Víkurfréttir - 06.09.1984, Blaðsíða 9
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 6. september 1984 9
Jafnréttisráð tók ekki afstöðu
- varðandi ráðningu í stöðu skólastjóra við Tónlistarskóla Njarðvíkur
( vor sem leið kom upp
mikið deiluefni varðandi
ráðningu skólastjóra við
Tónlistarskóla Njarðvíkur
og var úr mikill blaðamat-
ur. Deilt var um hvort það
væri brot á jafnréttislögum
að ganga framhjá Gróu
Hreinsdóttur, er Haraldur
Á. Haraldsson var ráðinn.
Vísaði Gróa málinu til jafn-
réttisráðs.
Nú hefur komið úrskurður
frá ráðinu og þar kemur
fram að það hafi fengið i
hendur umsóknir Gróu
Hreinsdótturog HaraldarÁ.
Haraldssonar ásamt fylgi-
skjölum. Samkvæmt þeim
upplýsingum er menntun
Kinnaberg -
Ný hafbeitarstöð
í Hafnahreppi
Stofnað hefur verið nýtt
hlutafélag í Hafnahreppi með
þeim tilgangi að koma upp
eldi og hafbeit hvers konar
nytjadýra er lifa I sjó eða
vatni, fóðurframleiðslu, líf-
efnaiðnaði og úrvinnslu af-
urða og sölu þeirra.
Stofnendur eru 15 einstakl-
ingar víða að af landinu svo
og 4 fyrirtæki í Njarðvík,
Höfnum og Hafnarfirði.
Stjórnarformaður er Svav-
arSkúlason I Njarðvík. - epj.
Njarðvíkurbær
kaupir land í
Innri-Njarðvík
[ sumar hefur bæjarstjóri
Njarðvíkur átt I viðræðum
f.h. Njarðvíkurbæjar við eig-
endur Stapakots í Innri-
Njarðvík um kaup á spildum
úr landi jarðarinnar. Og hafa
kaupsamningar nú verið
undirritaðir. - epj.
Næsta blaö kemur út
. 13. september.
NORRÆNA
SUNDKEPPNIN
1984
Hefurðu synt
200 metrana?
og starfsreynsla umsækj-
enda svo svipuð, að jafn-
réttisráð treystir sér ekki til
að gera upp á milli umsækj-
enda um stöðuna.
Síðan segir: „Jafnréttis-
ráð getur þ.a.l. ekki tekið af-
stöðu til hvort um brot á
lögum nr. 78/1976 um
jafnrétti kvenna og karla sé
að ræða í þessu tilfelli".
epj.
Matareitrun hjá ÍAV
Aðafaranótt sl. föstudags
og á föstudagsmorgun fór
að bera á því hjá þó nokkr-
um fjölda starfsmanna ís-
lenskra Aðalverktaka sf., að
þeir væru með einkenni af
matareitrun. Var hér um að
ræða starfsmenn sem borð-
að höfðu mat frá mötuneyti
fyrirtækisins að kvöldi
fimmtudags, og virðist svo
af viðtölum við starfsmenn,
að þeir sem fengu þetta hafi
borðað svokallaðar belgja-
baunir, en þeir sem létu það
ógert sluppu við öll ein-
kenni.
Var hér um að ræða
starfsmenn sem starfa í mal-
bikunar- og múraraflokk-
um, ásamt starfsmönnum
er starfa við Flugskýlin og
úti í Helguvík, svo dæmi séu
tekin. Höfðu sumir þeirra
samband við lækni til að fá
ráðleggingar.
Hins vegar var enginn
sem hafði samband við
heilbrigðisfulltrúa Suður-
nesja og vissi hann þviel.k-
ert af þessu þegar blaðið
hafði samband við hann sl.
mánudag. Er því óvíst að
tekin hafi verið sýni af matn-
um til að ganga úr skugga
um skaðvaldinn. - epj.
Byggingaval:
Timbur 26% ódýrara
en í Reykjavík
I nýlegri könnun Verð-
lagsstofnunar, sem náði yfir
byggingavöruverslanir á
Stór-Reykjavíkursvæðinu
og Suðurnesjum, kom fram
að verð var æði mismun-
andi á byggingavörum, en
ódýrastar voru þær hjá
Byggingaval í Keflavík. Frá
þessu er greint í Morgun-
blaðinu 28. ágúst sl.
Sama blað hefur það
einnig eftir Sigurði Eiríks-
syni hjá Byggingaval, að
mótatimbur væri alltað26%
ódýrara en annars staðar á
svæðinu og spónaplötur
væru allt að 18% ódýrari.
Væri ástæðan sú að vör-
urnar væru keyptar frá
Portúgal, en í flestum tilfell-
um væru þessar vörur
keyptar frá Sovétríkjunum
eða Svíþjóð.
Þá kom einnig fram í
sama blaði að þeir hefðu á
boðstólum innihurðir,
einnig ódýrari en aðrir, sem
þannig eru úr garði gerðar,
að aðeins hálfa klukku-
stund tekur að setja þær
upp, og fylgir allt sem til-
heyrir. - epj.
Fjölbreytt úrval
bifreiða á skrá
og á staðnum.
BÍLASALA BRYNLEIFS
Vatnsnesvegi 29a - Keflavik - Sími 1081
Sjóefnavinnslan hf.
- Hlutafjárútboð
Sjóefnavinnslan hf. auglýsirhérmeð hluta-
fjárútboð að nafnverði kr. 15 milljónir með
útboðsgengi 2,47.
Hluthafar hafa forkaupsrétt að öllum aukn-
ingarhlutum í hlutfalli við hlutafjáreign sína
til 31. október 1984. Eftir þann tíma eru
kaup hlutabréta heimil öllum innlendum
aðilum, en útboðið stendur til 28. febrúar
1985.
Nánari upplýsingar og gögn eru til staðará
skrifstofu félagsins, Vatnsnesvegi 14,
Keflavík, sími 92-3885.
Stjórn Sjóefnavinnslunnar hf.
Krakkaólæti
og rúðubrot
við Hafnargötu
Eitthvað virðist góða veðr-
ið hafa hlaupið illa I þá
krakka sem voru með ólæti á
Hafnargötunni um kl. 2 að-
faranótt sl. föstudags. Brutu
þeir rúður I Kaupfélaginu,
Hafnargötu 30 og í Stapafelli.
Auk þess sem nokkur órói
var I krökkum og unglingum
þarna, og þurfti að taka einn
ungling úr umferð. - epj.
Keflvíkingar
Suðurnesjamenn
Við höfum bæjarins mesta úrval af
INNANHÚSSKÓM
Einnig mikið úrval af stuttbuxum, bolum og
sokkum fyrir leikfimi og innanhússæfingar.
Sími 2006
Hringbraut 92 - Keflavik