Fréttablaðið - 05.12.2016, Side 13

Fréttablaðið - 05.12.2016, Side 13
fólk kynningarblað 5 . d e s e m b e r 2 0 1 6 m Á N U d A G U r „Sérþjálfaðir starfsmenn okkar eru boðnir og búnir til að aðstoða eftir fremstu getu,“ segir Óskar Gísli Óskarsson hjá Haga ehf. að Stórhöfða 37. mynd/Ernir meðal vörumerkja sem fást í versluninni eru TimberlandPro, Howard Light og miller. Í núverandi húsnæði Haga að Stór­ höfða 37 er rúmgóður sýningar­ salur sem geymir þverskurð­ inn af fjölbreyttu vöruframboði HILTI, sem gestir og gangandi geta fengið að skoða og prófa að sögn Kristjáns Inga Óskarssonar, framkvæmdastjóra Haga. „Við erum hér með býsna gott úrval, svo sem naglabyss­ ur, skrúfvélar, kjarnabora, slíp­ irokka, stingsagir, demantssagir og höggfleyga og önnur rafmagns­ verkfæri, sem eiga það sammerkt að vinna sig í gegnum steypu eða stál á einn eða annan hátt,“ segir Óskar Gísli Óskarsson og bætir við að einnig sé um að ræða tengdar vörur, til dæmis almenn trésmíðaverkfæri, múrfesting­ ar, röraupphengjur og bygginga­ vinkla. Óskar Gísli segir Haga kapp­ kosta að bjóða upp á góða þjón­ ustu. Það sjáist meðal annars af því hvernig fyrirtækið reynir að spara væntanlegum viðskipta­ vinum sporin með því að senda til þeirra sérþjálfaða sölumenn til að kynna fyrir þeim verkfær­ in frá HILTI. „Þessi verkfæri eru ótrúlega vönduð, afkastamikil og endingargóð og við kynnum fyrir fólki rétta meðhöndlun, umhirðu og notkunarmöguleika hvers verk­ færis fyrir sig.“ Hann getur þess að viðskipta­ vinir geti fengið að halda verk­ færum eftir til reynslu til skamms tíma ef því er að skipta, en það sé hins vegar háð samkomulagi beggja aðila. „Til frekara marks um góða þjónustu má geta þess að notendur eiga rétt á fríu við­ haldi í eitt til tvö ár og lífstíðar­ verksmiðjuábyrgð,“ segir hann og tekur fram að notendum gef­ ist jafnframt kostur á að fá lánað sambærilegt verkfæri á meðan á viðgerð stendur. „Verkfærum hættir til að bila á versta tíma og með þessu viljum við fyrirbyggja að viðskiptavinir okkar stoppi í miðjum klíðum og lendi í einhverju veseni.“ Í versl­ un Haga fást fleiri vöruflokk­ ar, öryggistæki fyrir fasteignir, brunaþéttiefni til húsbygginga, iðnaðarryksugur og laser­mæl­ ingatæki. Þá er einnig fyrirliggj­ andi hágæða vinnufatnaður frá Snickers Work Wear og öryggis­ útbúnaður frá Sperian Protection en undir því eru hin viðurkenndu vörumerki TimberlandPro, How­ ard Light og Miller. Þar er líka að finna vélaleigu sem fyrirtækið hefur haldið úti í fjörutíu ár. „Þar er hægt að fá leigð ýmis áhöld, borvélar, brotverkfæri, byggingavörur og fleira. „Vel er tekið á móti öllum og sérþjálfaðir starfsmenn okkar boðnir og búnir til að aðstoða eftir fremstu getu,“ segir Óskar Gísli. Nánari upplýs­ ingar um vöruúrval HILTI má nálgast á vefsíðunni hilti.com. Allt fyrir steypu og stál Hagi kynnir Í verslun Haga ehf. að Stórhöfða 37 fæst fjölbreytt úrval rafmagnsverkfæra frá þýska framleiðandanum HILTI. Fyrirtækið Hagi ehf., sem var áður starfrækt undir merkjum Umboðs- og heildverslunar Björns G. Björnssonar sf., hefur um áratugaskeið séð íslenskum iðnaðarmönnum, fyrirtækjum og einstaklingum fyrir verkfærum frá HILTI. Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík S: 58 58 900- www.jarngler.is Fyrirtæki - Húsfélög ————————— Við bjóðum upp á sjálfvirkan hurða- opnunarbúnað ásamt uppsetningu og viðhaldi Auðveldar aðgengi, hentar vel fyrir aðgengi fatlaðra. Áratuga reynsla af búnaði tryggir gæðin. Skatan er komin á Sjávarbarinn! Erum byrjuð að framreiða ilmandi skötu með öllu tilheyrandi. Alla daga fram að jólum. Afsláttur fyrir hópa. Pantanir í síma 517 3131 og 696 5900. Sjávarbarinn – Grandagarði 9 – sjavarbarinn.is Skötuveisla 3.600 kr. fyrir tvo til og með 16.des. Klipptu flipann út og taktu með þér. 2 FYRIR 1 Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40 Verslunin býður gott úrval verkfæra sem eiga það sammerkt að vinna sig í gegnum steypu eða stál á einn eða annan hátt. 0 5 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :4 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 8 C -D B 6 C 1 B 8 C -D A 3 0 1 B 8 C -D 8 F 4 1 B 8 C -D 7 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.