Fréttablaðið - 08.11.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.11.2016, Blaðsíða 16
Í dag Bikarkeppni kvenna í handbolta 18.00 Valur 2 - Stjarnan Laugard.v. 20.00 Stjarnan 2 - Afture. Varmá 20.00 Valur - Fram Valshöllin 20.15 Fjölnir - Fylkir Dalhús Gunnar nelson Vill mæta Don sem fyrst Ökklameiðslin sem héldu Gunnari nelson frá því að berjast í aðalbar- daga kvöldsins á ufC fight night- bardagakvöldi í Belfast 19. þessa mánaðar eru ekki alvarleg að sögn þjálfara hans, Johns Kavanagh. Í viðtali við bardagafréttasíðuna mmaJunkie segir írski mma- þjálfarinn að Gunnar sé nú þegar mættur aftur til æfinga en hann meiddist illa á sýningaræfingu þegar hann var að kynna bardag- ann gegn Dong á Írlandi í síðasta mánuði. Þrátt fyrir að Gunnar sé ekki búinn að fá grænt ljós frá læknum að byrja að æfa á fullu segir Kavanagh að hann nálgist sitt besta stand og geti því líklega bar- ist aftur fyrr en seinna. Kavanagh vonist til að Gunnar fái að berjast snemma á árinu 2017. enn fremur vilja þeir helst að ufC haldi sig við bardagann sem þurfti að aflýsa en Gunnar er áhugasamur um að mæta Dong sem er í áttunda sæti á styrk- leikalista veltivigt- arinnar. Nýjast Maltbikar karla, 32-liða úrslit Keflavík - Njarðvík 97-91 Stigahæstir: Reggie Dupree 28 (11 frák.), Amin Stevens 19 (8 frák. 23. mín, 5 villur), Guðmundur Jónsson 13, Magnús Már Traustason 11, Daði Lár Jónsson 11, Davíð Páll Hermannsson 8 - Stefan Bonneau 27, Logi Gunnarsson 20, Jóhann Árni Ólafsson 13 (9 frák.), Björn Kristjánsson 12. Breiðablik - Skallagr. 77-88 Stigahæstir: Tyrone Wayne Garland 35, Halldór Halldórss. 11 - Flenard Whitfield 20 (9 frák., 6 stoðs.), Sigtryggur Arnar Björnss. 15 (6 frák., 7 stoðs.), Magnús Þór Gunnarss. 14, Bjarni Guðmann Jóns. 10 (7 frák.). Valur - Snæfell 74-63 Stigahæstir: Urald King 16 (16 fráköst), Benedikt Blöndal 10, Austin Magnús Bracey 10- Sefton Barrett 19 (10 frák., 4 stoðs.), Viktor Marínó Alexandersson 16. Reynir S. - ÍR 34-79 Vestri - Haukar 68-109 Hamar - Höttur 84-91 Liðin sem eru komin í sextán liða úrslit maltbikarsins eru: Átta úr Dominos (Kr, Grindavík, tinda- stóll, Þór ak, Keflavík, Haukar, Ír, skallagrímur), fjögur úr 1. deild (Höttur, Valur, fjölnir, fsu) og þrjú önnur lið (Haukar-b, sindri og njarðvík-b). Þór Þ. sat hjá í 32 liða úrslitum og fór beint í 16-liða úrslit. Það verður dregið í næstu umferð í hádeginu í dag. strÁKarnir spila Í las VeGas Íslenska karlalandsliðið í fótbolta spilar vináttulandsleik við mexíkó í las Vegas í Bandaríkjunum 8. febrúar á næsta ári en þetta verður fyrsti leikur liðsins á árinu 2017. 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r16 s p o r t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð Tuttugu Íslendingar kláruðu New York maraþonið um helgina Fjölmenni á götunum New York maraþonið fór fram um helgina en þetta er fjölmennasta maraþonhlaup heims þar sem hlaupið er í gegnum öll fimm hverfi New York borgar eða Brooklyn, Bronx, Manhattan, Queens og Staten Island. Jóhann Wathne náði bestum tíma af þeim tuttugu Íslendingum sem kláruðu hlaupið en Erlendur Stefánsson varð annar. Guðbjörg Sigurðardóttir var fyrsta íslenska konan í mark. FRéttABlAðið/getty FótboLtI „Það verður að fagna þess- um titlum og við áttum ákaflega gott kvöld,“ segir matthías Vilhjálmsson nýkrýndur noregsmeistari með rosenborg. liðið var reyndar löngu búið að tryggja sér titilinn en tíma- bilinu lauk um helgina og titlinum var fagnað þá. „Það var fögnuður niðri í bæ með stuðningsmönnum þar sem mikið var sungið. svo var bara venjulegt partí. Það var stappað inni á stöð- unum en þessir stuðningsmenn eru orðnir góðu vanir.“ geta náð sögulegum árangri er upp var staðið vann rosenborg titilinn með 15 stiga mun. Gríðar- legir yfirburðir sem minna á gamla tíma hjá félaginu. Þetta var annar noregstitill félagsins í röð. „Við tryggðum þetta þegar fimm leikir voru eftir. náðum góðu for- skoti eftir sumarfríið og erum vel að þessu komnir. Við eigum eftir að spila bikarúrslitaleikinn eftir tvær vikur. Hann er gegn B-deildarliði Kongsvinger sem sló út ströms- godset. ef við vinnum þann leik verðum við fyrsta liðið í sögunni til að vinna tvöfalt tvö ár í röð,“ segir matthías en það yrði magnað afrek. ekki einu sinni gullaldarlið rosen- borg náði þeim árangri. „Það er vonandi að renna upp ný gullöld en við sjáum til. Ég tel að við getum gert þetta eitthvað áfram. stefnan er sett á að komast aftur í meistaradeildina á næstu árum.