Víkurfréttir - 06.09.1984, Qupperneq 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 6. september 1984 5
NESBÓK - Ný ritfanga- og
bókaverslun í Keflavík
NESBÓK er nafn á nýrri
ritfanga- og bókaverslun,
sem hefur opnað að Hafn-
argötu 54, þar sem Ritval
var áður til húsa. Er versl-
unin í eigu hjónanna Eygló-
ar Þorsteinsdóttur og Geirs
Reynissonar, en á boðstól-
um verða öll almenn ritföng,
skólavörur og von bráðará
verslunin von á bóksölu-
leyfi.
Fengu þau Guðrúnu
Guðmundsdóttur innan-
hússarkitekt, til að hanna
nýjar innréttingar í búðina
og sá Elli Jóns um smíði á
þeim. Er verslunin mjög
björt og vistleg á eftir. Sagð-
ist Eygló vera bjartsýn á
framtíðina, því verð á rit-
föngum væri mjög hagstætt
þessa stundina og þóksala
ætti eflaust eftir að aukast á
ný. - epj.
Gólfslípun - Steypuvinna
Tökum aö okkur að leggja steypu og gólf-
slípun. Önnumst alla undirbúningsvinnu.
- Föst tilboð. -
GÓLFSLÍPUN SF., sími 3708 og 1945
Einar Torfi
Eygló Þorsteinsdóttir með þær Huldu Geirsdóttur á hægri
hönd, og Hildi Hákonardóttur á vinstri hönd, i Nesbók.
Skrifborðs-
lampar
Mikið úrval.
R.Ó.
RAFBÚÐ
Hafnargötu 44 - Keflavik
Simi 3337
Bygginganefnd Njarðvíkur:
Ramma úthlutað lóð við Reykjanesbraut
- og Coax-kerfi fær leyfi tii byggingar stjórnstöðvar
Á fundi bygginga-
nefndar Njarðvíkur 30. ág.
sl., var tekin fyrir umsókn
Ramma hf. um lóð fyrir
verksmiðjuhús við Reykja-
nesbraut í Innri-Njarðvík.
Samþykkti bygginganefnd
fyrir sitt leyti að Ramma hf.
verði gefinn kostur á þess-
um stað og bendir á að verði
úthlutun til Ramma hf. sam-
þykkt, verði nú þegar að
hefjast handa við hönnun
svæðisins á grundvelli
skipulagstillögu frá 1976
og framkvæmdaundirbún-
ing.
1-X-2 1-x-2
„Ég hef fengið engan réttan“
„Tippari" þriöju umferöarer Björn G. Ólafsson, útgeröar-
tæknir og bilabraskari. Björn er alvanur getraunamaður og
spilar meira að segja lika í happdrætti. Hvað varðar enska
boltann sagði Björn:
„Ég er gamall Leeds-ari, en eftir að þeir féllu í 2. deild þá
hefur Arsenal komið í staðinn. Ég tippaði mikið í fyrra en
þetta er fyrsti seðillinn í ár“. Hvað veldur? „Ja, maður er
þara að sjá línurnar skýrast í þessu áður en maður fer i
gang“.
Um það hverjir myndu verma toppsætið í deildinni sagði
Björn að það væri enginn vafi á því að „liðið með stóru
nöfnin", Arsenal, yrði það. „Það er kominn tími á þá“, sagði
Björn. „Man. Utd. verður í öðru og Liverpool í þriðja, þósvo
að þeir hafi gert jafntefli á móti KR þá er það enginn mæli-
kvarði".
Á seðilinn notar Björn Kerfið 6-3-3, sem hann segir pott-
þétt kerfi sem gefi allt að 11 rétta, en geti þó skeikað tveimur
til eða frá. Björn er einn þeirra fjölmörgu sem unnið hafa til
verðlauna, hann hefurtvisvarfengið 11 rétta. Hann tilheyrir
aftur á móti einnig öðrum hópi, þeim sem hafafengiðengan
réttan. Skyldu engin verðlaun vera fyrir það?
Spá Björns:
Leikir 8. sept.:
Arsenal - Liverpool ..
Everton - Coventry ..
Leicester - Ipswich ..
Luton - Southampton
Man. Utd. - Newcastle
Norwich - Stoke ....
Q.P.R. - Nott. For. ..
Sheff Wedn. - Tottenh
Sunderland W.B.A. ..
West Ham - Watford
Cardiff - Brighton ...
Carlisle - Manch. City
STEINAR STENDUR VIÐ SITT
enda ekki þekktur fyrir annað. Hann sagðist hafa þetta
4-8 rétta og hafði 6. Það þýðir helmingur réttur og
helmingur vitlaus. Þessi árangur gæti jafnvel fleytt Steinari i
úrslitakeppnina, en siöasta tímabil nægöi sexiö í hana.
1-X-2 1-X-2
Á sama fundi var tekin
fyrir umsókn frá Coax-kerfi
hf., um leyfi til byggingar
stjórnstöðvar fyrir kapal-
kerfi. Voru teikningar sam-
þykktar með fyrirvara um
sampykki eldvarnaeftirlits.
epj.
Prjónakonur
Kaupum nú aftur lopapeysur, heilar, í extra
large, svartar og gráar.
Hnepptar herrapeysur í small, alla liti.
Medium gráar og mórauöar, extra large,
alla liti.
Hnepptar dömupeysur: Medium svartar og
gráar, large alla liti.
Móttaka aö Iðavöllum 14b, Keflavík, eropin
miðvikudagana 12. og 26. sept. n.k. frá kl.
10-12. mm [SLENZKUR MARKADUR HF.
usmmi