Fréttablaðið - 28.11.2016, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 8 1 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 2 8 . n ó v e M b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
skoðun Guðmundur Andri
Thorsson skrifar Fidel Castro. 15
sport Victor Moses er kominn
til fyrirheitna landsins. 18
lÍfið Stefán Jakobsson hefur
tekið við Sumartónleikunum við
Mývatn. 34
plús 2 sérblöð l fólk l lÍfið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
frÍtt
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2
Fjöldi fólks lagði leið sína á Austurvöll í gær þegar kveikt var á Oslóartrénu, jólatrénu sem Norðmenn hafa gefið Reykjavíkingum samkvæmt gamalli hefð. Að þessu sinni var tréð þó sótt til
Heiðmerkur á skógræktarsvæði Skógræktarfélags Reykjavíkur þar, og verður sá háttur hafður á framvegis og íslenskt tré notað. Fréttablaðið/Ernir
dóMsMál Magni Böðvar Þor-
valdsson, sem á íslenskan föður og
bandaríska móður, mun mæta fyrir
dóm í Jacksonville-borg í Flórída
þann tólfta desember næstkom-
andi. Magni Böðvar er ákærður fyrir
morð . Frá þessu greinir starfsmaður
fangelsisins John E. Goode Pre-Trial
Detention Facility í samtali við
Fréttablaðið.
„Hann hefur verið ákærður
fyrir morð og verið í fangelsinu
síðan nítjánda nóvember. Þá mætti
hann fyrst fyrir dóm. Hann fer næst
fyrir dóm tólfta desember,“ segir
starfsmaðurinn.
Fréttasíðan News4Jax í Jack-
sonville greinir frá því að Magni,
sem heitir Johnny Wayne Johnson
í Bandaríkjunum sökum tvöfalds
ríkisfangs, hafi verið ákærður fyrir
morðið á hinni 43 ára gömlu Sherry
Prather. Líkamsleifar hennar fund-
ust í skóglendi nærri Braddock Road
í Jacksonville árið 2012.
Voru þær svo illa farnar að nokk-
urn tíma tók að skera úr um hvort
þær væru mennskar. Síðar meir
kom í ljós að hún hafði látist eftir
að hafa fengið byssukúlu í bringuna.
Magni hefur í fjögur ár legið undir
grun. Á öryggismyndavél öldurhúss
frá kvöldinu sem Prather hvarf má
sjá þau tvö keyra í burtu á bifhjóli
hans. Stuttu seinna gaf vitni sig fram
við lögreglu og sagði Magna hafa
játað morðið við sig.
Útvarpsstöðin WOKV greindi
þá frá því að annað vitni hafi gefið
sig fram með sams konar sögu fyrr
í mánuðinum og því hafi lögregla
handtekið Magna. Í yfirheyrslu
lögreglu hafi Magni haldið sig við
upphaflega sögu sína, en hann var
einnig yfirheyrður árið 2012, en hafi
smám saman breytt smáatriðum
hennar.
Samkvæmt því sem má lesa úr
gögnum frá dómstól Duval-sýslu í
Flórída nýtur Magni þjónustu opin-
bers lögmanns þar sem hann hefur
ekki efni á því að ráða sér lögmann.
Í þeim gögnum má einnig sjá
að Magni var árið 1996 dæmdur í
ellefu mánaða fangelsi fyrir inn-
Ákærður fyrir morð í Flórída
Íslendingur í Flórída hefur verið ákærður fyrir morð. Hann hefur einu sinni mætt fyrir dóminn og á að
mæta aftur tólfta desember. Áður verið dæmdur í fangelsi fyrir innbrot og ákærður fyrir umferðarlagabrot.
Hann hefur verið
ákærður fyrir morð
og verið í fangelsinu síðan
nítjánda nóvember. Þá mætti
hann fyrst fyrir dóm. Hann
fer næst fyrir dóm tólfta
desember.
Starfsmaður fangelsisins sem Magni er í
Magni böðvar Þorvaldsson hefur verið
ákærður fyrir morð. Mynd/JSO
Sherry Prather var myrt árið 2012.
Mynd/JSO
brot og þjófnað. Hann hefur einn-
ig verið sakfelldur fyrir þrjú brot á
umferðarlögum. Fyrir að keyra án
réttinda og fyrir að keyra bíl í ólagi
árið 2009 og fyrir að keyra á ofsa-
hraða árið 2013.
Sara Hatt, unnusta Magna, segir
í viðtali við Stundina að Magni sé
saklaus. Ákæran sé hefndaraðgerð af
hálfu fyrrum eiginkonu Magna, sem
Jacksonville.com greinir frá að hafi
sakað hann um heimilisofbeldi. Eig-
inkonan fyrrverandi og besti vinur
hennar segir Hatt að hafi þegið þrjú
þúsund bandaríkjadali fyrir að segja
til Magna. thorgnyr@frettabladid.is
2
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
7
3
-8
7
4
0
1
B
7
3
-8
6
0
4
1
B
7
3
-8
4
C
8
1
B
7
3
-8
3
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K