“ tveir leikmenn liðsins gerðu allt vitlaust í noregi er þeir létu mynda sig nakta með bikarinn eftir leik um helgina og settu á samfélags- miðla. „tveir mestu flippararnir í liðinu fóru með þetta alla leið. Það skapaði mikla umræðu og ekki allir sáttir. Það þýðir samt ekki að vera bara a4-maður. allt í lagi að krydda þetta aðeins.“ Valinn leikmaður ársins Hinn harðduglegi matthías er í mikl- um metum hjá stuðningsmönnum félagsins sem völdu hann leikmann ársins. „Ég hafði ekki hugmynd um þetta fyrr en eftir lokaleikinn. Það eru margir harðkjarnastuðningsmenn liðsins. ef það eru einhver verð- laun sem maður vill vinna þá eru það þessi verðlaun. Það var mjög ánægjulegt og mikill heiður,“ segir matthías stoltur en honum er mikið hrósað fyrir að gefa allt í öllum stöðum. svo muna menn eftir því í fyrra er hann setti gullmedalíuna á uppboð og ágóðinn rann til krabbameinssjúkra barna. Hann lætur því málefni utan vallar sig einn- ig varða og það kunna stuðn- ingsmenn að meta. Þreytandi til lengdar m a t t h í a s t ó k þ átt í 29 af 30 leikjum liðs- ins í vetur. Var 17 sinn- um í byrj- unarliðinu en kom 12 sinnum af bekknum. Það sem meira er þá spilaði hann nánast allar stöður nema markið. „Þetta er svolítið þreytandi til lengdar. síðustu leiki hef ég spilað á kantinum og í lokaleiknum kom ég inn sem djúpur miðjumaður. svo er ég búinn að spila senterinn og sem sókndjarfur miðjumaður. Þeir eru ánægðir með mig því ég kvarta aldrei og vil gera allt fyrir liðið. Það er samt erfitt að þróa sinn leik þegar manni er kastað út um allt,“ segir Ísfirð- ingurinn og rifjar upp skemmtilega sögu frá tímabilinu. „einu sinni átti ég að koma inn sem miðvörður er annar mið- vörðurinn okkar meiddist. Hann jafnaði sig og ég fór ekki inn. Þá meiddist senterinn og ég átti að leysa hann af hólmi. ekkert varð af því þar sem hann jafnaði sig líka. Á endanum kom ég inn á sem djúpur miðju- maður. Það eru ekki margir í fót- boltaheiminum sem eru að upplifa svona. Þetta er kærkomin reynsla.“ matthías segist eftir alla þessa reynslu finna sig best á miðjunni. Hann sé samt vel til í að spila áfram sem framherji. Hvað verður á eftir að koma í ljós. „Ég á eitt ár eftir af samningi við félagið. svo sjáum við til hvað gerist. okkur fjölskyldunni líður mjög vel hérna í Þrándheimi. Við erum byrj- aðir að ræða framhaldið og allt í góðum farvegi. Ég á eftir að ákveða hvað ég vil gera.“ einhverjir hafa kallað eftir því að matthías fái frekari tækifæri með landsliðinu en landsliðsþjálfarinn hefur ekki viljað veðja á hann. ekki einu sinni þó forföllin séu ansi mörg að þessu sinni. „Það er svekkjandi að vera ekki inn í myndinni núna en hvað getur maður gert? Ég skil svo sem lands- liðsþjálfarann að velja ekki mann sem er ekki að spila eina stöðu. strákarnir í liðinu eru líka að standa sig frábærlega. Það væri samt eitt- hvað að ef ég væri ekki svekktur yfir að vera ekki valinn. Ég verð bara að spila betur,“ segir hinn 29 ára gamli matthías sem er ekkert hættur að láta sig dreyma um landsliðið. „maður lokar aldrei á landsliðið. Ég myndi fylla á brúsana fyrir lands- liðið ef ég væri beðinn um það. Það besta sem maður getur gert er að spila fyrir landsliðið og ég loka ekki þeim dyrum fyrr en ég hætti.“ henry@frettabladid.is Mun aldrei loka á landsliðið Noregsmeistarinn Matthías Vilhjálmsson er ekki búinn að gefa landsliðsdrauminn frá sér þó svo hann sé ekki inni í myndinni. Skrautlegu tímabili var að ljúka hjá honum þar sem hann spilaði úti um allan völl. Ef það eru einhver verðlaun sem maður vill vinna þá eru það þessi. Það var mjög ánægjulegt og mikill heiður. Matthías Vilhjálms- son sport 0 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 8 -E 6 7 C 1 B 3 8 -E 5 4 0 1 B 3 8 -E 4 0 4 1 B 3 8 -E 2 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.