Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.11.2016, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 08.11.2016, Qupperneq 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Oft hefur stór sannleikur notað magnaða lygi til að viðhalda sjálfum sér. Lénskerfið not- aði guð þar sem lénsherrar, kóngar og klerkar trónuðu efst í valdapíra- mídanum, athugasemdalaust, þar sem það átti að vera vilji skaparans. Sovétríkin reyndu líka að viðhalda lygavefnum til að fóðra kommún- ismann sem þeim var treyst fyrir en svalt svo í fangi þeirra. Sú lygi hefur og verið lífseig að frjálshyggjan sé skilvirk og þar að auki réttlát því hún sjái til þess að þeir hæfileika- ríkustu eða duglegustu standi með pálmann í höndunum, meðan vit- leysingar og sitjandi krákur svelti. Mér er minnisstæð grein Hann- esar Hólmsteins frá liðnu sumri þar sem hann sagði eitthvað á þá leið að þeim sem gekk vel keyptu kvóta af hinum sem gekk ekki jafn vel. En það er ekki þannig að jafnt sé gefið í upphafi og síðan vinni þeir duglegu og hæfileikaríku. Skattaskjólin, eignarhaldsfélögin, stjórnmálin, einkavinavæðingin, opinberar einkaframkvæmdir og innmúraður valdapíramíti snúast á sveif með einum meðan andstreymi óréttlætisins ríður húsum annarra í Efra-Breiðholti og víðar. Þetta vita allir… sem vilja. Samt sem áður eiga flokkar sem flytja fagnaðarerindi frjálshyggjunnar alltaf sitt fasta fylgi. Skiptir þá engu hversu mikinn auð og andlegt þrek frjálshyggju- bröltið hefur kostað almenning. Það sér ekki á óbilandi trú þessa fólks á úrsérgenginni lyginni. Oft þegar ég stend ráðþrota leita ég til Grikklands hins forna. Nú er mér til dæmis hugsað til Seifs sem var refsi- gjarn guð. Hann giftist systur sinni en skipti svo hömum til að serða hverja þá konu sem kitlaði óra hans. Eitt sinn þegar eiginkonan kom að honum breytti hann ástkonunni í kú. En fólk treysti honum fyrir holl- ustu sinni enda var hann sterkur. Seifur og Sjálfstæðismenn OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40 0 8 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 3 8 -C 3 E C 1 B 3 8 -C 2 B 0 1 B 3 8 -C 1 7 4 1 B 3 8 -C 0 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.