Fréttablaðið - 08.11.2016, Síða 30
Finnur þú fyrir sleni og framtaksleysi í vinnunni? Mögulega
getur þú bætt úr því á einfaldan hátt. Hér eru nokkur góð ráð
til að láta sér líða betur yfir daginn.
1) Borðaðu staðgóðan morgunverð. Þú gætir tapað orku og
orðið þreytt ef þú borðar ekkert áður en haldið er til vinnu.
2) Stundar þú líkamsrækt? Þótt þú teljir þig ekki hafa orku
skaltu samt fara. Það er ótrúlegt hvað orkan eflist með hreyf-
ingu.
3) Drekktu meira en minna vatn. Vertu með vatnsglas hjá þér
í vinnunni.
4) Borðar þú of sjaldan. Líkaminn þarf næringu til að halda
blóðsykrinum í jafnvægi yfir daginn. Best er að fá sér eitthvað
á þriggja til fjögurra tíma fresti.
5) Drekkur þú of mikið kaffi? Sérfræðingar segja að maður
ætti ekki að drekka meira en þrjá bolla af kaffi yfir daginn.
Kaffi getur aukið streituáhrif.
6) Finnur þú fyrir stressi? Streitan stelur orku. Reyndu að
forðast stress og ekki taka of mörg verkefni að þér.
7) Hugaðu að næringu. Borðaðu fisk og grænmeti. Skortur á
B6 og B12 getur orsakað þreytu.
8) Er mikið drasl á skrifborðinu þínu? Fólk sem er með mikið
dót á skrifborðinu á það til að tapa þræðinum í því sem það
er að gera.
9) Færðu þér vín til að sofa betur? Sumir telja að það hjálpi
með svefn en vínið framkallar mikla þreytu.
10) Skoðar þú samfélagsmiðla fyrir svefn? Það ættirðu ekki
að gera þar sem lýsingin frá skjánum getur haldið manni vak-
andi lengur og svefninn verður verri.
Þreyta í vinnunni?
Bræðurnir Ronan og Erwan
Buroullec hafa hannað kerfi skrif-
stofuhúsgagna fyrir Vitra, ann-
ars vegar bekki sem kallast Circle
bences og hins vegar línu hús-
gagna sem þeir kalla Cyl. Með
línunum nálgast bræðurnir vinnu-
umhverfið hvor úr sinni átt-
inni. Bekkirnir eiga að skapa
eins konar borgarstemmingu á
vinnustaðnum þar sem fólk hitt-
ist á óformlegum og afslöppuð-
um nótum, en Cyl-línan einblín-
ir á heimilislegt umhverfi þar sem
tækja- og tæknimenning er lítt
sýnileg.
Í spjalli við hönnunarvefinn
designboom segir Ronan Circle
bekkina upphaflega hafa verið
hannaða sem stóra útibekki á
torg í stórborgum þar sem fólk
gæti tyllt sér. Minni útfærsla
færi vel í móttökusölum hótela,
á söfnum og sannarlega á vinnu-
stöðum. Þá hafi Cyl skrifstofu-
húsgögnin verið hönnuð með
heimili í huga, þá bræðurna hafi
ekki langað að gera „hefðbund-
in“ skrifstofuhúsgögn. Línan sam-
anstendur af borðum, skilrúmum
og sófum úr hlýlegum viði sem
tengja má saman í nokkrar út-
færslur vinnueyja með sívalnings-
laga stálklemmum. Þeir Ronan
og Erwan hafa áður hannað skrif-
stofuhúsgögn fyrir Vitra, árið
2002, Join. Ronan segir að á þeim
tíma hafi grár og svartur í bland
við stál verið einkennandi fyrir
skrifstofur en þeir völdu aðra
leið, liti og textíl og marga sam-
setningarmöguleika. Sú lína vakti
strax gífurlega athygli en fólk
hafði efast um að línan gengi upp
í vinnustaðamenningunni. Hann á
allt eins von á að það sama verði
uppi á teningnum með nýju lín-
urnar.
Bouroullec-bræður
hanna fyrir Vitra
SkrifStofan kynningarblað
8. nóvember 201612
0
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
8
-F
A
3
C
1
B
3
8
-F
9
0
0
1
B
3
8
-F
7
C
4
1
B
3
8
-F
6
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K