Fréttablaðið - 08.11.2016, Blaðsíða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Ákvörðun kjararáðs um miklar hækkanir launa ráðamanna umfram almenna launaþróun gengur í besta falli gegn tilgangi laga um kjara
ráð, og í versta falli er um beint lögbrot að ræða.
„Kjararáð skal ætíð taka tillit til almennrar þróunar
kjaramála á vinnumarkaði“ eins og segir í lögunum
svo „að ekki sé hætta á að úrskurðir [kjararáðs] raski
kjarasamningum þorra launafólks og stefni þar með
stöðugleika í efnahagslífinu í hættu […] [kjararáð]
ber þannig að hafa hliðsjón af launastefnu á vinnu
markaðnum en ekki móta hana“ eins og kemur fram
í greinargerð með lögunum og þar er sérstaklega
ítrekað að: „Í frumvarpinu um kjararáð sem hér er
gerð grein fyrir er fylgt sömu stefnu og hún reyndar
ítrekuð [og] kveðið enn skýrar að orði um þetta efni.“
Heildarsamtök bæði launþega og atvinnurekenda
krefjast þess að Alþingi aftengi þessa sprengju frá
kjararáði. Samtök atvinnulífsins segja að: „Kjararáð
stuðlar að upplausn á vinnumarkaði [og] skora á nýtt
Alþingi að hafna nýlegum ákvörðunum kjararáðs og
leggja málið í sáttaferli.“ Alþýðusamband Íslands segir
að: „ASÍ krefst þess að ákvörðun kjararáðs verði dregin
til baka […] Að öðrum kosti verður óstöðugleiki og
upplausn á vinnumarkaði í boði Alþingis.“ Úrskurður
kjararáðs hefur því nú þegar skapað hættu á að raska
kjarasamningum þorra launafólks og sett stöðugleika
efnahagslífsins í hættu.
Það eru þrír aðilar sem geta aftengt sprengjuna og
bera því ábyrgð. Kjararáð getur gefið út annan úrskurð
sem lækkar laun ráðherra og þingmanna (stjórnar
skráin bannar launalækkanir forseta Íslands). Forseti
Íslands sem hefur sagt að hann: „vænti þess að þingið
vindi ofan af þessari ákvörðun [kjararáðs]“ getur gefið
út að hann muni setja bráðabirgðalög áður en þing
komi saman nema kjararáð lækki launin eða hann fái
það staðfest frá formönnum allra flokka að Alþingi
muni vinda ofan af ákvörðuninni. Ef þessir þrír aðilar
bregðast allir þá mun ég kæra ákvörðun kjararáðs til
dómstóla og hef nú þegar fengið til þess lögfræðing.
Svona afnemum við
launahækkun þingmanna
Jón Þór Ólafsson
þingmaður Pírata
Ef þessir þrír
aðilar bregð-
ast allir þá
mun ég kæra
ákvörðun
kjararáðs til
dómstóla og
hef nú þegar
fengið til þess
lögfræðing.
Ótímabærar vangaveltur
Frétt Morgunblaðsins um innan-
hússátök í Framsóknarflokknum
vöktu athygli í gær. Þar fór mik-
inn Sveinn Hjörtur Guðfinnsson,
formaður Framsóknarfélags
Reykjavíkur, sem segir það kröfu
stuðningsmanna Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar að gera
Sigmund Davíð að ráðherra ef
flokkurinn ætlar í ríkisstjórnar-
samstarf. Einhverjum gæti þótt
Sveinn Hjörtur kominn svolítið
fram úr sjálfum sér að útdeila
ráðherrasætum innan flokksins,
nú þegar flestir búast við því
að sennilegast verði mynduð
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks,
Viðreisnar og Bjartrar framtíðar,
með eða án aðkomu VG.
Til hamingju Hafnarfjörður
Fyrir helgi spunnust upp heil-
miklar vangaveltur um það hvort
skilgreina mætti skattheimtu sem
ofbeldi gagnvart borgurunum
eða ekki. Þingmaðurinn Pawel
Bartoszek virðist telja að svo sé
og hagfræðingurinn Jón Steins-
son líka. Hafa þeir báðir fengið
bágt fyrir þessar meiningar sínar
á samfélagsvefnum. Hvort sem
menn eru sammála þeim eða ekki
er tilefni til þess að gleðjast með
Hafnfirðingum núna þegar bæjar-
yfirvöld hafa ákveðið að lækka
útsvar svo að í fyrsta sinn í átján
ár er það ekki lengur í hámarks-
prósentu. Sem verður vonandi til
þess að íbúar fái að halda meiru
eftir af sjálfsaflafé sínu.
jonhakon@frettabladid.is
Iceland
Airwaves
hefur það
mikla þýð-
ingu fyrir
íslenska
hagsmuni að
stórar ráð-
stefnur sem
hér eru
haldnar, eins
og Arctic
Circle, eru
dvergvaxnar í
samanburði.
