Fréttablaðið - 08.11.2016, Síða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Bakþankar
Oft hefur stór sannleikur notað magnaða lygi til að viðhalda sjálfum sér. Lénskerfið not-
aði guð þar sem lénsherrar, kóngar
og klerkar trónuðu efst í valdapíra-
mídanum, athugasemdalaust, þar
sem það átti að vera vilji skaparans.
Sovétríkin reyndu líka að viðhalda
lygavefnum til að fóðra kommún-
ismann sem þeim var treyst fyrir en
svalt svo í fangi þeirra. Sú lygi hefur
og verið lífseig að frjálshyggjan sé
skilvirk og þar að auki réttlát því
hún sjái til þess að þeir hæfileika-
ríkustu eða duglegustu standi með
pálmann í höndunum, meðan vit-
leysingar og sitjandi krákur svelti.
Mér er minnisstæð grein Hann-
esar Hólmsteins frá liðnu sumri þar
sem hann sagði eitthvað á þá leið að
þeim sem gekk vel keyptu kvóta af
hinum sem gekk ekki jafn vel.
En það er ekki þannig að jafnt
sé gefið í upphafi og síðan vinni
þeir duglegu og hæfileikaríku.
Skattaskjólin, eignarhaldsfélögin,
stjórnmálin, einkavinavæðingin,
opinberar einkaframkvæmdir og
innmúraður valdapíramíti snúast á
sveif með einum meðan andstreymi
óréttlætisins ríður húsum annarra í
Efra-Breiðholti og víðar. Þetta vita
allir… sem vilja. Samt sem áður eiga
flokkar sem flytja fagnaðarerindi
frjálshyggjunnar alltaf sitt fasta
fylgi. Skiptir þá engu hversu mikinn
auð og andlegt þrek frjálshyggju-
bröltið hefur kostað almenning.
Það sér ekki á óbilandi trú þessa
fólks á úrsérgenginni lyginni. Oft
þegar ég stend ráðþrota leita ég til
Grikklands hins forna. Nú er mér til
dæmis hugsað til Seifs sem var refsi-
gjarn guð. Hann giftist systur sinni
en skipti svo hömum til að serða
hverja þá konu sem kitlaði óra hans.
Eitt sinn þegar eiginkonan kom að
honum breytti hann ástkonunni í
kú. En fólk treysti honum fyrir holl-
ustu sinni enda var hann sterkur.
Seifur og
Sjálfstæðismenn
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40
0
8
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
8
-C
3
E
C
1
B
3
8
-C
2
B
0
1
B
3
8
-C
1
7
4
1
B
3
8
-C
0
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K