Víkurfréttir - 06.09.1984, Side 10
10 Fimmtudagur 6. september 1984
VÍKUR-fréttir
Reynir Ölversson
sækir um
vínveitingaieyfi
Reynir ölversson hefur
sótt um vínveitingaleyfi fyrir
hús það sem hann er að reisa
við Grófina í Keflavík, eða
nánar tiltekið á horni Grófar-
innar og vegarins út á Berg.
Er umsóknin nú til umfjöll-
unarhjá Keflavíkurbæ. - epj.
Slökkvitækja-
þjónusta
Suðurnesja
Kolsýruhleðsla - Dufthleðsla
Viðhald og viðgerðir á flestum
tegundum slökkvitækja
Reykskynjarar - Rafhlöður
Brunaslöngur - Slökkvitæki
Uppsetning ef óskað er.
Viðurkennd eftirlitsþjónusta
handslökkvitækja í bátum og skipum.
Slökkvitækjaþjónusta Suðurnesja
Háaleiti 33 - keflavik - Sími 2322
Laus staða
Karlmaður óskast við Sundhöll, Keflavíkur.
Upplýsingar um starfið gefur sundhallar-
stjóri.
Umsóknum séskilaðtil undirritaðsfyrir15.
september n.k.
Bæjarstjórinn í Keflavík
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar nokkrar stöður
lögregluþjóna við embætti bæjarfógetans í
Keflavík, Njarðvík, og sýslumannsins í
Gullbringusýslu.
Umsóknarfrestur er til 16. sept. n.k.
Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögreglu-
þjóni, sem veitir allar nánari upplýsingar
um starfið.
Bæjarfógetinn í Keflavík og Njarðvík
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu
Jón Eysteinsson
Hér á Suðurnesjum er
umferðarmenning á hálf-
gerðu fornaldarstigi. Sést
þetta best á því hvernig
ökumenn leggja bifreiðum
sinum. Er það oftalveg með
ólíkindum hvað ökumenn
eru tillitslausir í þessum
efnum, eins og sést á mynd-
um þeim sem fylgja grein
þessari og voru teknar í
Keflavík fyrir skömmu.
í umferðarlögum eru skýr
ákvæði, sem ætluð eru til að
greiða fyrir umferð og koma
í veg fyrir að slysagildrur
myndist, en þrátt fyrir það
virðast menn oft á tíðum
eiga erfitt með að laða sig
að lögunum og því birtum
við nú það helsta ásamt um-
ræddum myndum.
Samkvæmt 51. gr. um-
ferðarlaga má ekki stöðva
né leggja ökutæki þannig,
að það geti valdið hættu
fyrir aðraeða ónauðsynleg-
um óþægindum fyrir um-
ferð. Leggja ber ökutæki
utan vegar, ef aðstæður
leyfa, en annars við brún
akbrautar og samhliða
henni, nema annað sé sér-
staklega ákveðið.
( þéttbýli má eingöngu
stöðva eða leggja ökutæki á
vegi við hægri brún ak-
brautar. í þessari grein er
upptalning í 12 liðum, þar
sem tekið er sérstaklega á
þeim stöðum þar sem
bannað er að stöðva eða
leggja ökutæki. En hvað
sýna myndirnar? - epj.
• i
Vatnstankurinn
í Keflavík:
Bæjarstjóri
frestaði útboðinu
Þegar Ijóst var að ágrein-
ingur var uppi um það, hvort
nauðsynlegt væri að ein-
angra vatnstank þann sem
boðinn hefur verið út fyrir
hönd Keflavíkurbæjar og
greint var frá í síðasta blaði,
tók bæjarstjórinn í Keflavík,
Steinþór Júlíusson, þá
ákvörðun að fresta útþoði
fram yfir 11. sept. n.k. Hafði
ákvörðun þessi verið tekin
áður en blaðið kom út, þó svo
að við höfðum ekki vitneskju
um það áður en það blað fór í
prentun.
Á þessum tíma verður farið
ofan í málið og það kannað,
til hlítar, áður en ákvörðun
verður tekin um það hvort
tankurinn verður byggður
með þessum hætti eða ekki.
epj.
ATVINNA - ATVINNA - ATVINNA
Okkur bráövantar fólk til frystihússstarfa. Vinnutími getur veriö
mjög sveigjanlegur og eftir samkomulagi. Upplýsingar gefur
verkstjóri.
BALDUR HF.
Hrannargötu 4 - Keflavík - Sími 1736
Svona má ekki
Þrátt fyrir næg bifreiöastæöi er bifreiö lagt upp á gangstétt.
Þrátt fyrir greinilega merkta akrein fyrir bifreiöir sem eiga
að aka til hægri, leggja menn bifreiöum sinum á akreinina
og láta þær standa þar timunum saman.
Malbikun og mikið ryk
Eins og eflaust mörgum
er kunnugt stóðu yfir í síð-
ustu viku malbikunarfram-
kvæmdir við Reykjanes-
brautina. Var það í sjálfu sér
gott framtak hjá Vegagerð-
inni, en tfmabært þó.
Á meðan framkvæmdir
þessar stóðu yfir varð að
beina umferð um brautina
annað. Þar á meðal í gegn-
um Innri-Njarðvík. Þar er
eins og flestir vitaeinnaf fá-
um ómalbikuðum vegarköfl
um hérna á svæðinu. Þar af
leiðandi rykast mikið upp á
veginum þegar þurrt er i
veðri.
Vegna þess höfðu margir
íbúar sem búa við veginn,
samband við blaðið og
kvörtuðu undan mikilli um-
ferð og gífurlegu ryki. Sagði
einn ibúanna a'ð sama væri
hversu þrálátlega væri
beðið um vökvun á vegin-
um, þá væri það aldrei, eða
alltof sjaldan gert. Annar
íbúi sagði að það væri fullt
starf fyrir einn mann að
þurrka rykið úr gluggum
húsanna. Höfðu þeireinnig
á orði að á undanförnum
5 árum hefði alltaf staðið til
að malbika þennan kafla, en
aldrei orðið af því. Þess má
að lokum geta að umferð
um vegarspotta þennan er
stöðug, og fara til dæmis
allir áætlunarbílar SBK
þarna um oftsinnis dag
hvern. gæi
Meðan malbikun Reykjanesbrautar stóð yfir var mikil um-
ferö um gamla Keflavikurveginn ofan Seyluhverfis i Innri-
Njarövik.