríkisins var arkitekt Hallgrímskirkju en
hann var fenginn til að teikna kirkju í
Skólavörðuholtinu árið 1937.
„Það var mikill spenningur síðustu
vikurnar hvort þetta hefðist í tæka tíð
sem og það gerði með miklum glæsibrag.
Þarna voru flestir prestar landsins við-
staddir og Vigdís forseti, Jón Helgason
kirkjumálaráðherra líka og svo biskupar
frá Norðurlöndunum. Messunni var
sjónvarpað sem var mikil nýbreytni, ég
held að kirkjuvígslu hafi ekki verið sjón-
varpað áður.
Það var mikið lagt í söng – Mótettu-
kórinn og sálmar eftir Hallgrím Péturs-
son, útsetningar eftir Þorkel Sigur-
björnsson – mjög glæsilegar. Þetta var
einhver allra fjölmennasta messa sem
hafði verið fram að þessu og fjölmenn-
asta altarisganga Íslandssögunnar var
fullyrt – sumir sögðu að þarna hefðu
verið fimmtán hundruð manns,“ segir
Karl Sigurbjörnsson, fyrrverandi biskup
Íslands, sem á þessum tíma var sóknar-
prestur í Hallgrímssókn og viðstaddur
vígsluna.
Árið 1948 var fyrsti áfangi kirkjunnar
tilbúinn en það var kapellan undir
núverandi kór kirkjunnar. Árið 1974
voru turninn og kirkjuvængirnir með
nýrri kapellu fullgerðir og síðan að
lokum árið 1986 var kirkjuskipið vígt
og var það gert á 200 ára afmæli Reykja-
víkurborgar.
„Það átti að ljúka kirkjunni árið 1974
en þá voru 300 ár liðin frá andláti Hall-
gríms Péturssonar, en hann dó árið 1674
– en það tókst nú ekki og þá var stefnt á
200 ára afmæli Reykjavíkur,“ segir Karl.
Árið 1992 var orgelið vígt. Það var
smíðað af þýskum orgelsmiðum og er
15 metra hátt, 25 tonn að þyngd og er
stærsta kirkjuorgel á landinu. Fjármögn-
un orgelsins fór meðal annars þannig
fram að einstaklingar og fyrirtæki gátu
keypt pípur í orgelinu sem svo voru
merktar kaupendum.
„Það sem er sérstakt við bygginguna
og það sem ég held að sé einsdæmi við
byggingu opinberrar byggingar á Íslandi
var að hún var meira og minna fjár-
mögnuð af einstaklingum og sjálfboða-
vinna var gríðarmikil. Þegar verið var að
undirbúa vígsluna kom fjöldi fólks að
því að undirbúa hana – hreinsa útbygg-
ingar eftir iðnaðarmennina og gera klárt
fyrir vígsluathöfnina, bera inn stóla og
bekki. Þetta voru allt sjálfboðaliðar sem
unnu myrkranna á milli og miklu meira
en það,“ segir Karl en hann tók að sjálf-
sögðu sjálfur þátt í að vinna við að koma
öllu þarna í stand fyrir stóru stundina
ásamt föður sínum og syni.
stefanthor@frettabladid.is
Hallgrímskirkja vígð
við sögulega athöfn
Á þessum degi fyrir þrjátíu árum var Hallgrímskirkja vígð og við það tækifæri gengu
2.000 kirkjugestir til altaris, sem var þá met. Kirkjan var að mestu leyti fjármögnuð af
einstaklingum og einstaklega mikil sjálfboðavinna fór í að undirbúa vígsluathöfnina.
Hallgrímskirkja er ein glæsilegasta bygging borgarinnar og þótt víðar væri leitað.
Fréttablaðið/GVa
Það sem er sérstakt við bygginguna og það sem
ég held að sé einsdæmi við
byggingu opinberrar byggingar
á Íslandi var að hún
var meira og
minna fjármögn-
uð af einstakl-
ingum.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Guðmundur Halldórsson
verkfræðingur,
Neðstaleiti 12, Reykjavík,
lést á heimili sínu 19. október.
Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í Reykjavík mánudaginn 31. október kl. 11.00.
Dómhildur Gottliebsdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Hólmfríður Guðmundsdóttir Hannes Árnason
Dóra Guðmundsdóttir Robert Andrews
og barnabörn.
Ástkær móðir mín,
tengdamóðir og amma,
Rannveig Friðriksdóttir
síðast til heimilis að
Öldrunarheimili Akureyrar,
er lést 16. október, verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu föstudaginn
28. október kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Halla Margrét Tryggvadóttir Elías Bj. Gíslason
Ingólfur Tryggvi Elíasson María Benediktsdóttir
Friðrik Valur Elíasson
Maðurinn minn,
Sigurður Stefánsson
löggiltur endurskoðandi,
Þorragötu 5, Reykjavík,
er látinn.
Anna Jónsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Reynir Ragnarsson
löggiltur endurskoðandi,
Staðarseli 5,
lést á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi laugardaginn 22. október.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Halldóra Gísladóttir
Guðrún R. Kilian Robert Kilian
Gísli Reynisson Sigríður Bryndís Stefánsdóttir
Arnar Gauti Reynisson Sigríður Vala Halldórsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma
og langamma,
Katla Magnúsdóttir
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Hrafnistu í Hafnafirði 22 október sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Freyja Matthíasdóttir Þór Matthíasson
Edda Matthíasd. Swan Edward M. Swan
Sif Matthíasdóttir Jörundur Svavarsson
og fjölskyldur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Salvör Guðmundsdóttir
(Lóló)
Hlíðarhúsum 3,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Eir
19.10. sl. verður jarðsungin föstudaginn
28.10. nk. frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 13.00 .
Davíð Jónsson Margrét Oddsdóttir
Jóna Ó. Jónsdóttir Helgi Helgason
Guðmundur J. Jónsson Katrín Kjartansdóttir
Sveinn Gaukur Jónsson Gréta Boða
og fjölskyldur.
Ástkær fósturmóðir mín,
Brynja Magnúsdóttir
frá Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðjón Þór Erlendsson
2 6 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r18 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tÍmamót
2
6
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
1
0
-E
3
A
4
1
B
1
0
-E
2
6
8
1
B
1
0
-E
1
2
C
1
B
1
0
-D
F
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K