Fréttablaðið - 05.12.2016, Side 12
5 . d e s e m b e r 2 0 1 6 m Á N U d A G U r12 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Leikmaður helgarinnar
Alexis Sánchez, leikmaður Arsenal, lék á als oddi í 1-5 sigri liðsins á West
Ham á útivelli á laugardaginn. Þegar dómari leiksins flautaði til leiksloka var
Sílemaðurinn búinn að skora þrennu og leggja upp eitt mark.
Sánchez, kantmaður að upplagi, hefur haldið Oliver Giroud úr framlínu
liðsins og þar virðist Arsené Wenger, stjóri Arsenal,
heldur betur hafa hitt í mark líkt og Sánchez hefur
gert ellefu sinnum í deildinni. Er hann marka-
hæsti leikmaður deildarinnar ásamt Diego Costa
hjá Chelsea.
Í gegnum tíðina hefur það oft reynst Arse-
nal erfitt að skora gegn liðum sem leggjast
í vörn líkt og West Ham gerði um helgina.
Með Sanchez hefur það snarbreyst,
enda gefur hann Arsen al-liðinu
sprengikraft og baráttu-
anda sem ef til vill hefur
skort á í fremstu víglínu
hjá Arsenal.
Gott dæmi um þetta eru
fyrstu mörk Arsenal í leiknum sem urðu
til nánast úr engu, þökk sé útsjónarsemi
og krafti Sánchez. Ef einhver mun skjóta
Arsenal leið að titlinum er það hann.
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Ekkert virðist geta
stöðvað ótrúlega
framgöngu Chelsea
í deildinni. Liðið var
afar þrautseigt í 1-3 sigri
á útivelli gegn Manchester City,
annar sigurinn í röð á andstæð-
ingum í toppbaráttunni. Liðið er í
átta leikja sigurhrinu og er á hraðri
leið að titlinum.
Hvað kom á óvart?
Fátt virðist benda til
annars en auðvelds
sigurs Liverpool gegn
Bournemouth á Vital-
ity-vellinum í gær. Staðan var 1-3
þegar lítið var eftir en ótrúlegur
baráttuandi skilaði heimamönnum
þremur mörkum á síðasta korteri
leiksins. Áfall fyrir Liverpool sem
sýnir að enn er mikið verk að vinna
fyrir Jürgen Klopp.
Mestu vonbrigðin
Margir voru spennt-
ir fyrir endurkomu
Gylfa Sigurðssonar á
White Hart Lane um
helgina þar sem hann
spilaði gegn sínum gömlu félögum
í Tottenham. Swansea-liðið átti
því miður eina verstu frammi-
stöðu tímabilsins og sá Gylfi, líkt
og liðsfélagar hans, aldrei til sólar
í 5-0 tapi.
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 13. umferðar 2016-17
Man City - Chelsea 1-3
Sjálfsmark - Diego Costa, Willian, Eden
Hazard
Tottenham - Swansea 5-0
Harry Kane 2, Christian Eriksen 2, Son
Heung-Min.
C. Palace - Southampton 3-0
Christian Benteke 2, James Tomkins.
Stoke - Burnley 2-0
Jonathan Walters, Marc Muniesa.
Sunderland - Leicester 2-1
Sjálfsmark, Jermain Defoe - Shinji Okazaki.
WBA - Watford 3-1
Jonny Evans, Chris Brunt, Matt Philipps.
West Ham - Arsenal 1-5
Andy Carroll - Alexis Sánchez 3, Mesut Özil,
Alex Oxlade-Chamberlain.
B’mouth - Liverpool 4-3
Callum Wilson, Ryan Fraser, Steve Cook,
Nathan Aké - Sadio Mané, Divock Origi,
Emre Can.
Everton - Man Utd. 1-1
Leighton Baines - Zlatan Ibrahimovic.
M’brough - Hull
Leikurinn hefst klukkan 20.00 í kvöld og er í
beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
FÉLAG L U J T MÖRK S
Chelsea 14 11 1 2 32-11 34
Arsenal 14 9 4 1 33-14 31
Liverpool 14 9 3 2 35-18 30
Man City 14 9 2 2 30-15 30
Tottenham 14 7 6 1 24-10 27
Man Utd. 14 5 6 3 19-16 21
WBA 14 5 5 4 20-17 20
Everton 14 5 5 4 17-16 20
Stoke 14 5 4 5 16-19 19
B’mouth 14 5 3 6 19-22 18
Watford 14 5 3 6 18-24 18
S’oton 14 4 5 5 13-15 17
Crystal P 14 4 2 8 24-26 14
Burnley 14 4 2 8 12-23 14
Leicester 14 3 4 7 17-24 13
M’brough 13 2 6 5 12-15 12
West Ham 14 3 3 8 15-29 12
Sunderland 14 3 2 9 14-24 11
Hull 13 3 2 8 11-28 11
Swansea 14 2 3 9 16-31 9
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum á Englandi
Swansea City
Gylfi Þór Sigurðsson
Lék allan leikinn þegar
Swansea steinlá, 5-0, fyrir
Tottenham á hans gamla heimavelli.
