Víkurfréttir - 06.09.1984, Síða 6
6 Fimmtudagur 6. september 1984
VÍKUR-fréttir
Raflagnavinnustofa
Sigurðar Ingvarssonar
Garöi - Simi 7103, 7143
Alhliöa raflagnir.
SIEMENS HEIMILSTÆKI í úrvaii,
s.s. þvottavélar, tauþurrkarar, rakatæki,
og allt i eldhúsiö.
FITJUM - NJARÐVÍK - SÍMI 3776
Opið alla daga vikunnar
nema sunnudaga
frá kl. 10:00 - 19:00.
Ðílaleigan Reykjanes
VID BJÓÐUM NÝJA OG SPARNEYTNA
FÓLKSBÍLA OG STADIONBILA
BÍLALEIGAN REYKJANES
VATNSNESVEGI 29 A — KEFLAVÍK
3 (92) 4888 • 1081 HEIMA 1767 ■ 2377
Hafnargötu 26 - Keflavík - Sími 1016
Gengið inn frá bílastæði.
Myndatökur við allra hæfi
mjmijnD
slíkir menn að þurfa að taka
tillit til aðstæðna eins og
aðrir. En sem betur fer var
það þannig með flesta lög-
reglumenn vallarins.
Þegar svona er ástatt eru
alltaf einhverjir ökumenn
sem eru með nauman tíma
Flugvallarlögregla
tefur umferðina
Á miðvikudag í síðustu
viku stóðu yfir malbikunar-
framkvæmdir á Reykjanes-
braut, þar sem hún fer í
gegnum Njarðvík. Meðan
brautin frá Fitjum og að
Grænás var malbikuð var
umferðinni vísað i gegnum
Keflavíkurflugvöll. Við þetta
jókst að sjálfsögðu til mik-
illa munasú umferðsemfór
í gegnum hlið vallarins, en.
með lipri löggæslu af hálfu
Keflavíkurlögreglunnar og
flestra lögreglumanna er
voru á vakt í hliðum vallar-
ins gekk þetta nokkuð vel
fyrir sig.
En því miður voru það
ekki allir lögreglumenn á
Keflavíkurflugvelli sem
voru eins liðlegir, þvi tveir
þeirra hreinlega töfðu um-
ferðina það mikið, að um kl.
17, þegar umferð starfs-
manna af flugvellinum
bættist við, tók þaðaíit upp í
40 mínútur að aka þennan
útúrdúr, sem taka varð
vegna malbikunarfram-
kvæmdanna. Enda var á
tímabili samfelld röð bif-
reiða frá Grænáshliðinu og
í báðar áttir eins langt og
augað eygði.
Þó eflaust þurfi að fylgja
ákvæðum laga um umferð
um Keflvíkurflugvöll, var
fljótlega hægt að vinsa úr
þá bíla sem voru í gegnum-
akstri, frá hinum, og eins
þjónaði það engum tilgangi
að tefja þá bíla sem voru á
leið upp Grænásbrekkuna
og því á leið til Reykjavíkur
frá Keflavík. Eins hljóta
Unnið að malbikun Reykjanesbrautar á Fitjum.
og eins þeir sem eru óþolin-
móðir, og því fór svo að
menn tóku þann kostinn að
brjóta umferðarlögin og
óku inn fyrir lokaða svæðið
á brautinni sem átti að mal-
bika eða fóru eftir ruðning-
um meðfram hitaveitu-
stokkunum, til að'komast
hjá hindrunum þeim sem
voru í flugvallarhliðinu og
daglega er nefnt Grænás-
hliðið. - epj.
Samfelld röð bifreiða myndaðist vegna óþarfa tafa tveggja
lögreglumanna i Grænáshliði.
Áfengisvarnaráð Keflavíkur:
Mótfallið opnun ölkrár í Keflavík
- Stríðir slík ölsala á móti lögum?
Þriðjudaginn 3. júlí var
haldinn fundur í áfengis-
varnanefnd Keflavíkur.
Fyrir fundinum lá umsögn
um vínveitingastaðað Hafn-
argötu 37, og um endurveit-
ingu ökuréttinda.
Bæjarstjórn sendi nefnd-
inni til umsagnar beiðni um
vínveitingaleyfi fyrir veit-
ingastað að Hafnargötu 37,
Keflavík, og skal þar vera
m.a. ,,bjórkrá“. Umsækj-
endur eru Gunnar Þorkels-
son, Sigurveig Sigurðar-
dóttir, Jóhann H. Einarsson
og Anna B. Nicholsson.
Nefndin vill vekja athygli
á að i bænum hafa nú þegar
verið leyfðir tveir vínveit-
ingastaðir til reynslu í eitt
ár. Bæjarbúum er öllum
Ijóst vegna blaðaskrifa sem
orðið hafa um þessa veit-
ingastaði, að þeir hafa ekki
orðið til að bæta skemmt-
analífið í bænum.
Nefndin treystir sér því
ekki til að mæla með að
bætt verði við fleiri vínveit-
ingastöðum þar sem ólæti
og skrílsmennska valda al-
varlegum slysum á gest-
unum.
Um opnun „ölkrár" er rétt
að taka fram að margir lög-
fróðir menn telja að slík öl-
sala stangist á við gildandi
lög um bann við sölu á
áfengu öli í landinu.
Nefndin leggur því ein-
dregið til að beiðninni verði
hafnað.
Sálarrannsóknarfélag
Suðurnesja stendur fyrir
komu sænska miðilsins
Thorstein Holmquist hing-
að til Suðurnesja.
Thorstein Holmquist hef-
ur áður komið hingað til
lands og hélt m.a. fjölda-
fundi við góðan orðstír í
Fjölbrautaskóla Suður-
nesja í vor sem leið. Að
þessu sinni mun hann halda
einkafundi fyrir félags-
menn SRFS í húsi félags-
ins, Túngötu 22, Keflavík.
Þeir sem vilja nánari upp-
lýsingar um fundina er bent
á að frá og með morgun-
deginum eru upplýsingar
veittar í síma félagsins,
3348, en Thorstein mun
dvelja hér til 19. sept. n.k.
epj.
Á fundinum voru mætt
Hilmar Jónsson, Sigfús
Kristjánsson, Kristján A.
Jónsson, Sigmundur Jó-
hannesson, Sigurður Þor-
steinsson og Eydís Eyjólfs-
dóttir. - epj.
Legg flísar og
marmara
ásamt
arinhleðslu.
Einnig alhliða
múrverk.
Þröstur Bjarnason
Múrarameistari
Suöurgötu 24 - Sími 3532
Sænskur miðill í Keflavík