Fréttablaðið - 28.11.2016, Blaðsíða 8
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets setur fundinn
Leiðin að rafvæddri framtíð
Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri Þróunar- og tæknisviðs Landsnets
Umhverfisáhrif kerfisáætlunar
Auður Magnúsdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf
Fundarstjóri: Kristján Kristjánsson, fjölmiðlamaður
Boðið upp á léttan morgunverð frá kl. 08.30.
Skráning á www.landsnet.is
Opinn kynningarfundur þriðjudaginn 29. nóvember á Hilton
Reykjavík Nordica kl. 09.00-10.30 undir yfirskriftinni Kerfisáætlun
2016-2025: Innviðirnir okkar – leiðin að rafvæddri framtíð.
DAGSKRÁ
Fundurinn verður sendur út í beinni útsendingu á Facebooksíðu Landsnets.
Þar verður einnig hægt að senda inn fyrirspurnir og athugasemdir.
Guðmundur Ingi
Ásmundsson
Sverrir Jan
Norðfjörð
Auður
Magnúsdóttir
Kristján
Kristjánsson
Innviðirnir okkar
Leiðin að rafvæddri framtíð
KERFISÁÆTLUN LANDSNETS 2016-2025
Kúba Níu daga þjóðarsorg hefur
verið lýst yfir á Kúbu vegna láts
Fidels Castro. Aska hans verður
grafin í Santiago de Cuba sunnu-
daginn 4. desember.
Meðan þjóðarsorgin varir verða
öll störf lögð niður og engir opin-
berir viðburðir haldnir, hvorki tón-
leikar, leiksýningar né íþróttakapp-
leikir.
Flaggað verður í hálfa stöng, sala
áfengis hefur verið stöðvuð og í
útvarpi og sjónvarpi verður boðið
upp á „upplýsandi, þjóðhollt og
sögulegt efni,“ að því er fram kemur
í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Skipulagðar hafa verið miklar
skrúðgöngur til að heiðra byltingar-
leiðtogann, sem ríkti þar í tæpa
fjóra áratugi. Þá verður fjölmenn
samkoma haldin í höfuðborginni,
Havana, að kvöldi þriðjudags.
Handan hafsins, í Miami í Banda-
ríkjunum, hafa margir íbúar hins
vegar fagnað ákaft láti Castros. Þar
hefur áratugum saman búið fjöldi
fólks sem flúði frá Kúbu vegna harð-
stjórnar Castros.
„Það sem þú sérð hérna er fólk sem
hefur þjáðst,“ segir Tomas Regalado,
borgarstjóri í Miami, samkvæmt
frásögn á fréttavef dagblaðsins The
Miami Herald. „En það sem þú sérð
hér er líka mikill fjöldi ungs fólks sem
fagnar vegna feðra sinna og afa sem
Fidel Castro olli tjóni, réðst á og drap.“
Níu daga þjóðarsorg lýst yfir á Kúbu
Mikil fagnaðarlæti hafa verið á götum úti í Miami alla helgina vegna andláts Fidels Castro. Sorg ríkir hins vegar á Kúbu og víða í ríkjum
Suður-Ameríku. Þar reiðast menn fagnaðarlátum Miamibúa.
bandaríKin Samstarfsfólk Hillary
Clintons ætlar að taka þátt í kröfum
um að atkvæði verði endurtalin í
Wisconsin, sem forsetaframbjóðandi
Græningja, Jill Stein, hefur sett fram.
Græningjaflokkurinn hefur safn-
að milljónum dala til að ná fram
endurtalningu í þremur ríkjum,
Wisconsin, Michigan og Pennsylv-
aníu, og hefur formlega krafist end-
urtalningar í einu þeirra, Wisconsin.
Donald Trump segir þessa
afstöðu samstarfsfólks hennar úr
kosningabaráttunni vera hræsni
eina. Clinton hafi sjálf óskað honum
til hamingju með sigurinn. Endur-
talning muni engu breyta.