Swansea er aftur komið í botnsætið.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Lék allan tímann þegar
Cardiff gerði markalaust
jafntefli við sterkt lið Brighton.
Wolverhampton Wanderers
Jón Daði Böðvarsson
Kom inn á sem varamaður
þegar Wolves vann kær-
kominn sigur á QPR.
Fulham
Ragnar Sigurðsson
Var ekki í leikmannahópi
Fulham sem vann 5-0 stór-
sigur á Reading á heimavelli.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
Stóð vaktina í vörn Bristol
City sem bar sigurorð af
Ipswich Town, 2-0, á heimavelli.
Pep Guardiola var síkvartandi í dómurum leiks Manchester City og Chelsea um helgina. Tveir leikmenn liðsins fengu rautt spjald fyrir gróf brot í leiknum. Pirringurinn virðist vera að stigmagnast á Etihad-vellinum. FRÉTTABLAðið/GETTy
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Lék ekki með Burnley í 2-0
tapi fyrir Stoke City vegna
meiðsla. Þetta var þriðja tap Burnley
í röð.
FótboLti Eftir flugstart í upphafi
tímabils þar sem Manchester City-
lið Peps Guardiola virtist boða nýja
tíma í enska boltanum hefur olíu-
veldinu mikla fatast flugið. Liðið
var með fullt hús stiga eftir sex leiki
en hefur síðan aðeins nælt sér í tólf
stig í átta leikjum. Liðið getur ekki
unnið leik á heimavelli og mótlæt-
ið virðist fara hressilega í taugarnar
á leikmönnum og þjálfara liðsins.
Fóru á taugum í toppslagnum
Þrátt fyrir að haft mikla yfirburði
framan af leik City gegn Chelsea
um helgina tókst liðinu ekki að
næla í sinn fyrsta heimasigur
frá 17. september. Eftir klukku-
stundarleik jafnaði Chelsea og leik-
menn City virtust hreinlega fara á
taugum.
Það sama má segja um Guardi-
ola sem hafði allt á hornum sér á
hliðarlínunni. Reiðin beindist þó
síst að hans mönnum, þrátt fyrir
slælega frammistöðu. Fjórði dóm-
arinn, Mike Dean, vann yfirvinnu
við að taka á móti kvörtunum frá
Guardiola sem virtist afar ósáttur
við frammistöðu dómara leiksins,
Anthonys Taylor.
Sífellt tuð og pirringur Guardi-
ola virðist hafa smitast yfir til leik-
mannanna sem gengu af göflunum
skömmu fyrir leikslok. Sergio Agu-
ero lét reka sig út af vellinum eftir
glórulausa tæklingu á David Luiz og
Fernandino fór sömu leið eftir að
hafa hrint Cesc Fabregas yfir aug-
lýsingaskilti. Pressan virðist vera að
ná til leikmanna og stjóra City.
Pirraður Pep loksins að glíma við mótlæti
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, stendur nú frammi fyrir fyrsta raunverulega mótlæti ferils síns. Liðið tapaði illa í toppslagnum gegn Chelsea á laugardag-
inn og hefur ekki unnið heimaleik frá því í september. Varnarleikur Man. City hefur verið slakur en liðið hefur aðeins tvisvar haldið hreinu í fjórtán deildarleikjum.
Ekkert pláss fyrir mistök
Ferilskrá Peps er glæsileg og skal
engan undra að City hafi leitað til
hans til þess að koma félaginu á
þennan stað. Ef það er þó hægt að
gagnrýna hann fyrir eitthvað er það
sú staðreynd að hann hefur alltaf
tekið við frábærum liðum með yfir-
burðastöðu. Aldrei hefur hann glímt
við það sem hann stendur nú fyrir
frammi fyrir hjá City.
Nú tók hann við öldruðu liði sem
hafði staðið sig mun verr en efni
stóðu til síðustu tvö tímabil. Sókn-
arlega séð er liðið vissulega vel skip-
að en þegar kemur að vörninni er
liðið án afgerandi leiðtoga. Hingað
til hefur liðið aðeins haldið hreinu
tvisvar i deildinni sem er ekki boð-
legt fyrir lið sem ætlar sér að vinna
titilinn. Pep þarf að taka til á flestum
vígstöðvum á sama tíma og ætlast er
til þess að hann vinni titilinn og fari
langt í Meistaradeildinni.
Hjá fyrri liðum sínum naut Pep
þess að stýra algjörum yfirburða-
0
5
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
8
C
-C
C
9
C
1
B
8
C
-C
B
6
0
1
B
8
C
-C
A
2
4
1
B
8
C
-C
8
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K