Fréttablaðið - 08.11.2016, Síða 22

Fréttablaðið - 08.11.2016, Síða 22
Workplace er ætlað að bæta flæði upplýsinga, þekkingarmiðlun og samskipti ásamt því að auka afköst og bæta verkferla í sameiginlegum verkefnum þvert á starfsemina. Að sögn Árdísar Ármannsdóttur, samskiptastjóra Hafnarfjarðar- bæjar, er sveitarfélagið með hátt í 70 starfsstöðvar. „Miðillinn er til þess fallinn að tengja alla skóla, heimili og stofnanir Hafnarfjarð- arbæjar betur saman og tryggja að upplýsingar berist til starfs- manna. Starfsemi okkar er í eðli sínu fjölbreytt og þjónusta okkar meðal annars á sviði fræðslu-, frí- stunda-, skipulags-, umhverfis- og fjölskyldumála. Þvert á þessi svið starfa stjórnsýslusvið og fjármála- svið. Við sáum Workplace sem hentuga og góða leið til að virkja samskipti milli allra starfsmanna bæjarins, auka þekkingarmiðlun og ýta undir frekara samstarf í verkefnum. Einnig verða starfs- menn betur upplýstir um það sem er að gerast innan sveitarfélagsins og geta sjálfir deilt hugmyndum eða fréttum af spennandi verkefn- um, líkað við færslur og komment- að rétt eins og á Facebook. Þetta er stór vinnustaður og nú eru allir tengdir,“ útskýrir Árdís. Nýtist í margt Hún segir að miðillinn byggist á ákveðnum grunnhópum fyrir alla starfsmenn, hópum fyrir starfs- stöðvar og sjálfsprottnum faghóp- um. „Við settum ákveðna grunn- hópa upp í takt við þarfir sveitar- félagsins. Hver starfsstöð hefur sína eigin síðu til að deila sérhæfð- um upplýsingum og fróðleik. Fag- aðilar eru með hópa fyrir verk- efni sín, til dæmis dönskukennar- ar þvert á skóla. Grunnhópar fyrir alla eru nýttir til að deila frétt- um af starfseminni, ábendingum og tilkynningum um viðburði og fundi. Sjálfsprottnir hópar geta svo snúið að öllu mögulegu, sölu hluta, hjólreiðum eða matreiðslu. Miðillinn er til þess fallinn að efla starfsandann og „fyrirtækjamenn- inguna“ innan sveitarfélagsins“ segir Árdís. Mikið öryggi Workplace by Facebook safn- ar saman á einn stað upplýsing- um um starfsemina, myndum og sögu. Efnið sem þar fer inn er í eigu Hafnarfjarðarbæjar en ekki Face book. Facebook hefur gert mikið út á öryggi miðilsins. „Ég er sannfærð um að Workplace mun með tímanum fækka tölvupósti og spara tíma þegar starfsmenn hafa tamið sér notkun miðilsins. Nán- ast allir starfsmenn kunna á Face- book sem auðveldar mjög innleið- inguna“. Árdís segist ekki vita nákvæm- lega hversu mörg íslensk fyrirtæki hafi þegar tekið upp Workplace en þau séu nokkur. „Við fengum kynn- ingu á miðlinum hjá Icelandair og leist mjög vel á. Tveimur dögum eftir að við settum okkur í sam- band við Facebook fengum við boð um þátttöku og nú fjórum vikum síðar er allur mannauður Hafn- arfjarðarbæjar mættur til leiks á Workplace. Ferlið gekk mjög hratt fyrir sig og geri ég ráð fyrir að Face book hafi þótt spennandi að fá sveitarfélag með sér í þróun- arvinnuna á samskiptamiðlinum.“ Nýr miðill Workplace by Facebook er tiltölu- lega nýr miðill sem er að stíga sín fyrstu skref í heiminum. Um eitt þúsund fyrirtæki eru þegar komin með Workplace og voru 60.000 fyr- irtæki á bið þegar Hafnarfjarðar- bær sótti um þátttöku. Þegar Árdís er spurð hver sé svona framúrstefnulegur hjá bænum að taka þetta upp svar- ar hún. „Starfshópur var skipað- ur í kringum endurskipulagningu á innri vef. Þetta var niðurstaða hópsins. Við erum svo nýskapandi og framúrstefnuleg hjá Hafnar- fjarðarbæ. Workplace var opnað formlega í síðustu viku með veislu á öllum okkar stöðum og fengum við strax mjög jákvæð viðbrögð frá starfsmönnum. Miðillinn er strax orðinn mjög lifandi, áhuga- verður og skemmtilegur.“ Elín Albertsdóttir elin@365.is Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri fyrir miðju með hluta af starfsmönnum Hafnar- fjarðarbæjar. Áslaug Garðarsdóttir, Guðmunda Birna Þórhallsdóttir og Rósa Steingríms- dóttir, starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar fagna nútíma samskiptamiðlun. Árdís Ármannsdóttir, samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar. Bæjarstarfsmenn tengdir á Workplace Hafnarfjarðarbær hefur tekið í notkun samskiptamiðilinn Workplace by Facebook fyrir tæplega 1.700 starfsmenn sveitarfélagsins, fyrst íslenskra bæjarfélaga. Starfsmenn bæjar- ins eru sáttir við Facebook by Work- place. Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 Opið mán - fös 8:30 - 17:00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn VINSÆLIR OG VANDAÐIR RÁÐSTEFNUSTÓLAR Á GÓÐU VERÐI Hjá okkur fæst gott úrval af húsbúnaði fyrir ráðstefnur og minni fundi. Tryggðu þér og gestum þínum gott sæti, á vönduðum og þægilegum stólum á góðu verði. DHEENSAY fastus.is SkRiFStoFAn kynningarblað 8. nóvember 20164 0 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 8 -E 1 8 C 1 B 3 8 -E 0 5 0 1 B 3 8 -D F 1 4 1 B 3 8 -D D D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.