Fréttablaðið - 26.10.2016, Page 35

Fréttablaðið - 26.10.2016, Page 35
MIÐAVERÐ: 5.900 kr., afsláttarverð 4.900 kr. fyrir eldri borgara, 50 % afsláttur fyrir öryrkja og námsmenn 26 ára og yngri og félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju. LAUGARDAGINN 29. OKTÓBER KL. 19 & SUNNUDAGINN 30. OKTÓBER KL. 17 HÁTÍÐARTÓNLEIKAR Í TILEFNI AF 30 ÁRA VÍGSLUAFMÆLI HALLGRÍMSKIRKJU HALLGRÍMSKIRKJA 1986-2016 LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU 34. STARFSÁR FLYTJENDUR: Mótettukór Hallgrímskirkju Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrímskirkju Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósopran Oddur A. Jónsson bassi Auður Guðjohnsen alt Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran Guðmundur Vignir Karlsson tenór Stjórnandi: Hörður Áskelsson M. A. CHARPENTIER: Marche de Triomphe et Second Air de Trompettes H 547 J.S. BACH: Missa í F-dúr, “Lúthersk messa” BWV 233 M. A. CHARPENTIER: Te Deum H 146 Hátíðlegur lúðraþytur og pákuslög ásamt glæsilegum söng og hljóðfæraslætti fylla hvelfingar Hallgrímskirkju þegar Mótettukór Hallgrímskirkju og Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrímskirkju (áður Den Haag) flytja glæsileg hátíðarverk í tilefni af 30 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju, en kirkjan var vígð 26. október 1986. Einsöngvararnir hafa allir tengst listastarfi Hallgrímskirkju um árabil og eru þrír þeirra m.a. meðlimir í Schola cantorum. Upphafsstef forleiksins að Te Deum eftir franska barokkmeistarann M.A. Charpentier er hin heimsþekkta tónlist sem allir þekkja sem kynningarstef í útsendingum Eurovision. Lofsöngurinn (Te Deum) er hrífandi verk, dæmigert fyrir tónlist barokktímans, þar sem kór og einsöngvarar skiptast á að flytja textann við fjölbreyttan hljómsveitarundirleik, þar sem ólíkir litir blásturshljóðfæranna, trompeta, óbóa og hinna viðkvæmu blokkflauta undirstrika stemmningar lofsöngsins. Messa í F-dúr er heillandi meistaraverk sem J.S. Bach byggði á völdum köflum úr öðrum verkum sínum og skiptast þar á glæsilegir kórar og gullfallegar aríur. Verkið er ein af fjórum svokölluðum lúterskum messum sem Bach setti saman í kringum 1740. Fullyrða má að þær séu meðal minnst þekktu meistarasmíða hins fullþroska Bachs og hefur F-dúr messan til að mynda aldrei áður hljómað á tónleikum á Íslandi. Upphafsverkið á tónleikunum, Marche de triomphe (Sigurmars) eftir Charpentier, kemur öllum í hátíðarskap. Það verður því sannkölluð hátíðarstemmning í Hallgrímskirkju um kosningahelgina! ***** „Mikill er máttur tónlistarinnar. Tónlistarlífið í Hallgrímskirkju stendur sannarlega í blóma”. „Algerlega dásamlegir tónleikar með hrífandi söng og glæsilegum hljóðfæraleik”. (Salómon eftir Händel, Mótettukór Hallgrímskirkju og Alþjóðlega barokksveitin). J.S. Fbl.18.8. 2015 2 6 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 0 -D 4 D 4 1 B 1 0 -D 3 9 8 1 B 1 0 -D 2 5 C 1 B 1 0 -D 1 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.