Fréttablaðið - 05.12.2016, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 05.12.2016, Blaðsíða 4
Beltone Legend™ Enn snjallara heyrnartæki Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.Bel to ne L eg en d ge ng ur m eð iP ho ne 6 s og e ld ri ge rð um , i Pa d A ir, iP ad (4 . k yn sl óð ), iP ad m in i m eð R et in a, iP ad m in i og iP od to uc h (5 . k yn sl óð ) m eð iO S eð a ný rr a st ýr ik er . A pp le , i Ph on e, iP ad o g iP od to uc h er u vö ru m er ki s em ti lh ey ra A pp le In c, s kr áð í Ba nd ar ík ju nu m o g öð ru m lö nd um . Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN Austurríki Norbert Hofer, fram- bjóðandi Frelsisflokksins í forseta- kosningunum í Austurríki, játaði ósigur sinn í gær. Hann óskaði mót- frambjóðanda sínum, Alexander Van der Bellen úr Græningjaflokkn- um, til hamingju í stöðufærslu á Facebook. „Við erum allir Austurríkismenn, óháð því hvernig við kusum. Lengi lifi heimaland okkar, Austurríki,“ sagði Hofer, sem hefur verið gagn- rýndur fyrir öfgasinnaðar þjóð- ernissósíalistaskoðanir sínar. Á meðal kosningaloforða hans var að loka landamærum Austurríkis fyrir innflytjendum og „setja Austurríki í fyrsta sæti“, eins og það var orðað. Meðal annars af þessum ástæðum var vel fylgst með þróun mála. Í sumum fjölmiðlum var gengið svo langt að fullyrða að stjórnmála- maður með viðlíka skoðanir hefði ekki verið við völd í Evrópu frá því í seinni heimsstyrjöldinni. Útgönguspár í gær bentu til þess að Vand der Bellen fengi 53,6 pró- sent atkvæða en Hofer 46,4 prósent. Sky fréttastofan greindi frá því í gær að endanleg úrslit yrðu ekki ljós fyrr en í dag þar sem talningu atkvæða væri ekki lokið. Sky segir að niðurstöðurnar komi nokkuð á óvart þar sem skoðana- kannanir sem birtar voru fyrir kjördag, sem var í gær, hefðu sýnt að staða frambjóðendanna væri hnífjöfn. Þetta var önnur umferð kosn- inganna, en sú fyrri fór fram í maí síðastliðnum. Þá sigraði Van der Bellen með minna en 1 prósents atkvæðamun. - jhh Austurríkismenn höfnuðu þjóðernisöfgum í forsetakosningum Útgönguspár sem birtar voru í gær bentu til þess að Alexander Van der Bellen fengi 54 prósent atkvæða. Hann ræddi við fjölmiðla í gær. FréttABlAðið/EPA Við erum allir Austurríkismenn, óháð því hvernig við kusum. Lengi lifi heimaland okkar, Austurríki. Norbert Hofer, sem tapaði í forseta- kosningum í Austurríki um helgina stjórnsýslA Með sameiningu allra sveitarfélaga í níu stór sveitarfélög mætti leggja niður Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og einfalda regluverk umtalsvert, að mati efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Samtökin hafa sent frá sér skýrslu um framtíð sveitarfélaganna þar sem aðaltillaga þeirra til að sporna við lélegri afkomu sveitarfélaganna á landinu er að sam- eina þau með róttækum hætti og fækka þeim um 65 alls, úr 74 í 9. „Við sjáum að stærri sveitarfélög eiga að skila aukinni stærðarhag- kvæmni. Þarna fáum við til að mynda tækifæri til þess að veita betri þjón- ustu þar sem stærri sveitarfélög eiga auðveldara með að draga til sín sér- hæft, vel menntað og reynslumikið fólk til starfa,“ segir Ólafur Loftsson, skýrsluhöfundur og starfsmaður efnahagssviðs SA. „Það hefur verið mikið í umræð- unni að færa fleiri verkefni frá ríki til sveitarfélaga en það er einfaldlega ekki hægt þegar við erum með svona mörg lítil sveitarfélög eins og núna. Málefni fatlaðra voru færð yfir árið 2011 en málið er að þau ráða bara ekki við það. Tilfærsla grunnskólanna árið 1996 hafði mjög jákvæð áhrif á sameiningar sveitarfélaganna en yfir- færslan á málefnum fatlaðra hafði engin áhrif til sameiningar af því að þá var ákveðið að stofna þjónustu- svæði sem er ekkert annað en við- bótarstjórnsýslustig,“ segir Ólafur. Í skýrslunni kemur fram að sam- starfsverkefni sveitarfélaganna séu nú 328 talsins. Samskipti þeirra á milli séu flókin og