Fréttablaðið - 05.12.2016, Qupperneq 6
Saga tónlistarinnar eftir Árna Heimi Ingólfs-
son tónlistarfræðing er fyrsta yfirlitsritið um
tónlistarsögu eftir íslenskan höfund og hentar
jafnt tónlistarfólki, tónlistarunnendum og
tónlistarnemum, sem og öllu áhugafólki
um listir og menningu.
ÍSLENSKU
BÓKMENNTAVERÐLAUNIN
T I L N E F N I N G A R 2 0 1 6
Bruno Rangel, leikmaður brasilíska knattspyrnuliðsins Chapecoense, var borinn til grafar í gær. Rangel er einn þeirra sem létust í flugslysi í Brasilíu
hinn 28. nóvember síðastliðinn. Alls dó 71 í flugslysinu. Rangel hefði orðið 35 ára gamall þann 12. desember. Fréttablaðið/EPa
Knattspyrnumaður borinn til grafar
DANMÖRK Fyrr á þessu ári ákvað
danska þingið að hækka greiðslu
til kvenna sem vilja gefa egg til
tæknifrjóvgunar úr 2.400 dönskum
krónum í 7.000. Fleiri konur hafa
þess vegna snúið sér til tæknifrjóvg
unarstofanna í því skyni að gefa egg,
að því er segir í frétt danska ríkis
útvarpsins.
Stofurnar hafa hins vegar ekki
fengið aukna fjárveitingu frá hinu
opinbera vegna hærri greiðslna
og þess vegna hefur þurft að vísa
konum frá sem vilja gefa egg. – ibs
Þurfa að vísa
eggjagjöfum frá
Hærri greiðslur til eggjagjafa bitna á
frjóvgunarstofum. NOrDiCPHOtOS/GEttY
feRðAþjóNustA Það má segja að
ferðaþjónustan heyri undir þrjú
fagráðuneyti, hið minnsta, og því
vantar allan fókus innan stjórnkerf
isins varðandi málefni ferðaþjónust
unnar. Heilt yfir býr greinin við stór
gallaða umgjörð og veikt regluverk.
Ábyrgð nýrrar ríkisstjórnar er mikil
í að tryggja einfalda og skilvirka
umgjörð fyrir eins hratt vaxandi
atvinnugrein og ferðaþjónustan er.
Þetta er mat Helgu Árnadóttur,
formanns Samtaka ferðaþjónust
unnar (SAF). Í leiðara í nýjasta frétta
bréfi SAF beinir hún orðum sínum
til forsvarsmanna stjórnmálaflokk
anna vegna fyrirheita um aukið
fjármagn til uppbyggingar innviða,
velferðar og menntamála. Það hljóti
að þýða að forgangsverkefnið sé að
tryggja samkeppnishæft og stöðugt
rekstrarumhverfi fyrirtækjanna í
landinu.
„Hvað ferðaþjónustuna varðar þá
hafa fyrirtækin tekist á við miklar
launahækkanir síðustu misserin,
neikvæð áhrif styrkingar íslensku
krónunnar, stórgallaða umgjörð og
veikt regluverk. Eftirliti með ólög
legri og svartri starfsemi er verulega
ábótavant og ólíðandi að fyrirtæki
í ferðaþjónustu skuli þurfa að eiga
í samkeppni við þá sem ekki skila
sköttum og skyldum í ríkissjóð.
Ríkið verður á sama tíma að axla
ábyrgð gagnvart öryggi ferðamanns
ins, t.a.m. er áætlað að um 30% allra
gistinátta séu í leyfislausu húsnæði
þar sem öryggismál eru ekki tryggð,“
skrifar Helga.
Spurð til hvers hún vísar með orð
unum „stórgölluð umgjörð og veikt
regluverk“, segir Helga af nægu að
taka en nefnir sem dæmi að ferða
þjónustan heyri nú í raun undir þrjú
ráðuneyti hið minnsta. Atvinnu og
nýsköpunarráðuneytið, innanríkis
ráðuneytið vegna samgangna og
umhverfisráðuneytið vitaskuld.
„Svo varðar þetta leyfisveitingar
– um allt kerfið; eftirliti er verulega
ábótavant til dæmis gagnvart heima
gistingu, ferðum upp á jökla og þess
háttar. Heildstæðar upplýsingar og
tölfræðigögn vantar og stofnanaum
gjörðin er flókin og ferðaþjónustan
oftar en ekki veikburða innan henn
ar,“ segir Helga og nefnir sem enn eitt
dæmið að þrír þjóðgarðar eru undir
þremur stofnunum með þrenn mis
munandi lög.
Lög um skipan ferðamála eru barn
síns tíma, og ekki í takt við þá þróun
sem orðið hefur í greininni. Hlutverk
Stjórnstöðvar ferðamála er að rýna
þessi verkefni sem er að sjálfsögðu
afar aðkallandi fyrir hratt vaxandi
og afar mikilvæga atvinnugrein. Ný
ríkisstjórn verður að taka á þessum
málum af fullum þunga á næsta kjör
tímabili og tryggja einfalda umgjörð
um greinina sem og regluverk,“ segir
Helga. svavar@frettabladid.is
Stórgölluð umgjörð og veikt regluverk
Helga Árnadóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að öll umgjörð stjórnkerfisins hvað greinina varðar sé stórgölluð. Þrjú
ráðuneyti hafa umsjón með ólíkum verkefnum. Ný ríkisstjórn verði að taka á ágöllum kerfisins með fullum þunga og styrkja innviði.
Gjaldeyristekjur
460 milljarðar
l 450 til 460 milljarðar verða
gjaldeyristekjur ferðaþjónust-
unnar á þessu ári, áætla Samtök
ferðaþjónustunnar.
l 70 milljarðar verða skatttekjur
ríkisins af ferðaþjónustunni í
það minnsta.
l 1,8 milljónir erlendra ferða-
manna koma til landsins í ár eða
rösklega 40% fleiri en í fyrra.
Eftirliti með ólög-
legri og svartri
starfsemi er verulega ábóta-
vant og ólíðandi að fyrirtæki
í ferðaþjónustu skuli þurfa
að eiga í samkeppni við þá
sem ekki skila
sköttum og
skyldum.
Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri
SAF
7.000
krónur danskar eru greiddar
konum sem gefa egg.
5 . D e s e M b e R 2 0 1 6 M Á N u D A G u R6 f R é t t i R ∙ f R é t t A b L A ð i ð
0
5
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
8
C
-E
A
3
C
1
B
8
C
-E
9
0
0
1
B
8
C
-E
7
C
4
1
B
8
C
-E
6
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K