Víkurfréttir - 06.09.1984, Síða 4
4 Fimmtudagur 6. september 1984
VÍKUR-fréttir
OPIÐ
alla daga
frá kl.
11:30 - 21:00
og
föstudaga og
laugardagatil
^PUlSUVflGNINNp
kl 4 e.m. VERIÐ VELKOMIN.
Fasteignasalan
Hafnargötu 27 - Keflavík
KEFLAVÍK:
Einbýlishús og raöhus:
Einbýlishús við Aöalgötu, 4 herb. og eldhús, eng-
ar skuldir .................................. 1.000.000
Viðlagasjóöshús við Elliðavelli, 126 ferm. m/hita-
veitu ........................................ 2.100.000
Raðhús við Greniteig m/bílskúr, í mjög góðu
ástandi ...................................... 2.550.000
Einbýlishús við Heiðarbakka, 138ferm.......... 2.750.000
Einbýlishús viö Kirkjuveg, nýstandsett ....... 1.600.000
Einbýlishús við Langholt m/bilskúr, vandað hús 3.500.000
Ibúöir:
5 herb. íbúð við Háaleiti, 160 ferm., m/60 ferm.
bílskúr ...................................... 2.500.000
5 herb. íbúð við Austurgötu m/bílskúr ........ 1.600.000
5 herb. íbúð við Faxabraut (haeð og risj, losnar
fljótlega .................................... 1.850.000
5 herb. e.h. við Hátún ásamt stórum bílskúr, laus
strax ........................................ 1.850.000
3-4ra herb. íbúð við Hringbraut .............. 1.050.000
5 herb. sérhæð við Smáratún, glæsileg eign ., 2.500.000
5 herb. íbúð við Suðurgötu (hæð og ris) ...... 2.000.000
5 herb. íbúð við Suðurgötu m/bílskúr ......... 1.650.000
4ra herb. ibúð við Austurbraut m/bílskúr, laus
strax ........................................ 1.600.000
4ra herb. ibúö viö Kirkjuveg, 140 ferm........ 1.650.000
3ja herb. ibúð við Heiðarhvamm, glæsileg ibúð,
fullgerð ..................................... 1.500.000
3ja herb. íbúö viö Hringbraut, ný standsett ... 1.250.000
3ja herb. íbúð við Kirkjuveg ................... 850.000
3ja herb. íbúð viö Sunnubraut, igóðu ástandi, ser
inngangur .................................... 1.400.000
Fastelgnir i smíöum:
3ja herb. íbúö viö Heiðarholt, tilb. undir tréverk,
aðeins ein íbúð óseld (seljandi: Húsagerðin hf.) 1.060.000
Glæsilegt einbýlishús við Háteig m/bílskúr, 210
ferm. Skipti á ódýrari fasteign koma til greina 3.100.000
Parhús og raöhús við Heiðarholt og Norður-
velli .......................... 1.580.000-1.810.000
NJARÐVÍK:
Einbýlishús við Borgarveg ásamt stórum bílskúr 2.400.000
Einbýlishús viö Holtsgötu m/bílskúr, 198ferm. 3.000.000
SANDGERÐI:
Fiskverkunarhús við Strandgötu (stálgrindahús) 2.800.000
Höfum til sölu einbýlishús og raðhús við Ása-
braut, Hjallagötu, Suðurgötu og Vallargötu. Nán-
ari upplýsingar á skrifstofunni.
GARÐUR:
Höfum ásöluskráúrval af einbýlishúsum m.a. við
Einholt, Garöbraut, Heiðarbraut, Rafnkelsstaða-
veg, Sunnubraut, Urðarbraut og víðar. Nánari
upplýsingar gefnar á skrifstofunni.
GRINDAVÍK:
Einbýlishús við Baðsvelli með bílskúr .... 2.100.000
Einbýlishús við Heiðarhraun m/bílskúr, vönduð
eign ..................................... 2.700.000
2ja og 3ja herb. íbúðir i smíðum við Heiðar-
hraun .......................... 985.000 - 1.150.000
Kirkjuteigur 15, Keflavik:
Hús 180 m2, 6 herb. og eld-
hús. 2.500.000.
Faxabraut 62, Keflavik:
Hús 162 m2, bílskúr 33 m2.,
6 herb. og eldhús.
2.900.000.