kostnaðarsöm Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Fjallabyggð sem varð til við samein- ingu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar árið 2006, segist sammála um að það megi fækka sveitarfélögum. Þessar tillögur gangi þó helst til of langt. „Ég held að þetta sé algjörlega út í hött nema í einhverri langri framtíð. Í raun og veru fer valdið á einn stað langt frá flestum af þessum byggðarkjörnum. Ef það er hagfellt þá er ég sammála því en það má ekki tapa þessari nánd við kjörna fulltrúa og embættismenn, sem óhjákvæmilega yrði. Svo er annað líka. Það ríkir ákveðin samkeppni á milli sveitarfélaga þann- ig að menn gera vel við sína íbúa. Það verður allt drepið niður með þessu. Þetta er bara miðstýring. Það er eigin- lega ótrúlegt að þetta komi úr ranni Samtaka atvinnulífsins.“ Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segist hrifinn af hugmyndinni. Hug- myndir í þessa átt hafi komið frá sam- ráðsvettvangi um aukna hagsæld á Íslandi og heyrst í ráðherratíð Krist- jáns Möller á þarsíðasta kjörtímabili. „Einfaldasta leiðin á Íslandi væri sú að það væri einhver lágmarks íbúa- fjöldi lögfestur.“ Halldór segir að slíkt hafi verið gert í Danmörku þar sem sveitarfélög máttu ekki hafa færri en 20 þúsund íbúa. „Við viljum sjá eflingu sveitar- stjórnarstigsins með sameiningu sveitarfélaganna en að íbúarnir eigi síðasta orðið. Danirnir fóru þessa Excel-leið og svo gátu sveitarfélögin sjálf ákveðið hverjum þeir vildu sam- einast.“ snaeros@frettabladid.is Telja að fækkun sveitarfélaga um 65 myndi auka hagræði Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, undrast tillögur Samtaka atvinnulífsins í átt til meiri mið- stýringar. Hann segist þó jákvæður gagnvart því að ná fram meiri hagræðingu í rekstri sveitarfélaganna. 10.281 ✿ sveitarfélög eftir sameiningar Fjöldi íbúa* 6.883 7.128 29.361 22.509 15.766 26.982 reykjavík Seltjarnarnes Mosfellsbær Kópavogur Garðabær Hafnarfjörður 123.536 77.046 ítAlíA Ítalir greiddu í gær atkvæði um róttækar kerfisbreytingar á öldunga- deild þingsins. Atkvæði voru greidd um hvort fækka beri öldungadeildarþing- mönnum úr 315 í 100, hætt verði að kjósa til öldungadeildar með beinni þjóðaratkvæðagreiðslu en í staðinn verði hún skipuð kjörnum sveitar- stjórnarmönnum og fulltrúum skip- uðum af forseta. Þá var kosið um að afnema vald öldungadeildarinnar til að leggja fram vantraust á ríkis- stjórnina. Búist er við niðurstöðum úr kosn- ingunum snemma í dag. Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur sagt ætla að segja af sér embætti verði tillögurnar ekki samþykktar. - snæ Ítalir að kjörborðinu BAndAríkin Tugir létust í elds- voða í Oakland í Bandaríkjunum á föstudag. Eldurinn kom upp í vöru- skemmu þar sem heilmikil skemmt- un var haldin. Búið er að finna lík 24 einstaklinga en enn á eftir að fara yfir um 80 prósent svæðisins sem varð eldinum að bráð. „Fjöldi látinna á enn eftir að aukast,“ sagði Ray Kelly lögreglu- stjóri í tengslum við leitina. Unnið er að því að bera kennsl á líkin með hjálp tannlæknagagna og DNA-sýna. Þá hefur samfélag trans- fólks verið virkjað til að hjálpa til við að bera kennsl á líkin. – snæ  Tugir látnir í eldsvoða Eldurinn kom upp í vöruskemmu. FréttABlAðið/EPA Það ríkir ákveðin samkeppni á milli sveitarfélaga þannig að menn gera vel við sína íbúa. Það verður allt drepið niður með þessu. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Fjalla- byggð Málefni fatlaðra voru færð yfir árið 2011 en málið er að þau ráða bara ekki við það. Ólafur Loftsson, starfsmaður efnahags- sviðs SA 5 . d e s e m B e r 2 0 1 6 m Á n u d A G u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A ð i ð 0 5 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :4 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 8 C -D 6 7 C 1 B 8 C -D 5 4 0 1 B 8 C -D 4 0 4 1 B 8 C -D 2 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.