Fréttablaðið - 08.11.2016, Síða 18
Lögfræðingurinn Þórunn Steins-
dóttir hafði lengi gengið með bók-
ina Máttur matarins í maganum.
Hún hélt um tíma úti samnefndu
bloggi þar sem hún fjallaði um
hvernig hægt væri að nota mat
sem forvörn gegn krabbameini og
öðrum sjúkdóm-
um. „Mig lang-
aði að pakka þeim
fróðleik saman
í bók en eftir að
hafa velkst með
þá hugmynd í
nokkur ár átt-
aði ég mig á því
að hún yrði lík-
lega ekki að
veruleika nema
ég fengi mjög
góða mann-
eskju í lið með
mér. Ég vissi
af Lukku, sem
rekur heilsu-
veitingastaðinn Happ, og að hún
hefði lengi verið í svipuðum hug-
leiðingum. Ég setti mig því í sam-
band við hana og hún tók vel í hug-
myndina,“ útskýrir Þórunn.
Hún segir töluvert um krabba-
mein í sinni fjölskyldu. „Ungt
fólk upplifir sig oft því sem næst
ódauðlegt en þegar ég varð ófrísk
fór ég að velta þessu fyrir mér,
eins og oft gerist þegar börn koma
til. Ég var meðvituð um genin mín
en fannst ég hljóta að geta haft
einhver áhrif á þróun mála. Ég
fór því að lesa mig til um allskyns
umhverfisþætti. Ég hef alltaf haft
mikinn áhuga á mat og matargerð
og þó ég viti að hreyfing og and-
leg heilsa skipti máli varð matur-
inn minn fókus.“
Þórunn byrjaði að blogga þegar
hún var í fæðingarorlofi og fékk
bloggið talsverðan lestur. Á svip-
uðum tíma var
Lukka iðin við
halda upplýsing-
um um tengsl mat-
aræðis og myndun
sjúkdóma að fólki
en báðar hafa Þór-
unn og Lukka haldið
vel sótta fyrirlestra
hjá Krabbameinsfé-
laginu svo dæmi séu
nefnd.
Þórunn hafði sam-
bandi við Lukku í
byrjun árs 2013 og
hófust þær þá handa
við bókarsmíðina.
Efnið er þeim báðum
hugleikið og ákváðu þær því að
gefa sér góðan tíma og vanda vel
til verka. „Þetta er eina bókin sem
ég hef í hyggju að gefa út. Þetta er
einfaldlega efni sem hefur brunnið
á mér og mig langaði að koma vel
frá mér. Mér lá því ekkert á,“ út-
skýrir Þórunn.
Bókinni er stillt upp út frá
virkninni í matnum og hvað það er
í honum sem gerir gott. Hún hefst
á talsverðum fróðleik um tengsl
mataræðis við myndun krabba-
meins og annarra sjúkdóma og
byggir hann á vitneskju sem Þór-
unn og Lukka hafa viðað að sér
um efnið ásamt upplýsingum frá
læknum og öðru fagfólki. Bókinni
er svo skipt upp í fjóra meginkafla
en þeir eru; litríkur matur, krydd-
aður matur, trefjaríkur matur og
góð fita en í hverjum flokki er að
finna fjölda aðgengilegra og hollra
uppskrifta sem henta allri fjöl-
skyldunni. „Við reyndum að leggja
áherslu á það sem gerir gott í stað
þess að vera með boð og bönn þó
vissulega sé komið inn á fæðu sem
þykir óæskilegri en önnur,“ segir
Þórunn og nefnir meðal annars
bólguhvetjandi fitu, mjólkurvör-
ur og sykur. „Við erum þó fyrst
og fremst að kalla eftir því að fólk
horfi á hvað það er í matnum sem
nærir.“
Sjálf borðar Þórunn svipaðan
mat og lýst er í bókinni. Hún legg-
ur áherslu á litríkan mat og velur
krydd sem hafa góða virkni. Hún
borðar mikið af trefjum og passar
sig á sætunni. Hún segir hvern og
einn taka fjölda ákvarðana á degi
hverjum sem móta lífið og hafi
áhrif á heilsuna nú og til framtíð-
ar. „Ein mikilvægasta forvörnin
gegn sjúkdómum er að koma sér
upp góðum lífsvenjum. Ég vona að
bókin komi að góðum notum við
það,“ segir Þórunn og gefur upp-
skrift sem er að finna í bókinni.
Grænn hristinGur
fyrir 2
1/3 ferskur ananas
2 sellerístilkar
3 cm bútur af ferskum
engifer
1 límóna afhýdd,
1 stór lúka spínat
1/2 tsk. matcha te
1 msk. hampfræ eða -duft
3 mjúkar döðlur
ríflega 1 dl frosið mangó
Setjið ananas, sellerí, engifer og
límónu í gegnum safapressu. Hellið
safanum í blandara og blandið af-
ganginum af hráefninu vel saman
við. Drekkið með bros á vör.
Fólk er kynninGarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir,
liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367
Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358
Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 |
Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Vera
einarsdóttir
vera@365.is
Þórunn er sannfærð um að mataræði hafi mikið að segja þegar kemur að myndun
hinna ýmsu sjúkdóma. mynd/gVa
Mataræði Getur skipt sköpuM
Þórunn steinsdóttir og unnur guðrún Pálsdóttir, eða Lukka eins og hún er kölluð, gáfu út matreiðslubókina Máttur
matarins í síðustu viku en báðar eru þekktar fyrir áhuga sinn á samspili mataræðis og heilsu. Í bókinni er fjallað um
mat sem styrkir heilsuna og það hvernig matur getur átt þátt í að halda sjúkdómum frá og í skefjum.
ParisarTizkan
SKIPHOLTI 29B
20% AFSLÁTTUR
AF BUXUM
LAGERHREINSUN/STÆRÐIR 34-50
BUXNADAGAR
Velkomin í okkar hóp!
Innritun stendur yfir í síma 581 3730
Síðustu TT námskeið
fyrir jól!
Nánari upplýsingar á jsb.is
[ Komdu, við kunnum þetta ]
Lágmúla 9 | 108 Reykjavík | Sími 581 3730 | jsb@jsb.is | www.jsb.is
stelpur 16-25 ára
8 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A Ð ∙ h e I l s A
0
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
8
-F
A
3
C
1
B
3
8
-F
9
0
0
1
B
3
8
-F
7
C
4
1
B
3
8
-F
6
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K