FASTEIGNASALAN
Hafnargötu 27 - Keflavík - Sími 1420
Tjarnarsel:
Mikið um skemmdarverk á
leiktækjum
- meðan lokað er þ.e. á kvöldin og um helgar
Hóll þessi hefur þegar verið skemmdur mikið.
Þessi leikgrind hefur oft fengið að finna fyrir skemmdar-
vörgunum.
Að undanförnu hefur
borið mikið á skemmdar-
verkum á hinum ýmsu leik-
tækjum við Tjarnarsel. Er
blaðamaður kom við þar
dag einn fyrir stuttu, blasti
við honum niðursagað.
mark og fleiri skemmdir.
( viðræðum við forstöðu-
konu og aðra starfsmenn
kom fram, að í vor hefði
verið sett upp mark fyrir
krakkana, en er starfsfólkið
var í sumarfríi frá þvi íjúlí og
fram I ágúst, var netið í
markinu skorið í sundur og
markstengurnar, sem eru úr
járni, sagaðar í sundur.
Meðan á sumarfríinu stóð
var settur upp hóll bæði
fyrir krakkana til að leika
sér á snjóþotum í tur og
leika sér á. Er hann nú allur
sundurgrafinn og tættur,
því þar hafa eldri krakkar
verið á hjólum um helgar.
Þá er þarna leikgrind með
neti, sem krakkarnir geta
klifrað í, þar hefur netið oft
verið skorið, síðan var brot-
ist inn í leiktækjaskúrinn,
brotinn þar gluggi og
skúrinn skilinn eftir í rúUog
ýmsum leiktækjum stolið,
s.s. barna-payloderum.
Sögðu konurnar sem
þarna starfa, að algengt
væri að krakkar um og yfir
fermingu væru þarna á
kvöldin og um helgar, og
mætti jafnvel koma að þeim
10-20 mínútum eftir að
lokað er á kvöldin. Þó
hliöunum hefði verið lokað
með lásum væri oft búið að
brjóta þá upp að kvöldi.
Hafa mál farið mikið á verri
veg nú síðla sumars og er
alltaf eitthvað skemmt.
( mörg ár hafa litlir krakk-
ar komið þarna inn um
helgar til að leika sér, en nú
virðist svo vera sem þau
þori ekki inn fyrir þeim eldri,
sem skemma meira og
minna í hvert skipti. Er
slæmt til þess að vita að
svona staðir skuli ekki geta
fengið að vera í friði fyrir
þessum skemmdarvörgum.
epj.
Nýtt fyrirtæki:
Öryggisþjónustan GÆSLAN
Forráðamenn Öryggisþjónustunnar, þeir bræður Sigur-
jón (t.v.) og Jóhann Mariussynir.
Nú fyrir skömmu var
stofnað nýtt fyrirtæki í
Keflavík. Heitir það Örygg-
isþjónustan Gæslan. Eig-
endur fyrirtækisins eru þeir
bræður Sigurjón og Guðni
Jóhann Maríussynir.
Fyrirtæki þetta er hiö
fyrsta sinnar tegundar hér á
svæðinu, en sams konar
fyrirtæki eru starfandi ann-
ars staðar á landinu. í stuttu
spjalli við blaðið sögðu þeir
bræður að megin tilgang-
urinn með fyrirtækinu væri
vöktun fyrirtækja, svo kom-
ast mætti hjá innbrotum,
vatnsskemmdum, eldsvoð-
um o.þ.h.
Gæsla fyrirtækjanna fer
þannig fram, að vaktmenn
keyra fram hjá fyrirtækjun-
um með talstöðvar, og ef
eitthvað er ekki eins og það
á að vera, er lögreglan
kvödd á staðinn. Vaktmenn
athuga alla glugga og hurð-
ir, en fara auk þess inn í
fyrirtækin, sé þess óskað.
Vinnutími starfsmanna er
á þeim tíma eftir að fyrir-
tækin loka, og er komið við
á hverjum stað fimm til tíu
sinnum hverja nótt. Af
öryggisástæðum er aldrei
komið við á fyrirfram
ákveðnum tímum, heldur er
sá tími breytilegur. Þegar
hafa nokkur fyrirtæki nýtt
sér þessa þjónustu þeirra
bræðra, og vonast þeir til að
fleiri bætist í hópinn. - gæi.