Fréttablaðið - 08.11.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 08.11.2016, Blaðsíða 20
Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmaðUr aUglýSinga Jón Ívar Vilhelmssson| jonivar@365.is | s. 512-5429 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is „Ég hafði lengi velt fyrir mér þeirri breytingu sem hefur orðið á skrif- stofurýmum síðustu áratugi, úr einkaskrifstofum yfir í opin rými. Mig langaði út frá sálfræðinni að vita hvort þessar breytingar og sú aðstaða sem fólk vinnur við hafi áhrif á fólk. Mig langaði að vita hvort einhverjar rannsóknir væru til á þessu, hvort fólki liði betur, hvort það ynni betur eða hvort þess- ar breytingar væru fyrst og fremst hugsaðar sem sparnaður,“ segir Lilja sem fékk hugmyndina að rit- gerðinni frá leiðbeinanda sínum Dr. Páli Jakobi Líndal. „Páll er umhverf- issálfræðingur og kynnti fagið fyrir mér,“ segir Lilja sem útskrifaðist úr sálfræði frá Háskóla Íslands í vor. Lilja vann tvær rannsóknir í tengslum við ritgerðina. „Ég sá strax þegar ég fór að skoða málaflokkinn að lítið hefur verið rannsakað af því sem mig langaði að skoða. Það er hvernig fólki líði í mismunandi skrifstofurýmum og hvernig mögu- leikar á sálfræðilegri endurheimt eru ólíkir eftir því hvernig vinnu- umhverfi fólk er í,“ segir Lilja og út- skýrir hugtakið. „Sálfræðileg endur- heimt verður þegar fólk endurheimt- ir andlega orku. Ef þú ert til dæmis að vinna að erfiðu verkefni og ein- beitir þér lengi, klárast athyglin og til verður svokölluð athyglisþreyta. Sálfræðileg endurheimt segir til um hvernig umhverfið getur hjálpað til við að endurheimta andlegan orku- forða.“ Glerveggurinn kom best út Við rannsóknina notaði Lilja þrjár myndir. Þær voru allar eins fyrir utan einn vegg. Á einni mynd var heill veggur, á annarri glerveggur og þeirri þriðju mattur glerveggur. Annars sýndi myndin gluggalausa hefðbundna skrifstofu. Í fyrri rannsókninni, sem var notuð til að staðla prófið, fékk Lilja þátttakendur á Facebook til að svara spurningalista en í þeirri síð- ari, meginrannsókninni, voru þátt- takendur úr háskólanum. „Í rannsókninni svaraði fólk ýmsum spurningum út frá því að það væri í þeim aðstæðum sem sáust á myndinni. Fólk átti að ímynda sér að það hefði verið að sinna krefjandi verkefni og þyrfti nú að hlaða batteríin og þurfti að meta hvernig skrifstofurýmið gæti hjálpað til við það,“ lýsir Lilja. Helstu niðurstöður rannsóknar- innar voru þær að glerveggurinn kom best út. „Það er eitthvað við hann sem hefur áhrif á sálfræði- lega endurheimt. Hins vegar voru blendnar niðurstöður með matta glervegginn en heili veggurinn kom sýnu verst út.“ Opin rými skila minni árangri Við undirbúning ritgerðarinnar las Lilja sér til um fjölmargar rann- sóknir. „Þar var margt áhugavert að finna. Rannsóknir hafa til dæmis sýnt að þessar opnu skrifstofur sem eru svo vinsælar í dag skila litlu öðru en sparnaði við bygg- ingu. Þær skila sér hvorki í betri afköstum eða líðan,“ segir Lilja. Hún segir helstu umkvörtunarefni fólks vera ónæði og hljóðmengun, sjónræn truflun og léleg loftræst- ing. „Loftræsting skiptir miklu um líðan starfsmanna en erfiðara er að loftræsta opin rými.“ Rannsóknir hafa einnig sýnt að gluggar skipta miklu. „Sýnt hefur verið fram á að gluggi í vinnurými hefur jákvæð áhrif á skynjaða fegurð rýmis og viðurvist glugga minnkar líkamleg og andleg óþæg- indi, líkt og erfiðleika með einbeit- ingu, þreytu og pirring.