Kröfur um endurtalningu komu
upp eftir að hópur sérfræðinga sagði
mögulegt að tölvuþrjótar hafi átt
við úrslit rafrænna kosninga, þar
sem sú aðferð var notuð. – gb
Clinton vill endurtalningu
Jill Stein hefur fengið stuðning frá Clinton við kröfur sínar um endurtalningu.
NordiCphotoS/AFp
danmörK Lars Løkke Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur og
leiðtogi Venstre-flokksins, kynnir í
dag nýja ríkisstjórn sína.
Í henni sitja ráðherrar frá
þremur hægriflokkum, Venstre,
Frjálslynda bandalaginu og
Íhaldsflokknum, en saman-
lagt eru þessir flokkar með
53 þingmenn af 179. Þeir
þurfa áfram stuðning Danska
þjóðarflokksins, sem í reynd
hefur þar með neit-
unarvald þegar
stjórnin leggur
mál fram á
þingi.
N ý j a
s t j ó r n i n
tekur við
af minni-
hlutastjórn Venstre, sem naut stuðn-
ings Frjálslynda bandalagsins, Íhalds-
flokksins og Danska þjóðarflokksins.
Stjórnarsáttmáli nýju stjórnar-
innar var kynntur í gær. Þar
kemur fram að eitt af
helstu áherslumálum
hennar verður að lækka
skatt á hæstu tekjur. – gb
Ný ríkisstjórn í Danmörku
Lars Løkke rasmussen
stækkar minnihluta-
stjórn sína en
þarf áfram
stuðning
danska
þjóðar-
flokksins.
NordiCp-
hotoS/AFp
Aldraður maður hefur stillt upp ljósmyndum af Castro og fleiri byltingarhetjum í höfuðborginni havana þar sem hann situr á
gangstéttinni í hjólastól sínum. FréttAbLAðið/EpA
Ríkti á Kúbu í tæpa
fjóra áratugi
Fidel Castro var þrítugur árið 1956
þegar hann hélt til Kúbu ásamt
80 manna hópi til að gera þar
byltingu. Í hópnum voru meðal
annarra Raúl bróðir hans, sem nú
er forseti Kúbu, og Ernesto „Che“
Guevara.
Þremur árum síðar, 1959, tókst
þeim að hrekja Fulgencio Batista
herforingja og stjórn hans frá
völdum.
Batista hafði sjálfur komist til
valda á Kúbu með herforingja-
byltingu árið 1952, en hann hafði
áður ríkt þar í fjögur ár sem lýð-
ræðislega kjörinn forseti frá 1940
til 1944.
Castro ríkti á
Kúbu til ársins
2008, í nærri
hálfa öld,
en þá varð
heilsubrestur
til þess að
hann fékk
bróður sinn,
Raúl, til að
taka við af
sér.
Castro nýtur hins vegar mikilla
vinsælda á Kúbu og víða í löndum
Suður- og Mið-Ameríku. Þar er
hann byltingarhetjan sem stóð uppi
í hárinu á Bandaríkjunum áratugum
saman.
Jafnvel þótt lífskjör á Kúbu hafi verið
frekar bágborin alla tíð síðan hann
gerði byltingu árið 1959, þá virðist
almenningur upp til hópa sannfærður
um velvilja hans í garð þjóðarinnar.
Castro var níræður þegar hann lést
á föstudaginn. Bróðir hans Raúl, sem
nú er 85 ára, tók við af honum árið
2006, fyrst til bráðabirgða en form-
lega árið 2008. Hann hefur tilkynnt
að hann ætli að segja af sér árið 2018.
gudsteinn@frettabladid.is
2018 hyggst Raúl Castro,
bróðir Fidels, segja af sér.
2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m Á n U d a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
2
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
3
-C
7
7
0
1
B
7
3
-C
6
3
4
1
B
7
3
-C
4
F
8
1
B
7
3
-C
3
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K