Fréttablaðið - 08.11.2016, Page 18

Fréttablaðið - 08.11.2016, Page 18
Lögfræðingurinn Þórunn Steins- dóttir hafði lengi gengið með bók- ina Máttur matarins í maganum. Hún hélt um tíma úti samnefndu bloggi þar sem hún fjallaði um hvernig hægt væri að nota mat sem forvörn gegn krabbameini og öðrum sjúkdóm- um. „Mig lang- aði að pakka þeim fróðleik saman í bók en eftir að hafa velkst með þá hugmynd í nokkur ár átt- aði ég mig á því að hún yrði lík- lega ekki að veruleika nema ég fengi mjög góða mann- eskju í lið með mér. Ég vissi af Lukku, sem rekur heilsu- veitingastaðinn Happ, og að hún hefði lengi verið í svipuðum hug- leiðingum. Ég setti mig því í sam- band við hana og hún tók vel í hug- myndina,“ útskýrir Þórunn. Hún segir töluvert um krabba- mein í sinni fjölskyldu. „Ungt fólk upplifir sig oft því sem næst ódauðlegt en þegar ég varð ófrísk fór ég að velta þessu fyrir mér, eins og oft gerist þegar börn koma til. Ég var meðvituð um genin mín en fannst ég hljóta að geta haft einhver áhrif á þróun mála. Ég fór því að lesa mig til um allskyns umhverfisþætti. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á mat og matargerð og þó ég viti að hreyfing og and- leg heilsa skipti máli varð matur- inn minn fókus.“ Þórunn byrjaði að blogga þegar hún var í fæðingarorlofi og fékk bloggið talsverðan lestur. Á svip- uðum tíma var Lukka iðin við halda upplýsing- um um tengsl mat- aræðis og myndun sjúkdóma að fólki en báðar hafa Þór- unn og Lukka haldið vel sótta fyrirlestra hjá Krabbameinsfé- laginu svo dæmi séu nefnd. Þórunn hafði sam- bandi við Lukku í byrjun árs 2013 og hófust þær þá handa við bókarsmíðina. Efnið er þeim báðum hugleikið og ákváðu þær því að gefa sér góðan tíma og vanda vel til verka. „Þetta er eina bókin sem ég hef í hyggju að gefa út. Þetta er einfaldlega efni sem hefur brunnið á mér og mig langaði að koma vel frá mér. Mér lá því ekkert á,“ út- skýrir Þórunn. Bókinni er stillt upp út frá virkninni í matnum og hvað það er í honum sem gerir gott. Hún hefst á talsverðum fróðleik um tengsl mataræðis við myndun krabba- meins og annarra sjúkdóma og byggir hann á vitneskju sem Þór- unn og Lukka hafa viðað að sér um efnið ásamt upplýsingum frá læknum og öðru fagfólki. Bókinni er svo skipt upp í fjóra meginkafla en þeir eru; litríkur matur, krydd- aður matur, trefjaríkur matur og góð fita en í hverjum flokki er að finna fjölda aðgengilegra og hollra uppskrifta sem henta allri fjöl- skyldunni. „Við reyndum að leggja áherslu á það sem gerir gott í stað þess að vera með boð og bönn þó vissulega sé komið inn á fæðu sem þykir óæskilegri en önnur,“ segir Þórunn og nefnir meðal annars bólguhvetjandi fitu, mjólkurvör- ur og sykur. „Við erum þó fyrst og fremst að kalla eftir því að fólk horfi á hvað það er í matnum sem nærir.“ Sjálf borðar Þórunn svipaðan mat og lýst er í bókinni. Hún legg- ur áherslu á litríkan mat og velur krydd sem hafa góða virkni. Hún borðar mikið af trefjum og passar sig á sætunni. Hún segir hvern og einn taka fjölda ákvarðana á degi hverjum sem móta lífið og hafi áhrif á heilsuna nú og til framtíð- ar. „Ein mikilvægasta forvörnin gegn sjúkdómum er að koma sér upp góðum lífsvenjum. Ég vona að bókin komi að góðum notum við það,“ segir Þórunn og gefur upp- skrift sem er að finna í bókinni. Grænn hristinGur fyrir 2 1/3 ferskur ananas 2 sellerístilkar 3 cm bútur af ferskum engifer 1 límóna afhýdd, 1 stór lúka spínat 1/2 tsk. matcha te 1 msk. hampfræ eða -duft 3 mjúkar döðlur ríflega 1 dl frosið mangó Setjið ananas, sellerí, engifer og límónu í gegnum safapressu. Hellið safanum í blandara og blandið af- ganginum af hráefninu vel saman við. Drekkið með bros á vör. Fólk er kynninGarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 Vera einarsdóttir vera@365.is Þórunn er sannfærð um að mataræði hafi mikið að segja þegar kemur að myndun hinna ýmsu sjúkdóma. mynd/gVa Mataræði Getur skipt sköpuM Þórunn steinsdóttir og unnur guðrún Pálsdóttir, eða Lukka eins og hún er kölluð, gáfu út matreiðslubókina Máttur matarins í síðustu viku en báðar eru þekktar fyrir áhuga sinn á samspili mataræðis og heilsu. Í bókinni er fjallað um mat sem styrkir heilsuna og það hvernig matur getur átt þátt í að halda sjúkdómum frá og í skefjum. ParisarTizkan SKIPHOLTI 29B 20% AFSLÁTTUR AF BUXUM LAGERHREINSUN/STÆRÐIR 34-50 BUXNADAGAR Velkomin í okkar hóp! Innritun stendur yfir í síma 581 3730 Síðustu TT námskeið fyrir jól! Nánari upplýsingar á jsb.is [ Komdu, við kunnum þetta ] Lágmúla 9 | 108 Reykjavík | Sími 581 3730 | jsb@jsb.is | www.jsb.is stelpur 16-25 ára 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A Ð ∙ h e I l s A 0 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 8 -F A 3 C 1 B 3 8 -F 9 0 0 1 B 3 8 -F 7 C 4 1 B 3 8 -F 6 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.