“ Lilja teng- ir þetta við eigin rannsókn og telur að þar sem gluggar séu ekki til stað- ar gæti glerveggur verið næstbesti kosturinn. „Með honum skapast ákveðið útsýni út fyrir skrifstofu sem einstaklingur er að vinna í og gæti það hugsanlega haft góð áhrif. Þá gæti slíkur veggur boðið upp á meiri möguleika til að hleypa inn náttúrulegri birtu frá ytri rýmum. Náttúruleg birta þykir æskilegri en gervibirta en sýnt hefur verið fram á að hún hefur jákvæð áhrif á skap, árvekni og vellíðan.“ Lilja segir plöntur einnig skipta miklu máli fyrir vinnuaðstöðuna. „Rannsóknir hafa sýnt að það að hafa plöntur í kringum fólk hefur mjög jákvæð áhrif, sérstaklega þegar kemur að sálfræðilegri end- urheimt,“ segir Lilja og útskýrir að mesta sálfræðilega endurheimtin eigi sér stað þegar fólk fer út í nátt- úruna. Að hafa plöntu á skrifstof- unni gefi örlítinn nasaþef af því. „Ég tel mikilvægt fyrir atvinnu- markað og samfélagið í heild að öðl- ast vitneskju um hvernig aðstæður séu ákjósanlegar fyrir starfsfólk og hvernig hægt sé að breyta út- liti vinnustaðar til hins betra fyrir streitustig, heilsu og líðan starfs- fólks,“ segir Lilja með áherslu. glerveggir skila betri líðan Áhrif mismunandi skrifstofurýma á sálfræðilega endurheimt, er heiti BS-ritgerðar lilju Vignisdóttur í sálfræði. Niðurstöður leiddu í ljós að glerveggur í gluggalausri skrifstofu veitir meiri möguleika til sálfræðilegrar endurheimtar en hefðbundin gluggalaus skrifstofa. Sólveig gísladóttir solveig@365.is Hollenska hönnunarfyrirtækið Arco hefur sent frá sér nýja línu skrifborða undir heitinu Grid Work. Höfundur línunnar er breski iðnhönnuðurinn Jonathan Prest- wich. Hann segir nútíma vinnu- staði snúast um frjálst flæði hug- mynda og þekkingar og því þurfi bæði skapandi og dýnamískt vinnuumhverfi. Fólk vinni einn- ig betur og skilvirkar ef því líður eins og heima hjá sér og því þurfi vinnuumhverfið að endurspegla það. Rýmið þurfi að vera nota- legt og hlýlegt. Þá sé heilsa starfs- fólks mikilvægt atriði og kyrr- seta afar heilsuspillandi. Því inni- heldur nýja línan einnig há borð sem hægt er að standa við. Það eykur ekki bara líkurnar á að fólk hreyfi sig meira og breyti oftar um vinnustellingar heldur verða slík- ar vinnueyjur einnig til þess að ýta undir vinnudínamík. Arco er rót- gróið fjölskyldufyrirtæki, stofn- að 1904, og sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu borða, bæði fyrir heimilið og skrifstofuna. Nánar má forvitnast um hönnun fyrir- tækisins á www.arco.nl Hlýlegheit í vinnu grid Work er heiti á nýrri línu skrifborða frá hollenska hönnunarfyrirtækinu arco. Sýnt hefur verið fram á að gluggi í vinnurými hefur jákvæð áhrif á skynjaða fegurð rýmis og viðurvist glugga minnkar líkamleg og andleg óþægindi, líkt og erfiðleika með ein- beitingu, þreytu og pirring. Lilja Vignisdóttir lilja Vignisdóttir skrifaði bS-ritgerð í sálfræði um áhrif mismunandi skrifstofurýma á sálfræðilega endurheimt. mynd/anton Hjá Fastus fæst fjölbreytt úrval af kaffivélum í öllum stærðum og gerðum fyrir vinnustaði og einstaklinga. Kíktu í heimsókn í verslun okkar og fáðu að smakka! Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 Opið mán - fös 8:30 - 17:00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn FJÖLBREYTT ÚRVAL AF KAFFIVÉLUM FYRIR SKRIFSTOFUNA fastus.is SkrifStofan kynningarblað 8. nóvember 20162 0 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 8 -F 5 4 C 1 B 3 8 -F 4 1 0 1 B 3 8 -F 2 D 4 1 B 3 8 -F 1 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.