Að sögn viðstaddra var gæsahúð tónleikagesta næstum áþreifanleg og sýnileg úr fjarlægð þegar Björk Guðmundsdóttir, skærasta poppstjarna íslenskrar tónlistarsögu, lék fyrir fullu húsi í Eldborgarsal Hörpu á Iceland Airwaves á laugar
dagskvöld.
„Það er erfitt að lýsa andrúmsloftinu í salnum þegar
seinasti tónn lagsins var sleginn á strengi sveitarinnar,
en ef til vill segir það eitthvað að nokkrar sekúndur
liðu áður en áhorfendur tóku við sér og klöppuðu fyrir
rosalegum „performans“ Bjarkar,“ segir í umsögn Sunnu
Kristínar Hilmarsdóttur, blaðamanns Vísis, um tónleika
Bjarkar. Það var viðeigandi að Björk „okkar“ skyldi spila
í Eldborg á stærsta kvöldi Airwaves tónlistarhátíðarinn
ar. Við eigum að vera þakklát fyrir þessa hátíð sem vex
með hverju ári og skapar gríðarlegar gjaldeyristekjur
fyrir þjóðarbúið. Á sama tíma er hátíðin ómetanlega
verðmæt fyrir vörumerkið Ísland á alþjóðlega vísu.
Airwaves hátíðin var nú haldin í átjánda sinn. Hátíðin
hefur skapað sér orðspor sem vettvangur fyrir nýjar
stjörnur og margar heimsfrægar hljómsveitir hafa stigið
á svið á Airwaves á árdögum frægðar sinnar. Hátíðin er
orðin ómissandi viðburður fyrir virtustu tónlistarblaða
menn heims og hefur hjálpað óteljandi íslenskum tón
listarmönnum að skapa sér nafn erlendis. Hljómsveitin
Of Monsters and Men er eitt nærtækasta dæmið.
Fyrsta hátíðin var haldin í flugskýli á Reykjavíkur
flugvelli 16. október 1999 og er talið að rúmlega 500
erlendir gestir hafi mætt. Síðan hefur hátíðin vaxið ört
bæði þegar fjöldi gesta og áhrif eru annars vegar. Mark
mið Iceland Airwaves hefur frá fyrstu tíð verið þríþætt.
Að kynna íslenska tónlist, halda tónlistarhátíð sem
jafnast á við það besta sem þekkist erlendis og að lengja
íslenska ferðamannatímabilið. Í rannsókn Útflutnings
skrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTON) frá 2012 kom
fram að velta erlendra gesta hátíðarinnar næmi rúmlega
800 milljónum króna. Þessi fjárhæð hefur bara vaxið.
Gera má ráð fyrir að erlendir gestir kaupi vörur og
þjónustu fyrir um það bil milljarð króna þá daga sem
hátíðin varir. Í BSritgerð Arnþórs Jóhanns Jónssonar frá
2014 um áhrif Iceland Airwaves á fyrirtæki í miðborg
Reykjavíkur kemur fram að þrátt fyrir að hátíðin hafi
vaxið standi henni ógn af fækkun tónleikastaða í mið
borginni. Fækkun tónleikastaða hafi ekki aðeins áhrif
á þá daga sem hátíðin standi yfir heldur allt árið um
kring. Mikilvægt sé að skipuleggjendur hátíðarinnar fái
meira frelsi til að uppfylla þarfir gesta hátíðarinnar eigi
hún að vaxa enn frekar.
Iceland Airwaves hefur það mikla þýðingu fyrir
íslenska hagsmuni að stórar ráðstefnur sem hér eru
haldnar, eins og Arctic Circle, eru dvergvaxnar í saman
burði. Iceland Airwaves er gott dæmi um það hvernig
ein lítil hugmynd frumkvöðuls blómstrar og verður í
fyllingu tímans að fyrirbæri sem hefur mikla þýðingu
fyrir afkomu þúsunda fyrirtækja og einstaklinga í
íslensku samfélagi. Hún er jafnframt sterkur vitnis
burður um mikilvægi skapandi greina og hversu stórt
hlutverk þær spila í verðmætasköpun þjóðarbúsins.
Töfrar í flugskýli
8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r12 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
8
-C
3
E
C
1
B
3
8
-C
2
B
0
1
B
3
8
-C
1
7
4
1
B
3
8
-C
0
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K